Útlit fyrir að ferðamenn verði 1,5 milljón talsins á næsta ári

Miðað við far­þeg­a­spá Icelandair, aukin umsvif WOW Air og umsvif ann­arra flug­fé­laga þá má búast við að ferða­menn verði um 1,5 milljón tals­ins á Íslandi árið 2016. Frá þessu greinir frétta- og ferða­síðan Túristi.is í dag. Í umfjöllun túrista er rýnt í umsvif flug­fé­laga og áætl­anir þeirra fyrir næsta ár heim­færðar á heild­ar­fjölda ferða­manna.

Í síð­ustu viku til­kynntu for­svars­menn Icelandair að þeir áformi að far­þegum félags­ins fjölgi um 15 pró­sent á næsta ári, sem er álíka vöxtur og árið á undan. Icelandair stendur undir nærri tveimur af hverjum þremur ferðum til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli og hefur erlendum ferða­mönnum hér­lendis fjölgað hlut­falls­lega nokkru meira en aukn­ingin hefur verið hjá Icelandair, segir í umfjöllun Túrista. „Á þessu ári fjölgar far­þegum Icelandair um 17 pró­sent en eins og áður segir lítur út fyrir að erlendum ferða­mönnum fjölgi um 27 pró­sent í ár. Far­þeg­a­spá Icelandair er því góð vís­bend­ing um hversu mikið erlendum ferða­mönnum muni fjölga og ef tengslin milli fjölda far­þega hjá Icelandair og fjölda ferða­manna hald­ast nokkuð óbreytt má búast við að ferða­menn hér landi verði um 1,5 milljón á næsta ári. Sjö árum fyrr en sér­fræð­ingar Boston Consulting Group spáðu fyrir um í hitti­fyrra. Fyrr í ár spáði Lands­bank­inn því að þessu marki yrði náð árið 2017.“

Miðað við fjölda túrista það sem af er ári þá má gera ráð fyrir að þeir verði um 1,3 milljón tals­ins í ár, sam­an­borið við tæp­lega milljón í fyrra.

Samkvæmt útreikn­ingum Túrista, og að því gefnu að skipt­ing milli far­þega­hópa hald­ist svipuð í ár og á því næsta, þá munu Icelandair flytja um 630 þús­und erlenda ferða­menn til Íslands á næsta ári, eða 42 pró­sent þeirra ferða­manna sem áætla má að leggi leið sína þá. WOW Air, annað umsvifa­mesta flug­fé­lagið á Kefla­vík­ur­flug­velli, gerir auk þess aráð fyrir að stækka flot­ann um helm­ing. Túristi áætlar að félagið muni flytja að lág­marki um 200 þús­und erlenda ferða­menn til Íslands á næsta ári.

„Ef áform íslensku félag­anna tveggja ganga eftir þá munu þau fjölga erlendum ferða­mönnum hér á næsta ári um a.m.k. hund­rað og þrjá­tíu þús­und. Öll þau erlendu flug­fé­lög sem hingað fljúga þurfa þá sam­an­lagt að flytja 110.000 fleiri erlenda ferða­menn hingað til lands á næsta ári svo heild­ar­ferða­manna­fjöld­inn verði 1,5 millj­ónir og ef gert er ráð fyrir að fjöldi þeirra sem koma með ferjum hald­ist óbreyttur,“ segir í ítar­legri umfjöllun Túrista.

Umfjöllun Túrista í heild má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár