Upplýsingaflæði til eldri innflytjenda ábótavant

Á fundi öld­unga­ráðs Reykja­vík­ur­borgar í dag kom fram að upp­lýs­inga­flæði til eldri inn­flytj­enda sé ábóta­vant.

Þær fáu rann­sóknir sem gerðar hafa verið á stöðu eldri inn­flytj­enda á Íslandi benda til þess að tungu­mála­örð­ug­leikar og skert upp­lýs­inga­flæði til eldri inn­flytj­enda geri þeim erfitt fyrir að sækja sér þá þjón­ustu sem þeir eiga rétt á. Hlut­falls­lega færri eldri inn­flytj­endur nýta sér þá þjón­ustu sem er í boði hjá félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna heldur en aðrir eldri íbúar.

Þetta kom fram á opnum fundi öld­unga­ráðs Reykja­vík­ur­borgar í morgun en þar voru mál­efni eldri inn­flytj­enda rædd.

[links]Reykja­vík­ur­borg er það sveit­ar­fé­lag sem tekur við flestum inn­flytj­endum á Íslandi. Inn­flytj­endum á Íslandi hefur farið fjölg­andi og hefur fjöldi þeirra tvö­fald­ast frá 2006. Í upp­hafi árs 2017 voru inn­flytj­endur á Íslandi 35.997 eða 10,6 pró­sent. Flestir inn­flytj­endur eru frá Póllandi eða 13.771 manns. Af þeim tæp­lega 36 þús­und inn­flytj­endum voru 1224 eldri en 67 ára árið 2017 eða 3,4 pró­sent. Inn­flytj­endur eldri en 60 ára eru ríf­lega 7 pró­sent af heild­ar­fjölda inn­flytj­enda.

[adspot]

Samkvæmt mann­fjölda­spá Hag­stof­unnar verða Íslend­ingar 452 þús­und árið 2066. Jafn­framt verða yfir 20 pró­sent lands­manna eldri en 65 ára árið 2039 og yfir 25 pró­sent árið 2057.

Stefna á að opna upplýsingamiðstöð fyrir innflytjendur

Til að eiga rétt á elli­líf­eyri þarf ein­stak­lingur að hafa búið hér á landi í minnsta kosti 3 ár á aldr­inum 16 til 67 ára og til að eiga rétt á fullum elli­líf­eyri þarf ein­stak­lingur að hafa búið á Íslandi í sam­tals 40 ár. Elli­líf­eyrir er reikn­aður út hlut­falls­lega eftir ára­fjölda búsetu og því myndi ein­stak­lingur sem hefur búið hér í 30 ár á þessum tíma fá 75 pró­sent af fullum elli­líf­eyri. Tölur sýna að flestir inn­flytj­endur flytj­ast til lands­ins til að vinna og eru þá yngri en 67 ára.

Margir flytja svo aftur til heima­lands­ins þegar þeir hafa náð 67 ára aldri, m.a. vegna þess að þeir hafa lítil rétt­indi hér á landi. Þórunn Svein­björns­dóttir, for­maður lands­sam­bands eldri borg­ara og full­trúi öld­unga­ráðs Reykja­vík­ur­borgar, velti því fyrir sér á fund­inum hvort búsetu­reglur til elli­líf­eyris séu úreltar í löndum eins og Íslandi þar sem vinnu­afl hefur vantað.

Í stefnu Reykja­vík­ur­borgar í málum inn­flytj­enda, flótta­fólks og hæl­is­leit­anda kemur fram að sveit­ar­fé­lagið ætli sér að opna upp­lýs­inga­mið­stöð fyrir inn­flytj­endur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á árinu 2018. Mið­stöðin mun bjóða upp á sér­tæka ráð­gjöf sem gengur þvert á verka­skipt­ingu ríkis og ein­stakra sveit­ar­fé­laga um borg­ara­rétt­indi og rík­is­stofn­ana. Markmið mið­stöðv­ar­innar verður að auð­velda aðgengi þessa hóps að upp­lýs­ingum og þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár