Lýsa yfir vantrausti á morgun og vilja kosningar strax

Stjórn­ar­and­staðan ætlar að leggja fram til­lögu um þing­rof, van­traust og kosn­ingar á þingi á morgun eða hinn. Alþingi verður und­ir­lagt af aflands­málum á morgun. Sig­mundur og Bjarni ætla báðir að mæta í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir.

Stjórn­ar­and­staðan ætlar að leggja fram til­lögu um van­traust, þing­rof og kosn­ingar á Alþingi á morgun eða hinn. Full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar funda í fyrra­málið, en þing kemur saman klukkan 15 á morgun og hefst dag­skrá á óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra verða báðir til and­svara.

Lítið annað er á dag­skrá þings­ins á morgun, að und­ar­skildum þremur fyr­ir­spurnum, sem snúa að barka­ígræðslum, met­an­fram­leiðslu og tak­mörk­unum á plast­um­búðum.

Alþingi undirlagt á morgun

Viðbúið er að stjórn­ar­and­staðan nýti sér dag­skrár­lið­inn fund­ar­stjórn for­seta til að ræða við for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra um aflands­fé­laga­málin eftir afhjúpun í Kast­ljós­þætti kvölds­ins sem unn­inn var í sam­starfi við Reykja­vik Media og alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna. Því má gera ráð fyrir að þing­fundur standi fram undir kvöld eða lengur.

Búið er að boða til mót­mæla á Aust­ur­velli klukkan 17 á morgun. Mikill fjöldi hefur boðað komu sína.

Kjarninn hefur reynt að ná tali af for­ystu og þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kvöld, án árang­urs.

Sigmundur á að stíga til hliðar

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, væntir þess að til­laga um van­traust, þing­rof og kosn­ingar verði dreift til þing­manna á morgun.

„Ég held að eftir kvöldið, eftir það sem hefur komið fram um hvernig Sig­mundur afsal­aði sér sínum hlut í félag­inu degi áður en lög gengu í gildi, þar sem hann reyndi að hylma yfir sann­leik­ann í við­tal­inu sem var sýnt úr, þá hefði ég talið eðli­legt að hann stigi til hliðar,” segir hún.

Tillaga stjórn­ar­and­stöð­unnar snýr að for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og þar með rík­is­stjórn­inni allri. Katrín segir að ekki megi gleyma því að tveir aðrir ráð­herrar hafi verið afhjúpaðir, þó að þeirra mál séu umfangs­minni heldur en Sig­mundar. „Það er samt ljóst að þau héldu líka upp­lýs­ingum leyndum.”

Spurð hvort að mögu­leg afsögn Sig­mundar myndi hafa áhrif á til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar segir Katrín að þá þurfi að skoða stöð­una í því ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár