Sjóslysið fyrir vestan: Biðu í hálftíma eftir að viðvörun barst

Þrír voru á vakt í stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar og rúm­lega fimm hund­ruð bátar á sjó þegar Jón Hákon BA-060 fórst. Einn maður lést þegar honum hvolfdi utan við Ísa­fjarð­ar­djúp í síð­ustu viku.

Við minni Ísafjarðardjúps
Við minni Ísa­fjarð­ar­djúps Fiski­bát­ur­inn Jón Hákon sökk skammt vestur af Aðalvík við minni Ísa­fjarð­ar­djúps. Hér sést smá­bátur vestan við slys­stað­inn. Mynd: Stundin

Land­helg­is­gæslan beið í hálf­tíma frá því við­vörun barst um að Jón Hákon BA-060 hefði hætt að senda til­kynn­ingar og þar til haf­ist var handa við að reyna að ná sam­bandi við áhöfn­ina. Tíu mín­útum síðar var nær­staddur bátur, Mardís, beð­inn um grennsl­ast fyrir um bát­inn, en bátnum hafði hvolft minnst 40 mín­útum fyrr. 

„Í því sím­tali kom fljót­lega í ljós að skip­verjar á bátnum sáu til Jóns Hákons og að eitt­hvað bját­aði á. Einnig að bát­ur­inn hefði sett á fulla ferð í átt að Jóni Hákoni. Skip­verjar báts­ins voru beðnir um að kalla til nær­staddra báta og biðja þá um að koma einnig til aðstoðar,“ segir Ásgrímur L. Ásgríms­son, fram­kvæmda­stjóri aðgerða­sviðs hjá Land­helg­is­gæslu Íslands, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár