Ísland heldur áfram að falla á lista yfir fjölmiðlafrelsi

Hin Norð­ur­löndin raða sér í fjögur efstu sætin á lista yfir þau lönd þar sem mest fjöl­miðla­frelsi ríkir. Ísland hefur fallið hægt og bít­andi niður list­ann á und­an­förnum árum og er nú í 15. sæti.

Ísland fellur um eitt sæti milli ára á lista Reporters without boarders, eða Blaða­manna án landamæra, um fjöl­miðla­frelsi. Ísland er nú í 15. sæti á list­anum en var í sæti 14 í fyrra.

Nor­egur skipar efsta sæt­ið, Finn­land er í öðru sæti, Danmörk í því þriðja og Svíþjóð í fjórða sæti. Í fyrra voru Noregur og Finnland í sömu sætum en Svíþjóð í þriðja og Danmörk í því fimmta. Hin Norð­ur­löndin skipa því fjögur efstu sætin yfir þau lönd sem hafa mest fjöl­miðla­frelsi á meðan að Ísland fellur niður list­ann.

Alls hefur Ísland færst niður um fimm sæti á list­anum á tveimur árum, en landið sat í 10. sæti árið 2017.

Ekki er að finna ítar­­lega grein­ingu um for­­sendur sem liggja að baki mat­inu en í stuttri sam­an­­tekt sam­tak­anna um Ísland segir þó að aðstæður blaða­manna á land­inu hafi versnað frá árinu 2012 vegna þess að sam­skipti milli stjórn­mála­manna og fjöl­miðla hafi súrn­að. Það er sama rök­semd­ar­færsla og var færð fyrir versn­andi ástandi í umfjöllun sam­tak­anna í fyrra og hitteð­fyrra.

[adspot]Þar er einnig gert tals­vert úr metn­að­­ar­­fullri þings­á­­lykt­un­­ar­til­lögu sem sam­­þykkt var 2010 um að gera Ísland að for­yst­u­­ríki í vernd upp­­­ljóstr­­ara, gagn­­sæ­is, tján­ing­ar­frelsis og fjöl­miðla­frels­­is.

Ísland með tvöfalt hærri einkunn en Noregur

Í úttekt­inni er 180 löndum og svæðum raðað upp í röð eftir fjöl­miðla­frelsi. Hún byggir á því að sér­fræð­ingar svara spurn­inga­list­anum sem gerður er af sam­tök­un­um. Þau svör eru síðan greind og lönd­unum gefin ein­kunn. Því lægri sem hún er, því meira er fjöl­miðla­frels­ið. Nor­egur fær til að mynda ein­kunn­ina 7,84 og Finn­land, Sví­þjóð og Dan­mörk fá öllu ein­kunn sem er 9,25 eða lægri.

Ísland fær hins vegar 15,12 og stiga­fjöldi lands­ins eykst um 0,41 á milli ára. Það þýðir að ein­kunn Nor­egs er um helm­ingur af ein­kunn Íslands.

Norð­­ur­-Kór­ea, sem vermdi neðsta sæti list­ans árum, komst upp í næst neðsta sætið í fyrra þegar landið hafði sæta­skipti Túrk­menistan. Norð­ur­-Kórea end­ur­heimtir hins vegar botns­ætið í ár og Túrk­menar setj­ast í næst sæti við, eða í sæti 179. Þar fyrir ofan eru Víetnam, Djibútí, og Eritrea.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár