876. spurningaþraut: Hér eru nokkrar landafræðispurningar og fáeinar aðrar líka

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að ofan and­að­ist á þessum degi fyrir tveim árum og varð and­lát hennar afdrifa­ríkt. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á þessum degi 1499 sneri portú­galskur skip­stjóri heim eftir fyrstu beinu sigl­ingu Evr­ópu­manna til Indlands. Hvað hét Portú­gal­inn?

2.  Hver er fjöl­menn­asta borgin í Hollandi?

3.  En hver skyldi vera næst fjöl­menn­ust?

4.  Meghan Markle og Harry Windsor eru her­toga­hjón, kennd við hér­aðið ... ja, hvað heitir það?

5.  Bournemouth, Brighton, Hull, Portsmouth og Southampton. Þetta eru allt borgir á Englandi og við eða nálægt sjáv­ar­síð­unni. En með til­liti til stað­setn­ingar, hver af þessum borgum á þá varla heima með hinum fjórum?

6.  Það er talið til sér­stakra tíð­inda í popp­sög­unni að á þessum degi árið 1983 hafi hljóm­sveit nokkur komið í fyrsta sinn fram í sjón­varpi í útlöndum án and­lits­farða sem hljóm­sveit­ar­með­limir báru alla jafna. Hvaða hljóm­sveit var þetta?

7.  Á þessum degi 1999 hóf göngu sína ný sjón­varps­stöð á Íslandi sem hefur nú gefið upp and­ann fyrir all­löngu en var vin­sæl árum saman, ekki síst þættir eins og 70 mín­útur. Hvað hét sjón­varps­stöðin?

8.  Á þessum degi árið 1793 var horn­steinn lagður að þing­húsi í ... hvaða landi?

9.  Á þessum degi árið 1066 lenti inn­rás­ar­her með útlenskan kon­ung í far­ar­broddi við ósa Humber-fljóts á Englandi og mar­ser­aði svo af stað til að freista þess að leggja undir sig England. Hverrar þjóðar var þessi inn­rás­ar­kóngur?

10.  Og hvað hét hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þetta er eitt af afmæl­is­börnum dags­ins, hann heldur upp á 46 ára afmælið sitt í dag. Hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Vasco da Gama.

2.  Amster­dam.

3.  Rott­er­dam.

4.  Sussex.

5.  Hull. Allar hinar borg­irnar eru á suð­ur­strönd­inni.

6.  KISS.

7.  PoppTví.

8.  Banda­ríkj­unum.

9.  Norskur.

10.  Haraldur harð­ráði.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ruth Bader Ginsburg Hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­unum.

Á neðri mynd­inni er Ronaldo, brasil­ískur fót­bolta­karl.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ylfa Lind Gylfadóttir skrifaði
    Hér vantar spurningar 1-5 og öll svör nema við auka spurningunum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár