Sjöunda viðureign Íslands og Króatíu

A-lands­lið Íslands í fót­bolta mun mæta Króa­tíu­mönnum í kvöld, í sjö­unda skiptið á 13 árum.

Kári Árnason, leikmaður íslenska landsliðsins.
Kári Árnason, leik­maður íslenska lands­liðs­ins. Mynd: EPA

Ísland mætir Króatíu í kvöld í þriðju umferð riðla­keppn­innar í HM karla í fót­bolta. Þetta verður sjö­undi A-lands­liðs­leikur lið­anna tveggja, en leik­irnir hafa endað í einum sigri, einu jafn­tefli og fjórum töpum.

Liðin tvö mætt­ust fyrst á Maksimir stadium í Zagreb í mars 2005, en þá lentu liðin saman í riðli í und­ankeppni HM ári seinna. Leik­ur­inn end­aði 4-0 Króötum í vil. Kári Árnason er eini leik­maður núver­andi liðs­ins sem var í hóp gegn Króötum í þessum leik, en var á bekknum allan tím­ann.

Í sept­em­ber sama ár mætt­ust liðin aftur á Laug­ar­dals­velli. Leik­ur­inn end­aði 3-1 Króötum í vil, en Eiður Smári Guðjohn­sen kom Íslandi yfir í byrjun leiks áður en mörkum Króata rigndi inn í seinni hálf­leik.

Þriðji leikur Íslands og Króatíu var svo átta árum seinna, þann 15. nóv­em­ber 2013 , en liðin voru í umspili um sæti á HM 2014. Þar fékk Ólafur Ingi Skúlason rautt spjald, en leik­ur­inn end­aði með 0-0 jafn­tefli. Fjórum dögum síðar mætt­ust liðin aftur í Zagreb, en þar unnu Króatar 2-0.

Í und­ankeppni HM í ár lentu strák­arnir okkar svo aftur með Króatíu í riðli og kepptu við þá aftur í Zagreb í nóv­em­ber 2016. Leik­ur­inn end­aði líkt og sá síð­asti, 2-0 fyrir Króatíu. Þrátt fyrir sömu marka­nið­ur­stöðu sagði Hannes Þór Hall­dórs­son lands­liðs­mark­vörður mik­inn mun vera á leikj­unum tveimur. Strák­arnir væru komnir lengra og búnir að upp­lifa ótrú­lega hluti, en þeir voru þá nýkomnir frá EM-ævin­týr­inu í Frakk­landi fyrr sama ár. Gylfi Þór Sig­urðs­son bætti í og sagði fól­bolta­strák­ana eiga fullt erindi í að vinna Króatana, sér­stak­lega á heima­velli.

[links]Gylfi virð­ist hafa haft nokkuð til síns máls, en strák­arnir okkar unnu Króatana í sjöttu viður­eign lið­anna í nóv­em­ber í fyrra, 1-0. Þar skor­aði Hörður Björgvin Magn­ús­son úr horni á síð­ustu mín­útu leiks­ins.

Sam­an­lögð marka­tala Íslands og Króatíu stendur því nú í 2-11, Króötum í vil. Vonandi jafn­ast hún út að ein­hverju leyti eftir leik dags­ins, en flautað verður til leiks í Rostov Arena klukkan sex í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár