Margföld eftirspurn eftir bréfum í Reitum en bankarnir halda samt enn á stórum hlut

Þrátt fyrir að fjór­föld umfram­eft­ir­spurn hafi verið eftir hlutafé í Reitum í útboði sem er nýlokið seldi Arion banki, sem var stærsti eig­andi félags­ins og sá um útboðið, ein­ungis 13,25 pró­sent af hlut sínum í félag­inu. Bankinn hélt eftir 8,7 pró­sent hlut. Lands­bank­inn, sem á 17,7 pró­sent hlut í Reitum, og Íslands­banki, sem á 3,9 pró­sent hlut, seldu ekk­ert af sínu hlutafé í umræddu útboði.

Þetta hefur vakið tölu­verða athygli þar sem yfir­lýst stefna allra við­skipta­bank­anna er að selja eignir í óskyldum rekstri sem fyrst. Reitir hafa verið í fangi við­skipta­bank­anna frá því síðla árs 2009.

Tóku þátt í hlutafjáraukningu í desember


Í hluta­fjár­út­boð­inu var 13,25 pró­sent af heild­ar­hlutafé í Reitum til sölu. Arion banki var eig­andi þess alls. Með­al­gengið í útboð­inu var tæp­lega 63,9 krónur á hlut. Heild­ar­sölu­and­virði útboðs­ins var því tæp­lega 6,4 millj­arðar króna.

Mun meiri eft­ir­spurn var eftir hlutum í Reitum en fram­boð. Alls bár­ust til­boð upp á 25,5 millj­arða króna. Því var umfram­eft­ir­spurnin fjór­föld.

Útboðið hefur átt sér nokkurn aðdrang­anda. Í des­em­ber 2014 var hlutafé í Reitum aukið um sam­tals 17 millj­aða króna. Sú hluta­fjár­aukn­ing fór fram á geng­inu 51,43 krónur á hlut. Þeir sem keyptu hluti þá fengu því að kaupa á um 80 pró­sent þess verðs sem fjár­festum bauðst í útboð­inu.

Allir við­skipta­bank­arnir: Arion banki, Lands­bank­inn og Íslands­banki keyptu nýtt hlutafé í aukn­ing­unni. Alls keyptu eldri eig­endur Reita hlutafé fyrir um fimm millj­arða kóna. Þeir eru að langstærstu leyti ofan­greindir bankar.

Yfirlýst stefna að selja


Bæði þáttakan í hluta­fjár­aukn­ing­unni, og það hversu lít­ill hluti af eign við­skipta­bank­anna var seldur í útboð­inu, hafa vakið tölu­verða athygli. Yfirlýst stefna allra við­skipta­bank­anna er enda að selja eignir í óskyldum rekstri sem fyrst. Í starfs­reglum Eigna­bjargs, dótt­ur­fé­lags Arion banka sem heldur á hlut hans í Reitum, segir að félagið skuli „eftir fremsta megni haga því svo að eigna­halds­tími þess á fyr­ir­tækjum í eigu félags­ins vari í eins skamman tíma og hægt er“.

Íslands­banki hefur gefið það út opin­ber­lega að hann leit­ist við að selja eignir í óskyldum rekstri enda sé „ekki stefna bank­ans að eiga slíkar eignir til lengri tíma“. Í útgef­inni stefnu Lands­bank­ans um sölu fulln­ustu­eigna segir að stefnt sé að því að selja þær „eins fljótt og unnt er að teknu til­liti til mark­aðs­að­stæðna“.

Auk þess er eign­ar­hald bank­anna á Reitum skil­yrt sátt sem þeir, og þrotabú Glitnis, gerðu við Sam­keppn­is­eft­ir­litið 30. apríl 2010. Samkvæmt henni veitti eft­ir­litið þeim tíma­frest til að minnka eign­ar­hald sitt í Reitum. Um þessa sátt, og hvernig henni hefur verið fylgt eftir, segir í skrán­ing­ar­lýs­ingu Reita hún hafi að stórum hluta gengið eftir með „þynn­ingu við end­ur­fjár­mögnun útgef­anda í árs­lok 2014 og með sölu þeirra á hluta­bréfum í kjöl­far end­ur­fjár­mögn­unar. Því til við­bótar minnkar eign­ar­haldið í fyr­ir­hug­uðu útboði sem verð­bréfa­lýs­ing þessi tekur til. Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um frek­ari sölu­skyldu á hlutum í útgef­anda. Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvort og þá hvenær eða með hvaða hætti selj­andi í útboð­inu eða aðrir í hópi stærstu hlut­hafa hans áformi að selja þá eign­ar­hluti sem þeir munu eiga eftir að útboð­inu lýkur.“

[quote font="0" align="right"]Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, seg­ist ekk­ert geta tjáð sig nánar um málið umfram það sem sem fram kemur í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni. Þar segir að „tíma­tak­mörk á sölu eign­ar­hluta í útgef­anda [Reitum] sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur veitt aðilum að sátt[...]yrði fram­lengd til 31. maí 2015“. Páll Gunnar vildi ekki tjá sig um hvort ein­hver við­bótar sölu­skylda hvíldi á við­skipta­bönk­unum þremur fram að þeim tíma­tak­mörk­unum.[/quote]

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, seg­ist ekk­ert geta tjáð sig nánar um málið umfram það sem sem fram kemur í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni. Þar segir að „tíma­tak­mörk á sölu eign­ar­hluta í útgef­anda [Reitum] sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur veitt aðilum að sátt[...]yrði fram­lengd til 31. maí 2015“. Páll Gunnar vildi ekki tjá sig um hvort ein­hver við­bótar sölu­skylda hvíldi á við­skipta­bönk­unum þremur fram að þeim tíma­tak­mörk­unum.

Vilja taka mið af aðstæðum á markaði


Í ljósi þessa spurði Kjarninn við­skipta­bank­anna þrjá hvað hafi valdið því að þeir seldu ekki hluti í útboð­inu.

Guðný Helga Her­berts­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Íslands­banka, svar­aði því til að umsjón­ar­að­ili útboðs­ins, Arion banki, hafi ekki óskað eftir því að hlutur Íslands­banka yrði seldur í útboð­inu. „Álita­efni er snúa að eign­ar­haldi Íslands­banka á fyr­ir­tækjum í óskyldum rekstri snúa einkum að eigna­hlutum þar sem bank­inn er í aðstöðu til að hafa áhrif á atvinnu­rekst­ur­inn. Þá er miðað við að eign­ar­haldið sé eða fari yfir tíu pró­sent auk þess sem horft er til ann­arra þátta svo sem stjórn­ar­setu. Hlutur Íslands­banka í Reitum er 3,9 pró­sent og engin stjórn­un­ar­tengsl eru milli bank­ans og félags­ins. Bankinn stefnir þó að sölu hlut­ar­ins en hvenær það verður gert tekur mið af aðstæðum á mark­aði.“

Kristján Krist­jáns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans, segir að bank­inn muni vinna í sam­ræmi við þá sátt sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið á árinu 2010 vegna eign­ar­halds­ins á Reitum, en gild­andi tíma­frestur vegna hennar rennur út 31. maí næst­kom­andi. Að öðru leyti vill bank­inn ekki tjá sig um áform sín á mark­aði „enda væru það upp­lýs­ingar sem alltaf myndu telj­ast verð­mót­andi“.


Hafa heimild til að fjárfesta fyrir eigin reikning


Aðspurður um hvað valdi því að Arion banki selji ekki allan hlut sinn segir Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­inga­full­trúi Arion banka, að mark­mið selj­enda með útboð­inu sé að gera Reitum kleift að upp­fylla skil­yrði Kaup­hall­ar­innar um dreif­ingu hluta­bréfa og „stuðla þannig að auknum selj­an­leika hluta­bréf­anna og dreifð­ara eign­ar­haldi og hins vegar horfir selj­andi til þess að selja eign sína á sem hag­stæð­ustu verði“.

Þegar spurt var hvernig áfram­hald­andi eign­ar­hald bank­ans á skráðri eign sam­rýmd­ist stefnu hans um eign­ar­hald á fyr­ir­tækjum í óskyldum rekstri segir í skrif­legu svari Haraldar Guðna að fjár­mála­fyr­ir­tæki hafi heim­ild til þess að eiga við­skipti með hluta­bréf í slíkum fyr­ir­tækjum fyrir eigin reikn­ing í fjár­fest­ings­kyni. „Eru fjár­mála­fyr­ir­tæki þannig í sömu stöðu, hvað þessar eignir varðar, og aðrir fjár­festar. Sá eign­ar­hlutur í Reitum fast­eigna­fé­lagi sem Arion banki hf. hyggst halda eftir, eftir útboðið, fellur full­kom­lega innan marka heim­ilda bank­ans í þessu til­liti. Með vísan til þessa fellur áfram­hald­andi eign­ar­hald bank­ans á tak­mörk­uðum eign­ar­hlut í Reitum fast­eigna­fé­lagi hf. bæði innan starfs­heim­ilda bank­ans, sem og að fjár­fest­inga­stefnu bank­ans að öðru leyti“.

Arion banki hefur selt hluti í Reitum á und­an­förnum mán­uðum. Í árs­lok 2014 átti bank­inn rúm­lega 192 milljón hluti í Reitum. Þann 16. mars síð­ast­lið­inn átti bank­inn um 166 milljón hluti. Því hefur bank­inn selt um 26 milljón hluti síðan þá. Ekki kemur fram í svari Arion banka við fyr­ir­spurn Kjarnans hverjir keyptu þennan hlut né á hvaða gengi það var gert.

Risastórt fasteignafélag


Eigna­safn Reita saman stendur af mörgum af verð­mæt­ustu fast­eignum lands­ins. Mik­il­væg­asta ein­staka eign félags­ins er Kringlan en félagið á einnig margar verð­mætar eignir mið­svæðis í Reykja­vík. Félagið á stórt eigna­safn í versl­un­ar­hús­næði til við­bótar við Kringl­una, t.d. Holta­garða, Spöngina, Mjóddina og Eiðis­torg. Þá á félagið t.a.m. tvær stórar Icelandair hót­el­eignir; Hilton Reykja­vík hótel og Icelandair Natura.

Tilkoma Reita verður annað fast­eigna­fé­lagið sem bæt­ist í hóp félaga í Kaup­höll­inni. Þar er fyrir fast­eigna­fé­lagið Reginn og von er á Eik fast­eigna­fé­lagi í Kaup­höll­ina á næst­unni. Ef allt gengur að óskum verða bréfin í Reitum tekin til við­skipta í Kaup­höll­inni þann 9. apríl næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár