Sagðist „hæddur og spottaður fyrir að nefna nafn Jesú Krists“ á sveitarstjórnarfundi

Tekist var á um trú­mál og lofts­lags­mál á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Múla­þingi á mið­viku­dag. Bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins afneit­aði lofts­lags­vís­indum og þakk­aði bæna­hópi í Reykja­vík fyrir að biðja fyrir Seyð­firð­ingum morg­un­inn áður en stærsta skriðan féll.

Frá bæjarstjórnarfundi í Múlaþingi í gær. Þröstur Jónsson bæjarfulltrúi Miðflokksins er fyrir miðri mynd og Jódís Skúladóttir bæjarfulltrúi VG í efstu röð til hægri.
Frá bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Múla­þingi í gær. Þröstur Jónsson bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins er fyrir miðri mynd og Jódís Skúla­dóttir bæj­ar­full­trúi VG í efstu röð til hægri. Mynd: Skjáskot

Minni­hluti sveit­ar­stjórn­ar­innar í Múla­þingi, nýju sam­ein­uðu sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­landi, virð­ist ekki ganga í miklum takti, miðað við umræður á auka­fundi sem hald­inn var vegna skriðu­fall­anna á Seyð­is­firði í gær. Þar tók­ust bæj­ar­full­trúar meðal ann­ars á um lofts­lags­vís­indi og trú­mál.

Þröstur Jónsson bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins nefndi í ræðu sinni á fund­inum að hann tryði því að bæna­hópur fólks í Reykja­vík hefði átt þátt í því að ekki varð mann­tjón í hörm­ung­unum í bænum. Hópurinn hefði að morgni föstu­dag­ins örlaga­ríka fyrir jól, er risa­vaxin skriða féll og olli gríð­ar­legu tjóni, beðið sér­stak­lega fyrir Seyð­firð­ingum.

„Ég trúi því að skap­ar­inn hafi kippt aðeins í spotta þar,“ sagði Þröstur.

Síðar á fund­inum gagn­rýndi hann svo Jódísi Skúla­dóttur, bæj­ar­full­trúa Vinstri grænna, fyrir að leggja til að Múlaþing hug­aði að því að vera í far­ar­broddi í lofts­lags­málum. Jódís sagði að skriðu­föllin í Seyð­is­firði, í kjöl­far for­dæma­lausrar úrkomu­á­kefðar dag­ana á undan, væru dæmi um afleið­ingar ham­fara­hlýn­unar.

Vís­inda­menn hafa bent á að þær breyt­ingar sem eru að verða á lofts­lagi jarðar kunni að leiða til þess að úrkomu­á­kefð auk­ist hér á landi á öld­inni, en á það er minnst í skýrslu Vís­inda­nefndar frá árinu 2018. Dagana 14.-18. des­em­ber síð­ast­lið­inn mæld­ist úrkoma á Seyð­is­firði 577,5 mm, sem er það mesta sem hefur mælst hér á landi á fimm daga tíma­bili frá upp­hafi mæl­inga. Síðan féll skriðan.

„Pólitísk vísindi en ekki vísindi“

„Ný og gömul gögn benda til þess að muni kólna en ekki hlýna næstu 30 árin. Það er verið að mis­nota aðstöðu sína hér til að koma þessu á fram­færi. Þetta eru póli­tísk vís­indi en ekki vís­indi,“ sagði Þröstur á fund­inum – og hafði áður sagt að hann teldi það ekki við hæfi að blanda „lofts­lagskvíða“ inn í umræðu um mál­efni Seyð­firð­inga, sem ættu við næg vanda­mál að etja.

[adspot]

Hildur Þór­is­dóttir bæj­ar­full­trúi Aust­ur­list­ans og Seyð­firð­ingur tók upp hansk­ann fyrir Jódísi og and­mælti þessum orðum Þrastar.

„Það er bláköld stað­reynd að við erum að horfa upp á breyt­ingar í veð­ur­kerf­inu og nátt­úru­ham­farir um allan heim sem má rekja með beinum hætti til hnatt­rænnar hlýn­unar. Vís­inda­menn hafa bent okkur á þetta í ára­tugi. Póli­tíkin hefur ekki hlustað af því það hefur ekki hentað stór­fyr­ir­tækjum,“ sagði Hildur og bætti við að ekki væri um að ræða gervi­vís­indi né póli­tík.

Sagðist ekki láta þagga niður í sér með þessum hætti

Jódís svar­aði síðan Þresti og sagð­ist telja að sér vegið með því að segja að hún væri í „póli­tískum blekk­ing­ar­leik.“

„Ég er lög­fræð­ingur með sér­hæf­ingu í umhverf­is­málum og starf­aði að þeim hjá Umhverf­is­stofnun. Ég læt ekki þagga niður í mér eða smætta umræð­una á þennan hátt. Þetta er gríð­ar­lega mik­il­vægt og þetta er af eitt af stóru mál­unum,“ sagði Jódís.[links]

„Talandi um vís­inda­legar stað­reyndir, þá læt ekki ein­hvern sem hefur mál sitt á því að það sé bæna­hring í Reykja­vík að þakka að ekki fór verr segja mér að ég sé að fara með þvælu,“ sagði Jódís einnig.

„Hæddur og spottaður“

„Jæja, þar kom að því að ég er hæddur og spott­aður fyrir að nefna nafn Jesú Krists,“ sagði Þröstur næst er hann tók til máls á fund­inum. Hann sagði það ekki koma sér á óvart, þar sem það stæði í Bibl­í­unni. Því næst sagð­ist hann ekki ætla að fara í „stór­deilur út af þessu“, en hvatti aðra bæj­ar­full­trúa til að kynna sér þau gögn sem væru að koma í ljós um „dvín­andi sól­a­r­á­hrif.“

Hann sagð­ist standa við það sem hann hefði sagt og end­ur­tók að jörðin myndi kólna, sem væru góð tíð­indi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár