Telur stjórnvöld vinna gegn eigin markmiðum með hagræðingarkröfu á Hafró

For­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­unar segir að stjórn­völd gangi gegn eigin mark­miðum um efl­ingu haf- og umhverf­is­rann­sókna með því að gera sífellda hag­ræð­ing­ar­kröfu á Hafró. Hann segir stofn­un­ina sinna hættu­lega litlum grunn­rann­sóknum.

Sigurður Guð­jóns­son for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­unar telur stjórn­völd ganga gegn eigin mark­miðum um efl­ingu haf- og umhverf­is­rann­sókna með því að gera sífellda hag­ræð­ing­ar­kröfu til Hafró. „Líta verður á haf­rann­sóknir sem fjár­fest­ingu en ekki eyðslu á fjár­magni,“ segir Sigurður í for­stjóra­ávarpi sínu í árs­skýrslu stofn­un­ar­innar, sem gefin var út í dag.

Stofn­unin þurfti að ráð­ast í hag­ræð­ing­ar­að­gerðir í lok árs­ins 2019, sem Sigurður segir hafa verið erf­iðar. „Hag­ræð­ing­ar­að­gerðir sem þessar hafa óneit­an­lega mikil áhrif á starf­semi stofn­un­ar­innar, að minnsta kosti til skamms tíma litið. Engum dylst að þjóð­hags­leg og vís­inda­leg verð­mæti Haf­rann­sókna­stofn­unar byggja á mannauði hennar. Þekking og reynsla starfs­fólks stofn­un­ar­innar er ómet­an­leg og mik­il­vægt að tryggja að hún við­hald­ist,“ segir Sigurður.

Ráðast þurfti í þessar aðgerðir til þess að mæta slæmri fjár­hags­stöðu stofn­un­ar­innar sem var til­komin vegna greiðslu­falls Verk­efna­sjóðs sjáv­ar­út­vegs­ins, en það var sá opin­beri sjóður sem Haf­rann­sókna­stofnun sótti mest til. Hafði greiðslu­fall sjóðs­ins þau áhrif að veru­legur halli varð á rekstri Hafró árin 2018 og 2019.

Samkvæmt árs­skýrsl­unni nam varð 79,4 milljón króna halli á afkomu Hafró á síð­asta ári, sem skipti í 25,9 millj­óna króna afgang frá rekstri og 105 millj­óna króna halla á fjár­fest­inga­heim­ild, en farið var í tölu­verðar fjár­fest­ingar vegna flutn­inga stofn­un­ar­innar í Fornu­búðir í Hafn­ar­firði.

Grunnrannsóknum hættulega lítið sinnt

Sigurður segir að áfram sé unnið með ráðu­neyti og ráð­herra að því að leysa þann vanda sem varð vegna greiðslu­falls Verk­efna­sjóðs­ins, en gagn­rýnir flötu hag­ræð­ing­ar­kröf­una sem beint er að stofn­un­inni.

Hann segir nán­ast alla rek­star­fjár­muni stofn­un­ar­innar fara í grunn­vöktun á helstu umhverf­is­þáttum í haf­inu umhverfis Ísland og og vöktun nytja­stofna sjávar og í ám og vötnum. Grunn­rann­sóknum sé á sama tíma „hættu­lega lítið“ sinnt, sér­stak­lega á tímum hröð­ustu umhverf­is­breyt­inga sem við höfum upp­lifað.

Allra tap ef óvissa er í mælingum

„Nýting sjáv­ar­auð­linda byggir á sjálf­bærri nýt­ingu okkar nytja­stofna og mæl­ingar á afkasta­getu þeirra er nauð­syn­leg fjár­fest­ing. Ef slakað er á þarna, skapar það óvissu í mæl­ingum sem leiðir til þess að stofn­unin getum ekki ráð­lagt jafn mik­inn afla. Var­úð­ar­reglan mælir svo fyrir. Það þýðir beint tap fyrir þjóð­fé­lagið,“ segir Sigurður og bætir við að hag­ræð­ing­ar­krafa upp á tvö pró­sent á ári sé umtals­verð.


„[Í] til­felli Haf­rann­sókna­stofn­unar þýðir það lækkun í fjár­veit­ingu um 90 millj­ónir á ári sem tekur í, sér­stak­lega ef áfram er haldið ár eftir ár. Þetta er í beinni and­stöðu við auknar áherslur í haf­rann­sóknum. Þá kalla miklar umhverf­is­breyt­ingar, á auknar rann­sóknir og kostnað. Langstærsti hluti af rekstr­arfé stofn­un­ar­innar er varið í grunn­vöktun á umhverfi og fiski­stofnum. Stór hluti af rekstr­arfé er fastur kostn­aður. Til dæmis kostar grunn­rekstur skip­anna rúman fjórð­ung af rekstr­ar­fénu. Það er því ekki mikið rými til hag­ræð­ingar. Heppi­legt væri að Haf­rann­sókna­stofnun þyrfti ekki að sæta hag­ræð­ing­ar­kröfu,“ segir for­stjór­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár