Hvað er svona merkilegt við bardaga Mayweather og McGregor?

Einhver stærsti hnefa­leika­bar­dagi sög­unnar verður háður í Las Vegas í nótt.

Floyd Mayweather og Connor McGregor mætast í hringnum í nótt.
Floyd Mayweather og Connor McGregor mæt­ast í hringnum í nótt. Mynd: Samsett mynd

Tvær stærstu stjörnur nútím­ans í bar­daga­heim­inum mæt­ast í hnefa­leika­bar­daga í nótt. Hinn banda­ríski Floyd Mayweather er marg­faldur meist­ari í hnefa­leikum, er ósigr­aður í 49 bar­dögum í röð og snýr aftur í hring­inn eftir að hafa hætt hnefa­leikum fyrir tveimur árum. Hinn írski Connor McGregor er heitasta nafnið í blönd­uðum bar­daga­listum og hefur aldrei keppt í hnefa­leikum áður.

„Þetta er bók­staf­lega lang stærsti bar­dagi sem hefur verið stillt upp,“ segir Dana White, stofn­andi og eig­andi UFC-bar­daga­deild­ar­innar sem Gunnar Nelson keppir meðal ann­ars í eins og Connor McGregor.

Aðdrag­and­inn og hug­myndin um bar­daga milli marg­falds sig­ur­vegar úr hnefa­leikum og kjaft­fors UFC-bar­daga­kappa hljómar frekar eins og við­fangs­efni Hollywood-kvik­mynda. Kvik­myndir þar sem við­fangs­efnið er bar­átta tveggja hetja úr mis­mun­andi veru­leika hafa auð­vitað verið gerðar. Nægir að nefna Alien vs. Predator, Batman vs. Superman og Avengers-mynd­irnar eins og þær leggja sig. Á Wikipediu má jafn­vel finna heilan flokk um slíkar kvik­myndir.

Bar­dag­inn hefst eftir mið­nætti aðfara­nótt sunnu­dags­ins 27. ágúst í Las Vegas í Banda­ríkj­unum. Gert er ráð fyrir að áhorf á bar­dag­ann í sjón­varpi muni slá öll met, enda virð­ast mörkin milli veru­leika og skáld­skapar nokkuð óljós í þessu öllu saman.

Bara fyrir þátt­töku í bar­dag­anum er búist við að hvor um sig þéni um 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða því sem nemur um það bil 11 millj­örðum íslenskra króna. Þannig að það eru í það minnsta tveir sem telja hug­mynd­ina um bar­dag­ann góða.

Boxreglurnar

Bar­dag­inn verður háður með hnefa­leik­a­reglum. Það þýðir að Connor McGregor þarf að binda á sig box­hanska, má ekki sparka, glíma eða kýla fyrir neðan belti. Bar­dag­inn verður háður í tólf þriggja mín­útna lotum, í stað þriggja fimm mín­útna lota í UFC. Floyd Maywether er þess vegna á heima­velli, ef svo má segja.

Boxarar telja þess vegna McGregor ekki eiga eftir að eiga mik­inn séns í hinn ósigr­aða Mayweather. Þrátt fyrir að hafa ekki sigrað oft með rot­höggi í seinni tíð þá er Mayweather ein­hver tækni­leg­asti hnefa­leika­kappi allra tíma. Hann er þekktur fyrir að rann­saka bar­daga­stíl keppi­nauta sinna vel fyrir og í bar­daga, verj­ast og vinna á stiga­mun.

Þar telja stuðn­ings­menn McGregor sinn mann geta haft yfir­hönd­ina. McGregor hefur aldrei háð hnefa­leika­bar­daga svo það er lítið fyrir Mayweather að rann­saka fyrr en í hring­inn er komið. McGregor er jafn­framt ell­efu árum yngri en Mayweather, sem færir Íranum auð­vitað örlítið for­skot.

Þess vegna telja sep­kúlantar að McGregor muni mæta nokkuð kröft­ug­lega til leiks og reyna að lenda rot­höggi á Mayweather áður en hnefa­leika­hetjan fær tæki­færi til þess að draga fram trompin sín. Bar­dag­inn mun þess vegna aðeins standa í fáeinar lotur, ef McGregor fær að ráða.

McGregor er einnig með stærri faðm, hann er hærri og þyngri.

[adspot]

Undirbúningurinn

Bar­dag­inn hefur verið í und­ir­bún­ingi í marga mán­uði. Kapp­arnir hafa skipst á fúk­yrðum í fjöl­miðlum og samið um skipt­ingu þeirra pen­inga sem bar­dag­inn mun afla. Um leið hafa þeir æft að kappi enda verður þetta eflaust bar­dagi lífs þeirra.

Í það minnsta upp­lifir Connor McGregor þetta þannig.

Mayweather hefur látið sjá sig á skemmti­stöðum und­an­farið og látið eins og hann sé ekk­ert endi­lega að stressa sig mikið á þessu. Á sama tíma hefur McGregor ákveðið að ein­beita sér að eigin styrk­leikum og ákvað snemma í ferl­inu að ráða ekki hnefa­leika­þjálf­ara í teymið sitt.

„Ég er ekki hræddur við Connor McGregor,“ hefur Mayweather látið hafa eftir sér á meðan hann borðar ham­borg­ara frá Burger King. „Það hefur eng­inn fundið bar­daga­mann sem getur unnið mig.“

„Ég ætla að rota hann. Hann er bara of lít­ill. Ég veit að hann er hraður, ég veit að hann er kvikur og ég veit að hann er reyndur. Mér er alveg sama. Ég slæ þig, þú fellur,“ hefur McGregor látið hafa eftir sér drekk­andi kaffi.

Hver vinnur?

Það er auð­vitað ómögu­legt að segja til hver muni standa uppi sem sig­ur­veg­ari eftir þennan bar­daga. Báðir hafa sína kosti og sína galla.

Í sér­stakri könnun sem Google fram­kvæmir nú meðal þeirra sem leita að upp­lýs­ingum um bar­dag­ann í leit­ar­vél­inni kemur fram að meiri­hluti net­verja telur McGregor eiga eftir að standa uppi sem sig­ur­veg­ara, eða 56 pró­sent. Veð­bankar telja Mayweather eiga eftir að vinna bar­dag­ann. Hann fær lík­urnar 2/9 á sigri. McGregor fær lík­urnar 10/3.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár