81,4 prósent þjóðarinnar ánægð með störf Guðna Th.

Alls segj­ast 81,3 pró­sent lands­manna vera ánægðir með störf Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Ánægja með störf for­seta lands­ins hefur aldrei mælst svo mikil í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins frá því að það hóf að mæla ánægju með störf hans í mars 2011. Einungis 3,8 pró­sent segj­ast vera óánægð með störf Guðna Th. Jóhann­es­sonar.

Stuðn­ings­menn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks eru óánægð­ari með störf Guðna Th. en stuðn­ings­menn ann­arra flokka.

MMR mældi síð­ast ánægju með störf for­seta í byrjun sept­em­ber. Þá mæld­ist ánægja með Guðna Th. 68,6 pró­sent, sem var mesta ánægja sem mælst hafði á þeim tíma. Síðan hefur bæst veru­lega í þann hóp sem er ánægður með störf sitj­andi for­seta. Guðni Th. tók við emb­ætti for­seta Íslands 1. ágúst síð­ast­lið­inn.

Könnun MMR var fram­kvæmd dag­ana 3. til 10. jan­úar 2016 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 954 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár