Mikill veikindavetur framundan

COVID-19, inflú­ensa og RS-veiran. Margir smit­sjúk­dómar á kreiki á sama tíma kalla á aukna varúð. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hvetur yfir­völd til að vera vel á verði og almenn­ing til að gæta að per­sónu­legum sótt­vörnum sínum.

Flensusprautan gagnast vel gegn alvarlegum veikindum af inflúensu.
Flensu­sprautan gagn­ast vel gegn alvar­legum veik­indum af inflú­ensu. Mynd: EPA

Flensu­tíðin hófst snemma í Evrópu þennan vet­ur­inn og að auki hafa kór­ónu­veiran og RS-veiran verið áber­andi. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin varar við miklum veik­inda­vetri framundan. Hún brýnir fyrir heil­brigð­is­yf­ir­völdum hvers lands að láta bólu­setja við­kvæma hópa fyrir bæði inflú­ensu og COVID-19.

Vegna þess að veik­indi af ýmsum toga eru útbreidd telur WHO ástæðu til að vara við því að álag á heil­brigð­is­kerfi verði mikið á kom­andi vikum og mán­uðum. Grein­ingum og inn­lögnum vegna önd­un­ar­færa­sýk­inga hefur fjölgað tölu­vert hér á landi á síð­ustu vikum.

Tvær týpur af inflú­ensu­veirunni eru á kreiki í Evrópu: A og B. Sýkingar af báðum afbrigðum hafa verið áber­andi meðal barna og allt frá því í októ­ber hefur orðið aukn­ing í inn­lögnum á sjúkra­hús vegna inflú­ensunnar meðal eldra fólks. Inflú­ensa getur valdið alvar­legum veik­indum hjá þeim sem eldri eru sem og hjá fólki sem er með króníska önd­un­ar­færa­sjúk­dóma.

Í dæmi­gerðu árferði smit­ast um 5-15 pró­sent af mann­fjöld­anum af inflú­ensu. Um 3-5 millj­ónir manna veikj­ast alvar­lega og dauðs­föll á heims­vísu eru um 650 þús­und í með­al­ári. Um 70 þús­und þess­ara dauðs­falla verða í Evrópu.

Sýkingum af RS-veirunni hefur einnig fjölgað fra því í októ­ber og í tutt­ugu Evr­ópu­ríkjum er veru­leg aukn­ing á smitum.

Fleiri að greinast og leggjast inn

Líkt og víðar í Evrópu var inflú­ensan tölu­vert fyrr á ferð­inni hér á landi en venju­lega. Einnig eru margir að grein­ast með aðrar önd­un­ar­færa­veirur. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­ala hefur orðið aukn­ing milli ára á sýna­töku vegna önd­un­ar­færa­sýk­inga sem getur að ein­hverju leyti útskýrt fjölda grein­inga. „Hins vegar er ljóst að klínískar grein­ingar eru algeng­ari en vant er á þessum árs­tíma og inn­lagnir hafa auk­ist,“ segir enn­fremur í upp­lýs­ingum spít­al­ans.

Í síð­ustu viku nóv­em­ber­mán­aðar jókst fjöldi þeirra sem þurftu inn­lögn á Land­spít­ala vegna COVID-19, inflú­ensu og RSV (RS-vírus) milli vikna. 52 ein­stak­lingar voru lagðir inn á Land­spít­ala vegna þess­ara sjúk­dóma þá viku. Flestir vegna COVID-19 eða 29 ein­stak­lingar, 14 vegna inflú­ensu og níu vegna RSV. Inn­lagnir eru algengastar í elstu ald­urs­hóp­unum vegna COVID-19 og inflú­ensu en í yngstu ald­urs­hóp­unum vegna RSV. Tveir sjúk­lingar voru inniliggj­andi á sjúkra­hús­inu á Akureyri með COVID-19.

Í umræddri viku var Respiratory Syncytial veiru­sýk­ing (RSV) stað­fest hjá sam­tals 26 ein­stak­lingum og er það sami fjöldi og greind­ist vik­una áður. Flestar grein­ingar voru hjá börnum á aldr­inum 0-2 ára eða sam­tals 19. Einnig var mikið um grein­ingar á öðrum önd­un­ar­færa­veirum s.s. Rhinoveiru, Adenoveiru, Enter­oveiru, Para­in­flú­ensu, kór­ónu­veirum öðrum er SARS-CoV-2 og Human Metap­neu­mó­veiru (hMPV).

Mikil útbreiðsla COVID-19 í samfélaginu

Samtals 199 ein­stak­lingar greindust með COVID-19 hér á landi í síð­ustu viku nóv­em­ber sem er svip­aður fjöldi og und­an­farnar vikur. Hlutfall jákvæðra sýna af heild­ar­fjölda sýna var 29 pró­sent sem gefur til kynna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Land­spít­al­ans, mikla dreif­ingu í sam­fé­lag­inu. Ef hlut­fall jákvæðra sýna er yfir 5 pró­sent er almennt talið að dreif­ing í sam­fé­lagi sé meiri en sýna­taka gefur til kynna. Áfram grein­ast flestir með Omicron BA.5 afbrigðið og und­ir­af­brigði þess.

41 ein­stak­lingur greind­ist með stað­festa inflú­ensu hér á landi í þess­ari sömu viku sem er aukn­ing milli vikna. Sjö voru á aldr­inum 0-4 ára, tveir á aldr­inum 5-15 ára, 19 á aldr­inum 16-64 ára og 13 voru 65 ára og eldri. Fjöldi með inflú­ensu­lík ein­kenni, sem eru klínískar grein­ingar skráðar í sjúkra­skrá, jókst einnig milli vikna úr 23 í 39.

WHO segir mjög mik­il­vægt að heil­brigð­is­yf­ir­völd séu áfram á varð­bergi gagn­vart COVID-19 en einnig bæði til­fellum inflú­ensu og sýk­inga af RS-veirunni. „Þörfin fyrir að vernda heilsu fólks, sér­stak­lega við­kvæmra hópa, er rík nú sem aldrei fyrr.“

Stofn­unin ítrekar enn­fremur til­mæli um að gæta að per­sónu­legum smit­vörnum. Að halda sig til hlés í veik­indum, hand­hreinsun, grímunotkun á heil­brigð­is­stofn­unum þ.m.t. bið­stofum, að forð­ast umgengni við ung­börn, sér­stak­lega nýbura, og aðra í áhættu­hópum meðan ein­kenni eru til staðar, getur dregið úr smiti til ann­arra og þar með alvar­legum veik­indum meðal áhættu­hópa. „Aðeins með því að vera vel und­ir­búin, á varð­bergi og halda áfram þeim aðgerðum sem við vitum að virka, getum við kom­ist yfir áskor­anir þessa vetrar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár