Engin niðurstaða um endurupptöku Geirfinnsmáls fyrr en á næsta ári

Nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu er ekki að vænta á þessu ári eins og von­ast hafði verið til. End­ur­upp­töku­nefnd bíður enn eftir gögnum í mál­inu og á meðan svo er fæst ekki nið­ur­staða í málið. Þetta stað­festir Björn L. Bergsson, for­maður end­ur­upp­töku­nefndar, við Kjarnann. End­ur­upp­töku­nefnd tekur end­an­lega ákvörðun um það hvort málið verði tekið upp að nýju.

Settur rík­is­sak­sókn­ari í mál­inu, Davíð Þór Björg­vins­son, hefur gefið það út að honum þyki rök fyrir því að mál Sævars Ciesielskis, Tryggva Rúnars Leifs­sonar, Alberts Klahns Skafta­sonar og Guðjóns Skarp­héð­ins­sonar verði tekin upp á nýjan leik. Hann mælti hvorki með né gegn því að taka upp mál Erlu Bolla­dóttur aftur og Kristján Viðar Við­ars­son fór ekki fram á end­ur­upp­töku máls síns.

Eftir að Davíð Þór hafði skilað sínu áliti fengu þau öll, eða ætt­ingjar þeirra, að skila inn umsögn um málið. Það gerðu allir áður en frestur til þess rann út í lok sept­em­ber.

End­ur­upp­töku­nefndin óskaði einnig eftir við­bót­ar­gögnum, sem starfs­hópur inn­an­rík­is­ráð­herra um Guð­mundar- og Geir­finns­málið hafði aflað þegar skýrsla var unnin um málið, en henni var skilað árið 2013. Björn sagði frá því í sam­tali við RÚV í októ­ber að stefnt væri að því að nið­ur­staða feng­ist fyrir ára­mót, en ekki væri hægt að fast­setja dag­setn­ingu meðan enn væri verið að afla gagna. Það er enn staðan, og Björn seg­ist ekki geta nefnt neina dag­setn­ingu sem miðað sé við, því nefndin sé háð öðrum um að fá gögn.

Sex­menn­ing­arnir voru öll dæmd í Hæsta­rétti árið 1980. Sævar var dæmdur í sautján ára fang­elsi og Kristján Viðar sextán ára, Tryggvi var dæmdur í þrettán ára fang­elsi og Guðjón tíu ára fang­elsi. Erla var dæmd í þriggja ára fang­elsi og Albert í árs fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár