Apple hættir að láta hleðslukubba og heyrnartól fylgja með hverjum seldum síma

Tækni­varpið fjall­aði um nýj­ustu kynn­ingu Apple í vik­unni.

Apple kynnti kynnti á dög­unum fjóra nýja iPhone síma, lít­inn snjall­há­tal­ara og end­ur­komu MagSafe hleðslu­tækja. Tækni­varpið fjall­aði um við­burð­inn í hlað­varpi sínu sem birt­ist á Kjarn­anum í dag.

Fram kemur hjá Tækni­varp­inu að HomePod mini hafi verið kynntur fyrst en það er nýr lít­ill snjall­hátal­ari sem á að geta fyllt her­bergi þrátt fyrir smæð. Apple bætir líka við nýjum streymi­veitum í flóru Homepod en Spotify er ekki ein þeirra. „Ef þú setur tvo HomePod mini í sama her­bergi, munu þeir sjálf­krafa bjóða upp á víð­óma hljóð. Sniðug græja, en mjög lítil og keppir við helm­ingi ódýr­ari snjall­há­tal­ara.“

Eilítil verðhækkun frá iPhone 11

Símarnir fjórir eru iPhone 12, iPhone 12 mini, iPhone 12 Pro og iPhone 12 Pro Max. Athygli vakti að sím­arnir hækka aðeins í verði og gera má ráð fyrir smá verð­hækkun frá iPhone 11 upp í iPhone 12, að því er fram kemur hjá Tækni­varp­inu.

Allir sím­arnir nýta sömu skjá­tækni sem Apple kallar Super Retina XDR sem er byggð á OLED grunni. Ytri hönnun sím­anna er áþekk og er talin minna á iPhone 5 og iPad Pro, sem eru með beina kanta. Allir sím­arnir fá 5G far­síma­sam­band, sem er mun hrað­ara og snarpara en 4G. 5G upp­bygg­ing á Íslandi hefur nú þegar haf­ist hjá fjar­skipta­fé­lög­unum og verður byggt upp á næstu árum.

[links]Apple hefur þróað nýja teg­und af högg­heldu gleri með fyr­ir­tæk­inu Corning sem á að virka fjórum sinnum betur en áður. iPhone 12 sím­arnir koma í fimm litum: svörtum, hvítum, rauðum, grænum og mjög flottum bláum. iPhone 12 Pro sím­arnir koma í fjórum litum: silfur, gull, svörtum og kyrra­hafs­bláum.

Mynda­vél­arnar fá allar mis­mun­andi upp­færslur. iPhone 12 sím­arnir ná að taka inn 27 pró­sent meiri birtu á aðal­lins­unni og iPhone 12 Pro Max nær 86 pró­sent meiri birtu. iPhone 12 Pro sím­arnir eru ein­stak­lega góðir í að taka upp mynd­bönd og styðja nú Dolby Vision. MagSafe er segla­tækni á baki sím­anna sem getur auð­veld­lega tengst nýjum auka­bún­aði eins og snerti­lausri hleðslum, veski og hulstrum. Apple stígur erfitt skref og hefur ákveðið að hætta að láta hleðslukubba og heyrn­ar­tól fylgja með hverjum seldum síma. „Apple seg­ist vera vernda umhverfið en er það eina ástæðan fyrir þessu?“ spyr Tækni­varpið að lokum.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknivarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár