Heimildarmynd um fallna bróðurinn Fjölni Tattú

Fjölnir Geir Bragason, betur þekktur sem Fjölnir Tattú, lést seint á síð­asta ári langt fyrir aldur fram. Nú er unnið að gerð heim­ild­ar­myndar um hann sem hefur fengið nafnið „Better to be a Viking king!“ Safnað er fyrir gerð mynd­ar­innar á Karolina Fund.

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn og ljós­mynd­ar­inn Gaui H hefur verið að mynda síðan að hann var níu ára gam­all og fór í að gera tón­list­ar­mynd­bönd og heim­ild­ar­myndir fyrir fjórum árum síðan. Hann er búsettur í Færeyjum ásamt unn­ustu sinni Maritu, og eiga þau saman fyr­ir­tækið Faroe Ice productions.

Hann vinnur nú að gerð heim­ild­ar­myndar um ferðir Fjölnis Geirs Braga­sonar, Fjölnis Tattú, til Færeyja í tengslum við FO Tattfest húð­flúr­há­tíð­ina sem kom á lagg­irnar þar í landi. Fjölnir lést í des­em­ber 2021 aðeins 56 ára að aldri.

[adspot]Gaui H segir hug­mynd­ina á bak­við verk­efnið hafa kviknað árið 2018 þegar Fjölnir hringdi og bar undir hann hvort þeir ættu ekki að ráð­ast í verk­efnið. Útgangs­punkt­ur­inn var að horfa til þess hvernig hátíðin hefur breytt menn­ing­unni í Færeyjum. „Við byrj­uðum að skjóta þá mynd 2018 og ætl­uðum að klára í ár. En svo féll hann frá og ég ákvað að breyta um stefnu og gera mynd sem heiðrar Fjölnir og það sem hann stóð fyrir með klippum sem ég á frá okkar ferða­lögum og einnig taka við­töl við vini og vanda­menn.“

Þema verk­efn­is­ins er ein­falt: ferða­lag Fjölnis í gegnum lífið. „Það var á pörtum ansi skraut­legt og alveg magnað hvað hann tók sér fyrir hendur. Mig hlakkar mikið til að setj­ast niður með fólki sem var honum næst og rifja upp sögur og festa þær á filmu!“

Gaui H segir að hann og Fjölnir hafi verið afar nánir vinir og frá árinu 2018, þar til Fjölnir lést í lok síð­asta árs, hafi þeir eytt ómældum tíma saman í að bralla og plana. „Hann kynnti mig fyrir núver­andi unn­ustu minni og eigum við saman lít­inn gaur sem að Fjölni hlakk­aði mikið til að hitta. En það tókst ekki þar sem að Fjölnir lést fljót­lega eftir fæð­ingu hans. En ég get sýnt syni mínum þessa mynd þegar að hann verður eldri og sagt honum sögur af þessum mikla manni sem að gerði svo mikið fyrir mig og fleiri.

Mér finnst ég ekki geta hvílst fyrr en að þessi mynd er orðin að veru­leika, ekki bara fyrir mig heldur alla sem þekktu hann og elsk­uðu. Og það voru ansi margir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár