Mikill hagnaður hjá norsku bönkunum í fyrra

Líkt og íslensku bank­arnir skil­uðu norskir bankar miklum hagn­aði af starf­semi sinni í fyrra. Búist er við áfram­hald­andi hagn­aði sam­hliða hærri vöxtum.

Höfuðstöðvar DNB í Osló, Noregi.
Höf­uð­stöðvar DNB í Osló, Noregi. Mynd: Úr safni

Norska banka­kerfið skil­aði að öllum lík­indum meiri hagn­aði í fyrra en hið íslenska, ef miðað er við lands­fram­leiðslu ríkj­anna tveggja. Hagnaður stærsta banka lands­ins, DNB, er met­inn á 360 millj­arða íslenskra króna, en búist er við að rekstur hans bæt­ist enn frekar í kjöl­far, meðal ann­ars vegna stýri­vaxta­hækk­ana þar í landi.

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um skil­uðu þrír stærstu bank­arnir hér­lendis sam­tals 81 millj­arðs króna hagnað í fyrra, en það er mesti hagn­að­ur­inn sem mælst hefur hjá þeim í sjö ár. Ef miðað er við áætl­anir um að hag­vöxtur hafi verið 4,1 pró­sent í fyrra má gera ráð fyrir að hagn­að­ur­inn hafi numið 2,5 pró­sentum af lands­fram­leiðslu.

Á vef hag­stofu Noregs, SSB, má finna rekstr­ar­tölur frá norska banka­kerf­inu. Hagn­að­ar­tölur eftir skatt eru þó ekki aðgengi­legar fyrir síð­ustu árin, en hægt er að áætla þær út frá með­al­skatt­byrði bank­anna á árunum á undan. Á mynd hér að neðan má svo sjá hagnað íslensku og norsku bank­anna sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu ríkj­anna tveggja.

Samkvæmt mynd­inni er áætl­aður hagn­aður norska banka­kerf­is­ins senni­lega um helm­ingi meiri en á Íslandi, ef tekið er til­lit til stærðar hag­kerf­anna beggja. Hagnaður íslensku bank­anna hefur verið mun minni að umfangi en hjá þeim norsku síð­ustu sjö árin, en á árunum 2012-2015 var því öfugt farið.

Aukið svigrúm vegna hærri vaxta

Stærsti við­skipta­banki Noregs, DNB, skil­aði frá sér rekstr­ar­nið­ur­stöðum fyrir árið 2021 á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku. Samkvæmt þeim hagn­að­ist bank­inn um rúma 25 millj­arða norskra króna af starf­semi sinni, en það jafn­gildir um 360 millj­örðum íslenskra króna.

Bankinn náði þó ekki eigin mark­miði um 12 pró­senta ávöxtun eigin fjár, en hún nam 10,7 pró­sentum á árinu. Í nýbirtri fjár­festa­til­kynn­ingu stefndi hann hins vegar að því að ná mark­mið­innu á næsta ári, vegna batn­andi mark­aðs­skil­yrða.

Bankinn nefnir sér­stak­lega fyr­ir­hug­aðar stýri­vaxta­hækk­anir á árinu sem ástæðu fyrir aukna ávöxtun eigin fjár, en hann segir þær geta leitt til meiri tekna af útlána­starf­semi sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár