Helmingi færri innlagnir unglinga á Vogi

Ung­lingum sem sækja sér með­ferð á Vogi í fyrsta sinn hefur fækkað um meira en helm­ing síðan árið 2002. Það ár var nýgengi inn­lagna um 800 á hverja 100.000 íbúa en í fyrra voru þær komnar niður í 300.

Nýjum innlögnum unglinga á Vogi hefur fækkað um meira en helming síðan árið 2002.
Nýjum inn­lögnum ung­linga á Vogi hefur fækkað um meira en helm­ing síðan árið 2002. Mynd: RÚV

Inn­lögnum ung­linga á sjúkra­hús­inu Vogi hefur fækkað um helm­ing síðan árið 2002. Nýgengi ungra fíkla á sjúkra­hús­inu varð mest árið það ár og fór þá í rúm­lega 800 á hverja 100.000 íbúa á aldr­inum 15 til 19 ára. Síðan hefur dregið stöðugt úr nýgengi inn­lagna þeirra sem eru yngri en 20 ára og í fyrra var það komið niður í tæp 300 á sama mæli­kvarða. Þetta kemur fram í grein Þórarins Tyrf­ings­sonar, for­stjóri á Vogi, í grein í síð­asta Lækna­blaði.

Þar segir að á árunum 1996 til 2015 hafi 2.853 ein­stak­lingar, 19 ára eða yngri, leitað sér með­ferðar á Vogi í fyrsta sinn. Hlutfall kvenna og stúlkna var um 38 pró­sent. Á sama ára­bili fjöldi inn­rit­ana fyrir sama ald­urs­hóp 6.340 tals­ins og er því ljóst að end­ur­komur eru nokkuð tíðar. Það vímu­efni sem gerir ung­ling­ana helst félags­lega óvirka er kanna­bis en þeim staf­aði einnig hætta af amfetamíni, e-pillu, mor­fíni og vímu­efna­neyslu í æð.

Þórarinn segir í grein sinni að árið 1977, þegar SÁÁ var stofnað, hafi ung­linga­drykkja verið vel þekkt vanda­mál á Íslandi. Ung­lingar á aldr­inum 15 til 19 ára hafi snemma byrjað að koma á Vog til með­ferðar. Á níunda ára­tugnum hafi ung­lingum í með­ferð fjölgað jafnt og þétt og kanna­bis­neysla orðið algeng­ari. Á árunum 1995 til 2000 juk­ust inn­rit­anir áfengis- og vímu­efna­sjúk­linga á aldr­inum 15 til 19 ára á Vog skyndi­lega úr rúm­lega 100 á ári í rúm­lega 300 árlega á þessum aldri.

Neysla jókst með harðari efnum

„Upp úr 1995 fór neysla vímu­efna hratt vax­andi á Íslandi og hélst mikil fram yfir alda­mót. Kókaín kom til Reykja­víkur 1999 og vímu­efna­sjúk­lingar sem sprautað höfðu amfetamíni í æð sóttu í vax­andi mæli í mor­fín sem þeir leystu upp úr forða­töflum ætl­uðum verkja­sjúk­lingum,“ segir Þórarinn í grein sinni. „Ástandið fór hratt versn­andi en átak­an­leg­ast var þó að áður óþekktur fjöldi ung­menna 19 ára og yngri rataði í vímu­efna­vanda. Ung­lingar höfðu alla tíð verið hluti af sjúk­linga­hópnum hjá SÁÁ en svo brá við rétt fyrir síð­ustu alda­mót að fjöldi ungu ein­stak­ling­anna sem lagð­ist inn á Sjúkra­húsið Vog ríf­lega tvö­fald­að­ist árlega.“

Rótin segir Vog ekki henta börnum og unglingum

SÁÁ brást við auknum fjölda inn­lagna ung­linga eftir árið 1999 með því að byggja sér­staka deild á Vogi, sem í dag­legu tali er kölluð „Bangsa­deildin“, og göngu­deild­ar­þjón­usta var aukin.

Rótin, félag um mál­efni kvenna með áfengis- og fíkni­vanda, óskaði árið 2014 eftir áliti umboðs­manns barna um aðbúnað barna og ung­linga á Vogi. Að mati félags­ins hent­aði sjúkra­húsið ekki fyrir þann ald­urs­hóp.

Guðrún Ebba Ólafs­dóttir, ein af for­svars­mönnum Rót­ar­innar, sagði í sam­tali við RÚV í októ­ber árið 2014 að á Vogi séu allt of mörg dæmi um óharn­aða ung­linga sem hittir fólk þar sem var í harð­ari neyslu en það sjálft. Þá hafi félagið heyrt um menn innan sjúkra­húss­ins sem not­færi sér ungar stúlkur og drengi. Þá benti hún á lög sem segja að börn hafi rétt á að hafa for­eldra eða aðra nána vanda­menn hjá sér ef þau eru á sjúkra­húsi eða heil­brigð­is­stofnun.

Í svari umboðs­manns barna við erindi Rót­ar­innar haustið 2014 sagði að ekki hafi verið talin ástæða til að hafa áhyggjur af aðbún­aði barna á ung­linga­deild­inni á Vogi. Þó sé rétt að taka fram að emb­ættið hafi ekki sér­þekk­ingu til að meta það fag­lega starf sem þar fer fram. SÁÁ brást einnig við gagn­rýni Rót­ar­innar á sínum tíma og vís­aði henni alfarið á bug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár