Sendi tvö lög á upptökustjóra í hetjukasti

Shadows er fyrsta vín­yl­plata Aldísar Fjólu og hún safnar nú fyrir útgáfu hennar á Karolina fund.

Aldís Fjóla er tón­list­ar­kona frá Borg­ar­firði eystra sem hefur komið víða við sem söng­kona, laga­höf­undur og söng­kenn­ari. Nú vinnur hún að sinni fyrstu sóló­plötu með frum­sömdum lögum eftir hana og Stefán Örn Gunn­laugs­son, tón­list­ar­mann og upp­töku­stjóra.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Mig hefur alltaf langað til að gefa út mitt eigið efni en var lengi svo hrædd um að leyfa fólki að hlusta á eitt­hvað af mínu efni. Í ein­hverju hetjukasti fyrir nokkrum árum sendi ég tvö lög á Stefán Örn Gunn­laugs­son, upp­töku­stjóra.

[adspot]Ég var búin að fylgj­ast með honum svo lengi og allt sem hann hefur gert hefur svo fal­legan og ein­stakan hljóm. Ég var alveg skít­hrædd en ég fékk svar til­baka þar sem hann var til í að taka þetta upp og þannig byrj­aði þetta ævin­týri. Við höfum nú tekið upp 10 frum­samin lög og meiri­hluta þeirra semjum við saman í stúd­íó­inu. Draum­ur­inn hefur alltaf verið að halda á vín­yl­plötu og þannig vakn­aði hug­mynd um að henda af stað verk­efni þar sem fólk getur keypt sér vín­yl­plötu og miða á útgáfu­tón­leik­ana mína.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þemað í text­unum mínum er mjög per­sónu­legt en ég vona að hlust­endur geti séð sig í þeim og tengi við það sem þeir heyra. Ég er gríð­ar­lega stolt af því að hafa komið öllu þessu frá mér og tón­list er heilandi fyrir mér. Ég gæti ekki lifað án þess að hlusta, syngja eða skapað tón­list og í þessu skrýtna ástandi sem við erum öll í núna er það tón­list sem bjargar algjör­lega geð­heils­unni. Þannig að platan er nokk­urs konar upp­gjör við fullt af hlutum sem hafa verið algjör­lega grafin inn í mér og ótrú­lega gott að koma þeim frá mér.

Það er ótrú­lega athygl­is­vert að vinna í draumum í þessu ástandi sem allur heim­ur­inn er í núna, en mér finnst svo spenn­andi að sjá hversu mikið tón­list er að hjálpa fólki að kom­ast í gegnum þetta ein­kenni­lega tíma­bil og ég vona að tón­listin mín gleðji ein­hvern eins mikið og mig.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Hægt er að fylgj­ast með Aldísi Fjólu á eft­ir­far­andi miðlum:
Spotify: Aldís Fjóla
Facebook: Aldís Fjóla
Instagram: aldisfjolamusic

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár