Borgin varði 1,5 milljörðum í málaflokk heimilislausra á fyrstu 10 mánuðum ársins

Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins varði Reykja­vík­ur­borg einum og hálfum millj­arði króna í þjón­ustu og stuðn­ing við heim­il­is­laust fólk. Önnur sveit­ar­fé­lög greiddu borg­inni 28,5 millj­ónir króna fyrir gist­ingu íbúa sinna í neyð­ar­skýlum á sama tíma­bili.

Reykjavíkurborg ber mestan þunga af þjónustu við heimilislaust fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Reykja­vík­ur­borg ber mestan þunga af þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Á fyrstu tíu mán­uðum þessa árs, frá byrjun jan­úar og út októ­ber, varði Reykja­vík­ur­borg alls 1,5 millj­örðum króna til úrræða og þjón­ustu í mála­flokki heim­il­is­lausra. Þar af runnu um 500 millj­ónir króna í rekstur þeirra þriggja gisti- eða neyð­ar­skýla sem rekin eru í borg­inni.

Á móti þeim útgjöldum koma rúmar 28,5 millj­ónir króna sem önnur sveit­ar­fé­lög greiða Reykja­vík­ur­borg fyrir þá íbúa sína sem nýta sér þjón­ustu gisti­skýl­anna, en Reykja­vík­ur­borg rukkar um þessar mundir rúm­lega 21 þús­und krónur fyrir hverja nótt sem ein­stak­lingar með lög­heim­ili í öðrum sveit­ar­fé­lögum dvelja í neyð­ar­skýl­unum.

Þetta kemur fram svari sem borgin veitti Kjarn­anum við fyr­ir­spurn um útlagðan kostnað vegna mála­flokks heim­il­is­lausra í borg­inni. Útgjöld borg­ar­innar til mála­flokks­ins eru ann­ars vegar vegna ólíkra hús­næðisúr­ræða og hins vegar vegna Vett­vangs- og ráð­gjafateymis Reykja­vík­ur­borgar, hins svo­kall­aðar VoR-teymis, sem veitir heim­il­is­lausu fólki stuðn­ing og ráð­gjöf.

Þung staða í neyðarskýlunum í haust

Samkvæmt úttekt sem fram­kvæmd var af vel­ferð­ar­sviði borg­ar­innar í októ­ber í fyrra tald­ist 301 ein­stak­lingur heim­il­is­laus í Reykja­vík­ur­borg. Þrjú pró­sent hóps­ins, fjórir karlar og fjórar kon­ur, voru ekki með aðgang að hús­næði af ein­hverju tagi og höfð­ust við á víða­vangi. Fimmtán karlar og sjö konur til við­bótar töld­ust í ótryggum hús­næð­is­að­stæð­um.

Rúmur helm­ingur hóps­ins eða 54 pró­sent var hins í hús­næði sem skil­greint er fyrir heim­il­is­lausa á vegum Reykja­vík­ur­borgar eða á áfanga­heim­ili eða þá í hús­næði með lang­tíma­stuðn­ing. Tæpur þriðj­ungur hóps­ins, eða 31 pró­sent, var í neyð­ar­gist­ingu fyrir heim­il­is­lausa.

Í haust voru fluttar fréttir af því að þjón­ustu­þörf í mála­flokknum hefði auk­ist mjög á þessu ári og frá því sagði í frétt RÚV að neyð­ar­skýlin þrjú í borg­inni, gisti­skýli karla við Lind­ar­götu og Granda­garð og svo Konukot, væru ítrekað í og yfir hámarks­nýt­ingu, en að í fyrra hefði nýt­ingin verið á bil­inu 60-80 pró­sent og árið 2020 enn minni, eða á bil­inu einn þriðji til helm­ingur af því sem hann væri nú um stundir.

Hrafn­hildur Ólöf Ólafs­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og deild­ar­stjóri mála­flokks heim­il­is­lausra hjá Reykja­vík­ur­borg, sagði við RÚV að um þriðj­ungur þeirra sem nýttu gisti­skýlin væru íbúar ann­arra sveit­ar­fé­laga og að hún og aðrir starfs­menn í mála­flokknum finndu ekki fyrir miklum aðgerðum frá öðrum sveit­ar­fé­lögum eða rík­inu, og sökn­uðu þess.

„[Þ]að sem við söknum er upp­bygg­ing á úrræðum og úthlutun í hús­næði og þjón­ustu ann­ars staðar. Þannig að fólk velji ekki að fara til okkar, þar sem við erum eina sveit­ar­fé­lagið með virka þjón­ustu,“ hafði RÚV eftir Hrafn­hildi.

Kópavogsbær búinn að greiða fyrir 772 gistinætur

Kjarninn beindi einnig fyr­ir­spurnum til ann­arra sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um útlagðan kostnað vegna þessa mála­flokks og hafa svör borist nú þegar frá Kópa­vogsbæ og Hafn­ar­fjarð­arbæ.

Í svari frá Kópa­vogsbæ er þess getið að á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins hafi bær­inn greitt Reykja­vík­ur­borg alls rúmar 16 millj­ónir króna fyrir alls 772 gistinætur heim­il­is­lausra íbúa Kópavogs í neyð­ar­skýlum á vegum borg­ar­innar.

Þetta er nokkur aukn­ing frá því í fyrra, sam­kvæmt yfir­liti sem Kópa­vogs­bær sendi Kjarn­anum, en allt síð­asta ár rukk­aði Reykja­vík­ur­borg Kópa­vogsbæ um 10 millj­ónir króna fyrir 527 gistinætur í skýlum á vegum borg­ar­innar og árið 2020 námu þessar greiðslur Kópa­vogs­bæjar til Reykja­víkur 5,9 millj­ónum króna fyrir alls 326 gistinætur.

Að auki er vel­ferð­ar­svið Kópa­vogs­bæjar með þjón­ustu­samn­ing við Samhjálp um rekstur áfanga­heim­ilis við Dal­brekku fyrir 8 karl­menn og er kostn­aður bæj­ar­ins við rekstur úrræð­is­ins á þessu ári rúmar 32 millj­ónir króna. Í svari frá bænum segir að félags­ráð­gjafi frá Kópa­vogsbæ sé þar með viku­lega við­veru, en um er að ræða úrræði fyrir karl­menn sem eru með lög­heim­ili í Kópavogi og eru að ljúka fíkni­með­ferðum, oft lang­tíma­með­ferðum, og þurfa að koma undir sig fót­unum að nýju.

Hafnarfjörður segir erfitt að segja til um kostnaðinn

Í svari frá Hafn­ar­firði til Kjarnans segir að það sé „mjög erfitt að segja til um árlegan kostnað Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar vegna þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk“.

„Erfitt hefur reynst að festa tölu á fjölda heim­il­is­lausra því það leita ekki allir til sveit­ar­fé­lags­ins í erf­ið­leikum sínum. Ein­hverjir eru á mán­að­ar­legri fjár­hags­að­stoð frá sveit­ar­fé­lag­inu og ein­hverjir komnir á örorku. Raunhæf heild­ar­mynd í kostn­aði kallar á gögn frá mörgum ólíkum aðilum sem vinna þá með sömu skil­grein­ing­una á heim­il­is­leysi. Hafn­ar­fjarð­ar­bær vinnur náið með öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í þessum mála­flokki líkt og svo mörgum öðrum. Mark­miðið er ávallt að bæta lífs­kjör þeirra sem standa höllum fæti og reynt að veita þessum ein­stak­lingum mark­vissa stuðn­ings­þjón­ustu til að auka lífs­gæði þeirra,“ segir í svari bæj­ar­ins.

Í svar­inu er einnig bent á að á vett­vangi Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) sé starf­andi sam­starfs­hópur um mál­efni heim­il­is­lausra og að verk­efna­stjóri hóps­ins sé um þessar mundir að vinna að úttekt með sveit­ar­fé­lög­unum um þennan mála­flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár