Mynd: Bára Huld Beck

Hlaðvarp, vísanir inn á Hringbraut og myndbönd grundvöllur milljarðakröfu Sýnar

Fyrr­ver­andi eig­endur þeirra miðla sem mynd­uðu einu sinni fjöl­miðla­sam­steypuna 365 hefur tek­ist að selja þá frá sér fyrir millj­arða króna á síð­ustu árum. Nýir eig­endur hafa lent í rekstr­ar­erf­ið­leikum með miðl­ana.

Sýn, sem keypti ýmsa fjöl­miðla af félag­inu 365 miðlum á árinu 2017, telur að selj­and­inn hafi brotið gegn ákvæðum um sam­keppn­is­bann sem samið hafið verið um í kaup­samn­ingi þeirra á milli. Þess vegna hefur fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið ákveðið að stefna hjón­unum Ingi­björgu Pálma­dóttur og Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sem eiga og stýra 365 miðlum, selj­and­anum sjálfum og Torgi ehf., sem er eig­andi Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, til greiðslu rúm­lega 1,1 millj­arða króna fyrir þau brot auk verð­bóta.

Í brot­unum fel­ast að stjórn­endur Sýnar telja að teng­ing vef­mið­ils­ins fretta­bla­did.is við ljós­vaka­miðla, bæði útvarp og sjón­varp, sé með öllu óheimil sam­kvæmt kaup­samn­ingnum frá árinu 2017. Mið­ill­inn haldi hins vegar úti hlað­varpi, vísi á vef sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar (líka í eigu Torgs) af for­síðu sinni og sýni ýmis konar mynd­bönd, sem telj­ist ljós­vaka­efni.

Sýn gerði umrædda kröfu með bréfi sem sent var 17. des­em­ber í fyrra. Hún er óskipt (In soli­dum) og því sett þannig fram að allir sem krafan bein­ist að; Ingi­björg, Jón Ásgeir, 365 miðlar og Torg, eiga að bera sam­eig­in­lega ábyrgð á tjón­inu sem Sýn telur sig hafa orðið fyrir.

Af hálfu Ingi­bjargar, Jóns Ásgeirs og 365 hf. var kröf­unni mót­mælt með bréfi 20. des­em­ber í fyrra. Í árs­reikn­ingi Sýnar, sem birtur var í vik­unni, kemur fram að fyr­ir­tækið hafi falið lög­manni að und­ir­búa höfðun dóms­máls til heimtu þess­arar kröfu og má búast við því að það verði höfðað á næstu vikum.

Bankar í lykilhlutverki

Málið allt á sér langan aðdrag­anda. Upphaf þess má rekja til 10. febr­úar 2016 þegar Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­banka hélt kynn­ingu fyrir stjórn­endur Sýnar, sem þá hét reyndar Fjar­skipti hf., varð­andi mögu­leg ytri vaxta­tæki­færi. Eitt þeirra fyr­ir­tækja sem kynn­ingin tók til voru 365 miðlar hf., þá stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins sem hafði einnig reynt fyrir sér í fjar­skipta­við­skiptum, með tak­mörk­uðum árangri. Það sem 365 áttu voru því sjón­­varps- og útvarps­­­stöðvar auk fjar­­skipta­hluta fyr­ir­tæk­is­ins og frétta­vefs­ins Vísir.is. Helstu sjón­­varps­­stöðvar voru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórás­in. Helstu útvarps­­­stöðvar voru Bylgj­an, FM957 og X-ið. Til við­bótar átti 365 frí­blaðið Frétta­blaðið og tíma­ritið Glamour.

Sýn hafði áhuga á að kanna þetta við­skipta­tæki­færi nánar og í fram­hald­inu var skrifað undir verk­samn­ing milli félags­ins og Fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­banka þann 8. mars 2016, um ráð­gjöf vegna fyr­ir­hug­aðrar vinnu og ráð­gjafar í tengslum við mögu­leg kaup á eignum 365 miðla.

Samkvæmt samn­ingnum var bank­anum meðal ann­ars falið að ann­ast alla milli­göngu við selj­endur vegna máls­ins og tók þannig að sér upp­lýs­inga­öflun vegna verk­efn­is­ins.

Helsti drif­kraft­ur­inn á bak við sölu á hluta af eignum 365 til Sýnar var líka banki. Arion banki. Bankinn end­ur­fjár­magn­aði skuldir 365, nokkuð óvænt, haustið 2015. Áður hafði fyr­ir­tækið verið í banka­við­skiptum við Lands­bank­ann. Við þá breyt­ingu juk­ust lang­tíma­skuldir 365 miðla úr 3,6 millj­örðum króna í 4,8 millj­arða króna.

Rekstur 365 hafði ekki gengið vel. Fyr­ir­tækið tap­aði 1,4 millj­arði króna á árinu 2014 og ef það hefði fært skatta­skuld sem það hafði þegar verið dæmt til að greiða í rekstr­ar­reikn­ing 2015 hefði tapið verið 350 millj­ónir króna það árið. Alls skuld­aði fyr­ir­tækið um tíu millj­arða króna í lok þess árs.

Keyptu allt nema Fréttablaðið og Glamour

Skrifað var undir kaup­samn­ing 14. mars 2017. Samkvæmt honum keypti Sýn alla miðla 365 nema Frétta­blaðið og tíma­ritið Glamour.

Í kaup­samn­ingnum voru ákvæði sem áttu að tryggja að eig­endur 365 miðla myndu ekki hefja sam­keppni við Sýn um ákveðin tíma á þeim mörk­uðum sem hinir seldu miðlar störf­uðu. Und­an­tekn­ingin þar var að setja mætti upp frétta­síðu á net­inu til að vera birt­ing­ar­mynd Frétta­blaðs­ins þar. Sú síða varð á end­anum fretta­bla­did.is.

Frétta­blað­inu var svo rennt inn í dótt­ur­fé­lag sem fékk nafnið Torg ehf. og 365 miðlum í kjöl­farið breytt í fjár­fest­inga­fé­lag sem hefur gert sig gild­andi í kaupum á félögum á skráðum mark­aði með þeim pen­ingum sem feng­ust fyrir söl­una á miðl­unum.

Jón Ásgeir Jóhannesson og eiginkona hans Ingibjörg Pálmadóttir þykja hafa farið afar vel út úr sölunni á fjölmiðlunum sem þau áttu um árabil. Mynd: Kjarninn
Jón Ásgeir Jóhann­es­son og eig­in­kona hans Ingi­björg Pálma­dóttir þykja hafa farið afar vel út úr söl­unni á fjöl­miðl­unum sem þau áttu um ára­bil. Mynd: Kjarninn

365 miðlar fengu enda vel greitt fyrir. Sú greiðsla sam­an­stóð af 10,92 pró­sent hlut í Sýn, tæp­lega 1,6 millj­arði króna í reiðufé auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuld­um. Eig­endur 365 miðla, seldu eign­ar­hlut­inn sinn í Sýn í októ­ber í 2018 á tvo millj­arða króna. Því má segja að þeir hafi fengið um 3,6 millj­arða króna í reiðufé út úr söl­unni auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af skuldum 365 miðla. Sam­an­lagt er kaup­verðið sam­kvæmt því um 8,2 millj­arðar króna.

Helgi Magnússon kaupir fjölmiðil

Í júní 2019 seldu 365 miðlar svo helm­ings­hlut í Torgi ehf. til Helga Magn­ús­sonar. Í októ­ber keypti Helgi svo þann hluta sem hann átti ekki fyrir fyrir ótil­greinda upp­hæð og á sama tíma var sjón­varps­stöð­inni Hring­braut og tengdri síðu rennt inn í Torg. Þá þegar hafði Frétta­blaðið hafið fram­leiðslu og birt­ingu á hlað­varpi á fretta­bla­did.is.

Í des­em­ber var svo greint frá því að Torg væri að kaupa DV og tengda miðla af Frjálsri fjöl­mið­l­un. Þau kaup eru nú til með­ferðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Hlutur Helga í Torgi er nú 82 pró­sent en með­eig­endur hans eru Sig­urður Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Hring­brautar og við­skipta­fé­lagi Helga til margra ára, með tíu pró­sent hlut, Jón G. Þór­is­son, nú aðal­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, með fimm pró­sent hlut, og Guð­mundur Örn Jóhanns­son, fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóri Hring­brautar og nú fram­kvæmda­stjóri sölu, mark­aðs­­mála og dag­­skrár­­gerðar hjá Torg­i.

Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs ehf.
Helgi Magn­ús­son, aðal­eig­andi Torgs ehf.

Rekstur Torgs hefur reynst erf­ið­ari en lagt var upp með og í vik­unni var greint var stjórn­enda­breyt­ingum sem tengd­ust nið­ur­skurð­ar­að­gerðum sem ráð­ist hefur verið í hjá fyr­ir­tæk­inu.

Mikið tekjutap hjá Sýn

Vænt­an­leg stefna Sýnar gegn 365 miðlum, Ingi­björgu og Jóni Ásgeiri, og Torgi snýst um að fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið telur að fretta­bla­did.is hafi ekki mátt fara í sam­keppni við sig í útvarps- og sjón­varps­rekstri sam­kvæmt kaup­samn­ingi. Það telur að vísun inn á sjón­varps­stöð­ina Hring­braut af for­síðu fretta­bla­did.is og umfangs­mikil hlað­varps­fram­leiðsla sé brot á því sam­keppn­is­banni og krefst rúm­lega 1,1 millj­arðs króna frá ofan­greindum aðilum vegna þessa.

Ingi­björg og Jón Ásgeir hafa þegar hafnað kröf­unni og hótað að gagn­stefna vegna meints „ tjóns sem til­hæfu­lausar ásak­anir Sýnar hafa valdið félag­inu.“ Óljóst er hvers eðlis það tjón er.

Það sem er hins vegar ekki óljóst er að kaup Sýnar á fjöl­miðlum 365 miðla hafa ekki reynst þau góðu kaup sem lagt var upp með. Í jan­úar greindi Sýn frá því að fyr­ir­tækið hefði fært niður alla þá 2,5 millj­arða króna við­skipta­vild sem fylgdi fjöl­miðl­unum, en slík eign er virði hug­lægra eigna fyr­ir­tækis. Með henni er til að mynda sett mat á fjár­hags­legu verð­mæti þess að eiga hóp fastra við­skipta­vina, eins og til dæmis áskrif­enda að sjón­varps­þjón­ustu Stöðvar 2.

Tekjur Sýnar í fyrra voru 19,8 millj­arðar króna, eða um millj­arði lægri en árið áður, sem var fyrsta heila árið sem fjöl­miðl­arnir til­heyrðu sam­stæð­unni.

Fjöl­miðlun er þó sú tekju­stoð sem skilar Sýn mestu, eða tæp­lega 8,4 millj­örðum króna í tekjur í fyrra. Hún dróst hins vegar saman um fimm pró­sent milli ára eða um 446 millj­ónir króna.

Mestur var sam­drátt­ur­inn á fjórða árs­fjórð­ungi, þegar fjöl­miðla­tekj­urnar lækk­uðu um 216 millj­ónir króna. Þar skiptir ugg­laust máli að Sýn missti rétt­inn af sýn­ingu á enska bolt­­anum yfir til sam­keppn­is­að­il­ans Sím­ans fyrir yfir­stand­andi tíma­bil, sem hófst á þriðja árs­fjórð­ungi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár