Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Dublin

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Gazz svaf ekki í rút­unni okkar. Hann fór heim að sofa. Hins­vegar hringdi sím­inn minn klukkan hálf­tíu þegar ég var með­vit­und­ar­laus í flet­inu og þar hljóm­aði þessi und­urfagra rödd, bara svona rétt til að tékka á því hvort við hefum nokkuð farið á undan honum. Ég stakk höfð­inu undan tjald­inu og sá að við höfðum hvergi færst. Gazz var kom­inn á stað­inn tæp­lega hálf­tíma síðar, við sem höfðum þá náð að rífa okkur á lappir fórum með honum á stað sem seldi óþarf­lega hefð­bund­inn morg­un­mat og síðan skomberuðum við aftur í rútu. Og keyrðum til Dublin.

Leiðin var afskap­lega græn og vot. Írland, sem og Norður-Írland, eru mest­megnis græn engi og hólar og ein­hvern­veg­inn alveg eins og maður gæti ímyndað sér. Við höfum reyndar komið áður hingað til Írlands, en nyrðri part­ur­inn er svæði sem ég get nú loks­ins krossað við. Belfast er mjög ofar­lega á ferða­laga­lista fram­tíð­ar­innar, svo mikið er víst.

[caption id="attachment_12156" align="alignleft" width="200"] Síminn maður. Síminn.[/caption]

Nú sit ég og skrifa þetta í rút­unni sem stendur í myrkv­uðum rútu­bíla­garði á bryggjum Dyfl­innar. Klukkan er 2.58 og við nýkomnir til baka eftir óskap­lega vel­heppn­aðan og góðan dag. Ég er þétt­fullur og raunar búinn að sötra síðan skömmu eftir áður­nefndan árbít. Gazz átti þennan dag skuld­laust og leiddi okkur um allt. Aðstæður á tón­leika­staðnum voru svo að hvergi var hægt að leggja rút­unum. Þannig slök­uðum við okkur eins nálægt og hægt var, rifum upp hler­ana á kerrunni og skófl­uðum dót­inu okkar inn. Robert hélt svo í burt og sást lítið sem ekk­ert í dag. Gareth er hér öllum hnútum kunn­ugur og leiddi okkur þangað sem hug­ur­inn girntist. Við þurftum svo sem ekki fara langt og sátum á nær­liggj­andi knæpu þar til sánd­tékk hófst. Sándtékk sem gekk með öllum ágætum og þar var helst hægt að þakka lókal­fólk­inu sem var með allt sitt á hreinu. Bleik­hærð stelpa sem sá um að allt væri í lagi á svið­inu var með allt á krist­al­tæru, aðstoð­aði okkur í hvítetna, tengdi snúrur og reif kjaft. Við kláruðum þetta allt saman á met­tíma.

Giggið var tíma­sett óvenju snemma og ég rétt náði að hlaupa út til að kaupa mér brauðpramma­sneið áður en ég skutl­aði mér í fötin. Og svo bara drött­uð­umst við á svið eins og alla aðra daga. Stað­ur­inn var frekar lít­ill, krá­dið alveg þokka­lega þétt þegar við byrj­uðum að spila og þétt­ist svo til muna þegar á leið. Þetta var alveg ljóm­andi gigg. Það sem ég vil helst af öllu nefna er að ég heyrði sér­lega vel í Þráni þar sem ég stóð á svið­inu. Ég hef lengi vitað að mað­ur­inn sá kann að taka gít­ar­sóló. Löng, flókin og hávaða­söm með mörgum nótum. En í kvöld náði hann senni­lega að toppa sig alger­lega. Eða ekki. Kannski heyri ég bara ekki nógu vel í honum dags dag­lega, en hann virð­ist vera hættur að halda sig við þá staði þar honum hafði upp­haf­lega verið úthlutað. Hann drullar þessum sól­óum bara þar sem honum sýn­ist. Og það er alger­lega meist­ara­legt!

Eftir giggið héldum við svo í bæj­ar­ferð undir styrkri hand­leiðslu Gazz. Robert hafði þurft að leggja bílnum hér niðri á höfn og við vorum upp á okkur sjálfa komnir með að koma okkur í rútu. Það útheimti slurk af sjálf­stæðri hugsun, nokkru sem maður þarf almennt ekki að nota á svona túrum. Yfir­leitt snýst þetta um það eitt að mæta þangað sem fyrir mann er lagt, þegar planið segir til um það og þá er allt jafnan í seil­ing­ar­fjar­lægð. Ég er ekki að segja að einn leigu­bíll hafi sett ver­öld­ina á hlið­ina en þó er merki­legt að finna hversu vana­fastur maður getur orðið á svona stuttum tíma. Eftir eitt afskap­lega illa ígrundað stopp á hávaða­sömum pöbb fundum við alveg ágætt ver­elsi. Flexi hafði þá reyndar stungið af og farið í bíó og Þrábi heldur hvergi nálægur því hann hafði not­fært sér snemm­ferð í rútu. Við hinir sett­umst niður og drukkum.

[caption id="attachment_12157" align="align­right" width="300"] Jón Geir trommari í lopa­peysu.[/caption]

Írar þykja mér skemmti­legir. Tvö dæmi. Númer eitt: Ég fór á bar­inn og bað um þrjá Guinness. Meðan glösin voru að taka sig átti ég afskap­lega skemmti­legt spjall við mið­aldra bar­þjón­inn sem hafði skoðun og áhuga á öllu. Eftir þessar örfáu mín­útur vissi hann nákvæm­lega hvaðan ég kom, hvað ég vildi og væri að gera hér. Svo rétti hann mér glösin þrjú yfir bar­borðið og sagði með gull­fal­legum hreim: „Here you go, 3 of the best Pints you will ever have!“ Og ég bara trúði honum. Og svo númer tvö: Stuttu seinna lagði ég leið mína í átt að kló­sett­unum til að skila af mér. Aðstaðan var ekki stór og svo fór að ég lenti í bið með öðrum manni. Sá var rið­vax­inn og skeggj­aður. Frammi í almenn­ingi hljóm­aði stef sem margir þekkja, í það minnsta þekktum við þetta báðir og blístr­uðum í hálfum hljóðum. Svo grynnk­aði á röð­inni, við stigum báðir upp á hland­skál­arnar og slök­uðum af okkur. Og báðir blí­strandi. Erindið klárað­ist þarna um mið­bikið og náði hámarki. Við báðir, alger­lega ókunn­ugir og með hendur á því heilaga, snerum and­litum saman og sögðum með nokk­urri festu: TEKÍLA! Svo nikk­uðum við hvorn annan, klárðum að pissa, þvoðum, þurrk­uðum og héldum svo að okkar borðum. Írar. Meist­ara­snill­ingar.

Eftir þetta þvæld­umst við um bæinn með Gazz, end­uðum á hót­el­bar hvar við drukkum okkar hinstu kollu. Ég gaf honum griffl­urnar mínar í kveðju­skyni, griffl­urnar sem mamma prjón­aði. Allir sem koma nálægt mömmu eiga grifflur. Við systk­inin eru vina­mörg og leggjum leiðir okkar oft norður til Húsa­víkur hvar mamma hýsir yfir­leitt þá sem eru á ferð­inni. Og allir fá grifflur. Þannig eiga senni­lega svo að segja allir þung­arokk­arar Íslands grifflur í dag. Og svo miklu fleiri. Og núna Gazz.

Við kvöddum Gazz inni­lega með þeim orðum að hann myndi fljót­lega nýta sér nýtil­komið bein­flugs­fyr­ir­komu­lag milli Kefla­víkur og Belfast. Ég treysti því að ég sjái hann á nýja árinu. Við fundum okkur taxa sem rúm­aði okkur alla og inni­hélt bíl­stjóra sem var til að ræða allt og ekk­ert. Sá kom okkur hingað niður á bryggju þar sem ég sit núna og skrifa. Allir eru sofn­aðir nema Jón sem drekkur ein­hvern und­ar­legan gos­drykk og borðar enn skrýtn­ara snakk sem hann keypti í sjopp­unni hér fyrir utan. Þetta hefur hann gert frá því á man eftir honum. Hann kaupir það skrýtn­asta sem hann sér, mat og drykk, og tekur svo afleið­ing­unum með óraun­veru­lega jákvæðu hug­ar­fari. Hann hitti ágæt­lega á í kvöld. Gosið er reyndar full­komið drasl, en þetta beikonsnakk er ekki svo slæmt. Í það minnsta ekki miðað við ástand.

Klukkan er 3.36 og við slökum bílnum inn í ferju klukkan átta. Ég veit barasta ekki hvar sú ferja lendir eða hversu langan tíma tekur að sigla. Ég veit bara að við spilum í Bristol á morgun.

Meist­ara­legt dags­ins: Írar.

Sköll dags­ins: Vakna snemma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár