Halla með mun hærra fylgi en spáð var

Guðni Th. Jóhann­es­son var kjör­inn for­seti Íslands í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fóru í gær, laug­ar­dag­inn 25. júní. Síðan Guðni til­kynnti um fram­boð sitt um mán­aða­mótin apríl-maí hafði hann notið lang­mests fylgis í skoð­ana­könn­unum og borið höfuð og herðar yfir aðra fra­mjóð­endur. Þangað til í kosn­ing­unum sjálfum.

Guðni sigr­aði í kosn­ing­unum með 39,1 pró­sent greiddra atkvæða, nokkru minna en hann hafði mælst með í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar í aðdrag­anda kosn­inga. Halla Tóm­as­dóttir hlaut aftur á móti mun fleiri atkvæði en kosn­inga­spáin hafði gert ráð fyrir föstu­dag­inn fyrir kosn­ingar, eins og sjá má á súlu­rit­inu hér að neðan.

Kosn­inga­spáin er reikni­líkan sem ætlað er að birta sem raun­hæf­asta mynd af fylgi fram­bjóð­enda á hverjum tíma­punkti fyrir sig í aðdrag­anda kosn­inga. Í reikni­líkanið voru færðar nýj­ustu kann­anir á fylgi fram­bjóð­enda í emb­ætti for­seta og þeim gefið vægi eftir fyr­ir­fram ákveðnum reglum. Til að taka ein­falt dæmi þá fær ný könnun meira vægi en eldri könnun og fjöl­menn­ari könnun fær meira vægi en fámenn­ari. Þá hefur sögu­leg for­spár­geta könn­un­ar­að­ila einnig sitt að segja. Nánar má lesa um kosn­inga­spána hér.

[adspot]

Kosn­inga­spáin tekur þannig saman allar þær fyr­ir­liggj­andi kann­anir sem hafa nægi­lega mikið vægi til að spá fyrir um fylgi hvers fram­bjóð­enda meðal almenn­ings. Í kosn­inga­spánni eru áhrif svo­kall­aðra útlaga dempuð, það eru kann­anir sem lýsa ekki þýð­inu nógu vel. Sveifl­urnar á milli kosn­inga­spáa verða minni fyrir vikið.

Það var þess vegna nokkuð óvænt að sjá stuðn­ing við fram­boð Höllu Tóm­as­dóttur aukast hratt í síð­ustu kosn­inga­spám fyrir kosn­ingar. Nokkrir dagar höfðu liðið þar til Frétta­blaðið, Félags­vís­inda­stofnun og Gallup birtu kann­anir á fimmtu­dag og föstu­dag fyrir kosn­ingar. Halla hafði á þeim tíma fengið meiri byr undir báða vængi en hún hafði áður gert og var á föstu­dag komin með upp undir 20 pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni, nokkuð meira en Davíð Oddsson og Andri Snær Magnason, sem bit­ist höfðu um „annað sætið“ vik­urnar á undan.

Á sama tíma og fylgið við Höllu óx féll fylgið við Guðna Th. Jóhann­es­son. Erfitt er að full­yrða um að hér hafi fólk orðið afhuga Guðna og ákveðið að velja Höllu í stað­inn, því að þeim und­an­skildum var um sjö aðra fram­bjóð­endur að velja. Þau Guðni, Halla, Davíð og Andri Snær skiptu hins vegar nær allan tíman með sér um og yfir 90 pró­sent fylg­is­ins.

Nið­ur­stöður kosn­ing­anna voru því rök­rétt fram­hald af þeim fylg­is­sveiflum sem lesa má úr línu­rit­inu. Halla bætti við sig tölu­vert og tók mest af sínu auka­fylgi af Guðna, Andra og Davíð.

Var of værukær

Þegar litið er á kosn­inga­bar­áttu Guðna Th. Jóhann­es­sonar má segja að hún hafi verið nokk­urn­veg­inn eftir bók­inni. Guðni náði strax athygli kjós­enda, þrátt fyrir að kanónur á borð við Ólaf Ragnar Grímsson, sitj­andi for­seta, og Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefðu lýst yfir fram­boði. Guðni mæld­ist þrátt fyrir það með um 70 pró­sent fylgi, rúmum mán­uði fyrir kjör­dag.

Í þeim aðstæðum, þegar helstu skila­boðum og bar­áttu­málum hefur verið komið á fram­færi, munu flestir almanna­tenglar og kosn­inga­stjórar benda fram­bjóð­anda sínum á að halda sig frekar til hlés og halda fyr­ir­fram ákveð­inni dag­skrá. Óþarfi er að grípa til nokk­urra aðgerða. Fréttir af könn­unum, sem alltaf eru að fara að verða tölu­vert margar, munu sjá til þess að kynna fram­bjóð­and­ann. Ekkert er vin­sælla en vin­sæll fram­bjóð­andi.

En eins og Guðni hafði sjálfur spáð fyrir um þá tók fylgið að dala. Það féll ekki hratt í fyrstu og var lengst af yfir 60 pró­sent. En það hélt áfram að minnka og var komið undir 50 pró­sent í upp­hafi síð­ustu viku. „Ég hugsa að ég hafi orðið of væru­kær,“ sagði Guðni í kosn­inga­sjón­varpi RÚV um mið­nætti á kosn­inga­nótt þegar lín­urnar voru farnar að skýr­ast. Það kann að vera rétt grein­ing hjá Guðna en mestu fylg­is­sveifl­urnar mæld­ust hugs­an­lega of seint fyrir fram­boð hans að bregð­ast við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár