Sjálfsögð kurteisi að ræða við samstarfsfólk um að taka RÚV af auglýsingamarkaði

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir að allt tal um að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði án þess að tryggja tekjur í stað­inn sé í raun tal um að skera starf­sem­ina umfangs­mikið niður.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Kolbeinn Óttarson Proppé, þingmaður Vinstri grænna.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og Kolbeinn Óttarson Proppé, þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Samsett.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir að allt tal um að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði án þess að tryggja þeim tekjur í stað­inn sé í raun tal um að skera starf­sem­ina umfanga­s­mikið niður þar sem aug­lýs­ingar standi undir einum þriðja af tekjum RÚV. Hann vísar þar til ummæla Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, um að hún stefni á leggja fyrir rík­is­stjórn til­lögu um að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði.

Vill hækka útvarpsgjald til að bæta upp tapið

Frétta­blaðið greinir frá því í dag að Lilja stefni á að taka Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði en að þær fyr­ir­ætl­anir hafi ekki verið kynntar rík­is­stjórn­inni með form­legum hætti. „Það kemur að því. Ég ligg núna undir feldi og er að skoða hvernig þetta sé best gert. Ég held að umræða um málið sé mik­il­væg og að þetta sé best gert í skrefum,“ segir Lilja um hvenær hún muni kynna fyr­ir­ætl­anir sínir fyrir rík­is­stjórn.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir það koma vel til greina að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði í sam­tali við Frétta­blaðið. Hún vill leggja til að það verði skoðað sér­stak­lega hvaða áhrif það myndi hafa á íslenskan aug­lýs­inga­markað. Hvort að þeir rúmir tveir millj­arðar sem Rík­is­út­varpið hafi í tekjur af aug­lýs­inga­sölu muni skipt­ast yfir hina inn­lendur miðl­ana eða fara annað.

Auk þess seg­ist Katrín vilja að RÚV væri bætt aug­lýs­ingatapið með því að hækka útvarps­gjaldið en tekur fram að henni hugn­ist ekki að hafa almanna­fjöl­mið­ill í fjár­lögum.

Kurteist að ræða fyrst við þingmenn

Kolbeinn Proppé tjáði sig um fyr­ir­ætl­anir Lilju í Facebook-færslu í morgun en hann segir að aug­lýs­ingar standa undir einum þriðja af tekjum RÚV og að allt tal um að hætta þeim án þess að tryggja tekjur í stað­inn sé því í raun tal um að skera starf­sem­ina umfangs­mikið niður.

„Ekkert er að finna í stjórn­ar­sátt­mála um þessi mál og spyrja má með atkvæðum hverra ætl­unin sé að ná því fram? Það er sjálf­sagt að ræða stöðu RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði, en slík umræða verður að hefj­ast á því hvernig tekjur þess verða tryggðar, ekki er ég til umræðu um nið­ur­skurð eða að setja RÚV á fjár­lög,“ segir Kolbeinn.

Hann segir jafn­framt að það sé sjálf­sögð kurt­eisi að ræða fyrst við sam­starfs­menn áður en þessar fyr­ir­ætl­anir séu boð­aðar opin­ber­lega þar sem atkvæði þing­manna séu jú það sem á end­anum ráði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár