Segir loftlagsráðstefnuna í París líklega mikilvægasta fund mannkynnssögunar

Kristín Vala Ragn­ars­dóttir, pró­fessor í sjálf­bærni­vís­indum við Háskóla Íslands, segir að alþjóð­lega lofts­lags­ráð­stefnan í París í des­em­ber sé lík­lega mik­il­væg­asti fundur mann­kyns­sög­unar. Ef það náist ekki árangur á henni þá muni mann­kynið að öllum lík­indum missa tæki­færið til að hafa áhrif á loft­lags­mál úr höndum sér. Þetta kom fram í við­tali við Kristínu Völu í

Helg­ar­út­gáf­unni á Rás 2 í dag.

Kristín Vala hefur á síð­ustu árum stýrt stórum rann­sókn­ar­verk­efnum sem snúa að sjálf­bærni, meðal ann­ars verk­efnis sem nýtur styrks frá Evr­ópu­sam­band­inu þar sem jarð­vegur er rann­sak­aður sem kerfi. Í þætt­inum sagði hún að ef það næst ekki árangur á fund­inum í París gæti stór hluti jarð­ar­innar orðið óbyggi­legur fyrir mann­inn í lok þess­arar aldar. „Ég held í raun­inni að þessi fundur sem verður í París í des­em­ber sé lík­lega mik­il­væg­asti fundur sem hald­inn hafi verið í heim­inum okkar alla tíð. Ef við náum ekki árangri þar, hvernig við ætlum að minnka útblástur, þá erum við lík­leg­ast búin að missa lofts­lags­málin út úr hönd­unum á okkur. Þá förum við út í fleiri og fleiri jákvæða hringi sem valda meiri og meiri hlýnun. Í stað­inn fyrir að við endum í tveimur gráðum með því að minnka gríð­ar­lega mikið útblástur, þá förum við kannski í fimm, sex gráður í lok þess­arar aldar. Þá verður stór hluti jarð­ar­innar óbyggi­legur fyrir mann­inn. Við erum þegar farin að sjá allt þetta streymi fólks frá hinum ýmsu Afr­íku­ríkjum. Þetta eru ríki þar sem er mikið þjóð­fé­lags­legt ójafn­vægi vegna lofts­lags­breyt­inga."

Kristín Vala skrifar reglu­lega álits­greinar á Kjarnann, meðal ann­ars um umhverf­is­mál og sjálf­bærni.

Miklar vonir bundnar við Parísarráðstefnuna


Miklar vonir eru bundnar við lofts­lags­ráð­stefn­una í París en þar er mark­miðið að búa til laga­lega bind­andi þver­þjóð­legt sam­komu­lag um lofts­lags­málin. Und­ir­bún­ingur fyrir ráð­stefn­una hefur staðið und­an­farin ár, ekki síst með stefnu­mótun ein­stakra þjóða í orku­málum. Ljóst er að mik­ill vilji virð­ist vera hjá stórum leik­endum á alþjóða­svið­inu til að bregð­ast við þeirri vá sem loft­lags­breyt­ingar.

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, setti til að mynda nýjar loft­lags­reglur í síð­ustu viku með ein­hliða ákvörðun emb­ætt­is­ins um að losun koltví­oxíðs út í and­rúms­loftið verði minnkuð um 32 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 2005. Ákvörð­unin hefur mætt þó nokk­urri and­stöðu frá repúblikönum og orku­fyr­ir­tækjum.

[caption id="attachment_35722" align="alignnone" width="1024"] „Við eigum bara eitt heim­ili. Það er bara ein Jörð. Það er ekk­ert plan B,“ sagði Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, þegar hann kynnti áætlun sína í síð­ustu viku. „Við erum fyrsta kyn­slóðin sem finnur fyrir áhrifum hnatt­rænnar hlýn­unar. Við erum síð­asta kyn­slóðin sem getur gert eitt­hvað í því.“[/caption]

Margir af helstu leið­togum heims­ins hafa fagnað þess­ari áætlun Obama.Francois Hollande, Frakk­lands­for­seti, sagði hug­rekki Obama mikið í að ná þessu í gegn. „Þetta mun hjálpa mikið til þegar kemur að lofts­lags­ráð­stefn­unni í París,“ sagði hann. Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, tók í sama streng. „Áætlun Obama er til fyr­ir­myndar um nauð­syn­lega fram­tíð­ar­sýn sem þarf til að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá skrif­stofu aðal­rit­ar­ans.

Nýverið til­kynntu íslensk stjórn­völd mark­mið lands­ins í lofts­lags­málum til árs­ins 2030. Íslensk stjórn­völd munu leit­ast við að ná sam­eig­in­legu mark­miði með Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum og Noregi um 40 pró­sent minnkun los­unar koltví­oxíðs sé miðað við árið 1990.

Á ráð­stefn­unni í París verður meiri krafa gerð til þró­aðra ríkja en þró­un­ar­ríkja, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins síðan í júní. Þar segir einnig af aðferð­inni sem freist­ast verður til að nota. Ólíkt því þegar Kýótó-sam­komu­lagið var gert, þegar samið var um los­un­ar­mark hvers ríkis, er hverju ríki ætlað að setja sér eigin mark­mið til árs­ins 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár