Boris Johnson segir af sér embætti

Boris Johnson utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands hefur sagt af sér emb­ætti. Johnson er þriðji ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Theresu May for­sæt­is­ráð­herra á sól­ar­hring sem segir af sér.

Boris Johnson utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands hefur sagt af sér emb­ætti. Johnson er þriðji ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Theresu May for­sæt­is­ráð­herra á sól­ar­hring sem segir af sér emb­ætti, en David Davis ráð­herra Brexit-mála gerði það í gær sem og Steve Baker ráð­herra úrsagnar lands­ins úr ESB.

[links]Aðeins nokkrir dagar eru liðnir frá því May tryggði stuðn­ing rík­is­stjórn­ar­innar við Brexit-áætlun sína en sú er talin of mild af mörgum innan flokks­ins.

Johnson mun hafa ráð­fært sig við bak­land sitt og tekið þá ákvörðun að hann gæti ekki tekið þátt í að selja nið­ur­stöðu May. Staða hennar veik­ist tölu­vert, í hið minnsta hjá hörð­ustu and­stæð­ingum ESB innan flokks­ins sem eru margir, með brott­hvarfi Johnson, sem var afar áber­andi í Brexit-kosn­ing­unni.

Í yfir­lýs­ingu frá tals­manni Downingstrætis kemur fram að May þakki frá­far­andi ráð­herr­anum fyrir störf sín og að eft­ir­maður hans verði kynntur innan tíðar.

Takist Ma­y ekki að sann­færa alla þing­menn sína um áætlun sín gæti staða hennar sem ­for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands verið í hættu, en ef 15 pró­sent sam­flokks­manna hennar á þingi sam­þykkja ekki nýju rík­is­stjórn­ina geta þau lagt fram van­traust­s­til­lögu á hend­ur Ma­y.

Dav­is hafði áður sagst ekki geta lengur unað við ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar að stefna að „mjúk­ri“ útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu, en sú stefna miðar að frí­versl­un­ar­svæði milli Bret­lands og ESB þar sem bæði svæðin lúta sömu regl­u­m.

Í afsagn­ar­bréfi sínu ítrekar Da­vis þessar áhyggjur og sagði stefn­una munu gefa Evr­ópu­sam­band­inu gríð­ar­leg völd yfir breska hag­kerfið og ekki gefa land­inu sínu sjálf­stjórn í neinum raun­veru­legum skiln­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár