Karolina Fund: Söngvaglóð

Söng­konan og söng­kenn­ar­inn Elísabet Erlings­dóttir var þekkt fyrir frum­flutn­ing íslenskra nútíma­verka. Hún var langt komin með útgáfu sem kall­ast Söngvaglóð þegar hún lést árið 2014. Dætur hennar, Anna Rún og Hrafn­hildur, tóku við og stefna að útgáfu.

Á Söngvaglóð er að finna upp­tökur af söng Elísa­betar Erlings­dóttur, gerðar af Rík­is­út­varp­inu, á árunum 1971- 87, sam­tals 4 diskar. Hún átti langan og far­sælan feril sem söng­kona og var sér­stak­lega þekkt fyrir frum­flutn­ing sinn á verkum íslenskra nútímatón­skálda auk þess að vera einn atkvæða­mesti söng­kenn­ari lands­ins. Dætur Elísa­betar, Anna Rún og Hrafn­hildur, stefna að útgáfu á Söngvaglóð 29. mars næst­kom­andi og leita nú til vel­unn­ara til að ljúka verk­inu.

Hvernig varð hug­myndin að verk­efn­inu til?
„Móðir okkar, Elísabet Erlings­dóttir var langt komin með að vinna að útgáfu þess­ara geisla­diska þegar hún lést árið 2014. Hún var búin að hlusta á flestar upp­tökur Rík­is­út­varps­ins af söng sínum sem gerðar voru á 20 ára tíma­bili, frá 1969 - 1989. Einnig hafði hún gert drög að upp­setn­ingu verka á diska og lagt mikla vinnu í þýð­ingar íslensku ljóð­anna yfir á ensku og þýsku. Við systur lof­uðum að taka við og gefa efnið út.

Í okkar huga snýst þetta um að bjarga menn­ing­ar­verð­mætum með því að færa upp­tök­urnar yfir á form sem hægt er að hlusta á í dag. Margar af þessum upp­tökum eru ein­stakar, sér­stak­lega á þeim íslensku verkum sem móðir okkar frum­flutti.

Það var mikið verk að velja hvað átti að fara á disk­ana því gíf­ur­lega mikið magn afupp­tökum er til með Elísa­betu. Við ákváðum að þessu sinni að ein­blína á íslensk sönglög (2 diskar) sem hún kenndi mikið, frum­flutt verk sem samin voru með hana í huga og svo erlenda laga­flokka og sönglög sem henni þótti vænt um. Stærri kór­verk og verk með hljóm­sveitum komust því miður ekki fyrir í þess­ari útgáfu, en von­andi mun sú útgáfa ein­hvern tím­ann líta dags­ins ljós.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár