Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, sem verið hefur formaður Bændasamtaka Íslands frá árinu 2013, hefur verið ráðinn svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi.
Sigurgeir Sindri er búfræðingur að mennt, hefur stundað nám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst og meðal annars starfað sem stundakennari við bændadeild Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hann tekur við starfinu af Eyjólfi Vilberg Gunnarssyni sem hefur tekið við sem forstöðumaður bíla- og tækjafjármögnunar Arion banka. Sigurgeir Sindri mun hefja störf hjá bankanum 1. apríl, samkvæmt tilkynningu.
Sigurgeir hefur samhliða störfum sem formaður Bændasamtakana á undanförnum árum rekið bú sitt að Bakkakoti í Borgarbyggð. Í tilkynningu frá Arion banka segir að hann hafi setið í fjölmörgum stjórnum og nefndum um landbúnað og matvælaframleiðslu. „Má þar nefna verðlagsnefnd búvara, framkvæmdanefnd búvörusamninga, stjórn Matís ohf. og formennsku í Landssamtökum sauðfjárbænda. Einnig hefur Sigurgeir Sindri verið stjórnarformaður Hótels Sögu og í stjórn Bændahallarinnar ehf.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir