Twitter bannar pólitískar auglýsingar

Upp­á­halds­sam­fé­lags­mið­ill for­seta Banda­ríkj­anna hefur ákveðið að banna póli­tískar aug­lýs­ingar. Það er skoðun stjórn­enda að boð­skapur eigi að vinna sér inn útbreiðslu, ekki kaupa hana. Facebook ætlar engu að breyta.

Jack Dorsey, forstjóri Twitter.
Jack Dorsey, for­stjóri Twitter. Mynd: EPA

Sam­fé­lags­miðl­aris­inn Twitter hefur ákveðið að banna póli­tískar aug­lýs­ingar. Þetta til­kynnti Jack Dorsey, for­stjóri Twitter, í stöðu­upp­færslu á Twitter í gær. Þar segir Dorsey að bannið eigi við alþjóð­lega, ekki bara í Banda­ríkj­unum. Það sé trú fyr­ir­tæk­is­ins að póli­tískur boð­skapur eigi að vinna sér inn útbreiðslu, en ekki kaupa hana.

Hlutverk sam­fé­lags­miðla í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum, þar sem hægt er að nýta þá til að dreifa meðal ann­ars röngum eða bjög­uðum upp­lýs­ingum eða póli­tískum áróðri sem á sér ekki fastar rætur í raun­veru­leik­anum, hefur stór­auk­ist á und­an­förnum árum sam­hliða því að hlut­verk sam­fé­lags­miðla á borð við Twitter og Facebook hefur orðið stærri hluti af dag­legum neyt­enda­veru­leika millj­arða manna um heim allan.

Dorsey útskýrði síðan ákvörð­un­ina í röð stöðu­upp­færslna þar sem hann sagði meðal ann­ars að með því að heim­ila greiðslu fyrir aukna útbreiðslu á póli­tískum skila­boðum væri verið að neyða skila­boðin upp á fólk sem hefði hvorki valið að fylgja við­kom­andi reikn­ingi né retweet-að skila­boðum af honum. Það eigi ekki að gera mála­miðlun með val not­enda um að nálg­ast slík skila­boð vegna pen­inga.

[adspot]Ned Segal, fjár­mála­stjóri Twitter, sagði í sam­tali við CNN að ákvörð­unin væri prinsipp ákvörðun, en ekki tekna á pen­inga­legum grunni.

Twitter er upp­á­halds­sam­fé­lags­mið­ill Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, sem notar mið­ill­inn oft á tíðum oft á dag til að miðla skoð­unum sínum á mönnum og mál­efnum á hátt sem aldrei áður hefur tíðkast hjá jafn valda­miklum stjórn­mála­manni. Það gerir hann meðal ann­ars til að koma skila­boðum sínum ómeng­uðum til fylgj­enda sinna, í stað þess að þau ber­ist í gegnum hefð­bundna fjöl­miðla, sem Trump treystir ekki og ásakar ítrekað um að vera óvini fólks­ins sem breiði út fals­fréttir. Notkun Trump á Twitter hefur verið í umræð­unni í for­vali Demókrata vegna for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum á næsta ári en hluti fram­bjóð­enda, meðal ann­ars Kamala Harris, hafa bent á að Trump, sem setur ítrekað fram rangar eða tæpar stað­hæf­ingar, brjóti gegn not­enda­skil­málum Twitter með slíkri hegðun og því eigi fyr­ir­tækið að loka reikn­ingi hans.

Facebook ætlar ekki að fylgja í fótspor Twitter

Sá sam­fé­lags­mið­ill sem hefur legið mest undir gagn­rýni vegna meintrar mis­notk­unar á honum í póli­tískum til­gangi er Facebook. Fyr­ir­tækið risa­vaxna til­kynnti í gær um enn eitt gríð­ar­lega arð­bæra árs­fjórð­ungin í rekstri sínum. Á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2019 nam hagn­aður Facebook 6,1 millj­arði Banda­ríkja­dala, eða um 760 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar er búist við að fjár­lög næsta árs á Íslandi verði um eitt þús­und millj­arðar króna. þ.e. öll eyðsla íslenska rík­is­ins. Megnið af tekju­aukn­ingu Facebook er vegna vax­andi aug­lýs­inga­tekna.

Mark Zuckerberg, stofn­andi og for­stjóri Facebook, sagði við kynn­ingu á upp­gjör­inu að það þyrfti að gæta var­úðar gagn­vart auk­inni reglu­setn­ingu gagn­vart póli­tískri orð­ræðu. Í lýð­ræð­is­ríki væri ekki rétt að einka­fyr­ir­tæki væru að rit­skoða stjórn­mála­menn eða fréttir. Hann myndi halda áfram að meta hvort það væri gagn­legt að leyfa póli­tískar aug­lýs­ingar á Facebook og enn sem komið er væri það hans skoðun að það væri betra að leyfa þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár