Mannréttindadómstóllinn spyr spurninga vegna Al Thani-málsins

MDE hefur tekið kæru Ólafs Ólafs­sonar vegna fjár­fest­inga hæsta­rétt­ar­dóm­ara til skoð­unar. Hann hefur sent spurn­ingar til máls­að­ila og m.a. farið fram á upp­lýs­ingar um umfang fjár­fest­inga. Auk þess hafa þeir verið hvattir til að leita sátta.

Ólafur Ólafsson, einn þeirra sem hlutu dóm í Al Thani-málinu.
Ólafur Ólafsson, einn þeirra sem hlutu dóm í Al Thani-mál­inu. Mynd: Kjarninn

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu (MDE) hefur tekið kæru Ólafs Ólafs­sonar vegna fjár­fest­inga­um­svifa tveggja hæsta­rétt­ar­dóm­ara í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða til skoð­unar. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir að dóm­stóll­inn hafi sent máls­að­ilum bréf fyrr í þessum mán­uði þar sem þess var farið á leit við íslenska ríkið að kanna hvort að hægt yrði að ná sátt við Ólaf, sem myndi grund­vall­ast á t.d. skaða- eða miska­bótum. Auk þess var þremur spurn­ingum beint til máls­að­ila, meðal ann­ars um hver fjár­fest­inga­um­svif dóm­ar­anna tveggja, Markúsar Sig­ur­björns­sonar og Árna Kol­beins­sonar, voru. Ef sátt næst ekki fyrir 2. des­em­ber mun dóm­stóll­inn taka málið til frek­ari efn­is­með­ferðar.

Í Al Thani-­­mál­inu voru þrír af æðstu stjórn­­endum Kaup­­þings, þeir Hreiðar Már Sig­­urðs­­son, Sig­­urður Ein­­ar­s­­son og Magnús Guð­­munds­­son ákærðir ásamt Ólafi Ólafs­­syni, einum stærsta eig­anda bank­ans fyrir hrun, fyrir umboðs­svik, mark­aðs­mis­­­notkun og hlut­­deild í umboðs­svik­­um.

[adspot]Mál­inu lauk með dómi Hæsta­réttar þann 12. febr­­úar 2015 þar sem allir ákærðu voru sak­­felld­­ir. Hreiðar Már var sak­­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 5 og hálfs árs fang­els­is, Sig­­urður var sak­­felldur sam­­kvæmt ákæru hvað varðar mark­aðs­mis­­­notkun en fyrir hlut­­deild í umboðs­svikum og dæmdur til 4 ára fang­els­­is. Ólafur var sak­­felldur vegna mark­aðs­mis­­­not­k­unar en sýkn­aður í ákæru­liðum varð­andi umboðs­­svik og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­elsis og Magnús var sak­­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­els­­is.

Fréttir frá lokum árs 2016

Kæran til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins byggir á frétta­flutn­ingi sem átti sér stað í lok árs 2016. Þann 5. des­em­ber það ár var greint frá því í fréttum Stöðvar 2 og síðan Kast­ljósi að Markús Sig­ur­björns­son, þá for­seti Hæsta­rétt­ar, hefði átt hluta­bréf í Glitni fyrir hrun og síðar fjár­­­fest um 60 millj­­ónum króna í verð­bréfa­­sjóði í rekstri Glitn­­is. Í Kast­­ljósi var enn fremur greint frá því að Ólafur Börkur Þor­­­valds­­­son, sem gegnt hefur emb­ætti hæsta­rétt­­­ar­­­dóm­­­ara frá árinu 2003, hafi einnig átt hluta­bréf í Glitni um tíma á árinu 2007. Hann seldi bréf sín í lok þess árs og fjár­­­­­festi í verð­bréfa­­­sjóði innan Glitn­­­is. Í Frétta­­blað­inu dag­inn eftir var svo sagt frá því að hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ar­­arnir Eiríkur Tóm­a­s­­son, Ing­veldur Ein­­ar­s­dóttir og Árni Kol­beins­­son, sem nú er hættur störf­um, hafi einnig öll átt hluta­bréf í Glitni á árunum 2007 og 2008. Allir dóm­­ar­­arnir fimm hafa dæmt í málum sem tengj­­ast Glitni, bæði fyrir og eftir hrun. Þar á meðal eru saka­­­mál gegn starfs­­­mönnum eigna­­­stýr­ingar Glitn­­­is. Dóm­­­ar­­­arnir lýstu ekki yfir van­hæfi í neinu þeirra mála.

Gögnin sem birt voru í umræddum fréttum sýndu sam­­skipti Mark­úsar við eigna­­stýr­ingu Glitn­­is. Á meðal þeirra voru tölvu­póstar og skjöl sem hann und­ir­­rit­aði til að veita heim­ild til fjár­­­fest­ing­­ar. Gögnin eru bundin banka­­leynd og alls ekki aðgeng­i­­leg mörg­­um. Starfs­­menn slita­stjórnar Glitnis eftir hrun hafa þó mög­u­­lega getað flett þeim upp í kerfum bank­ans auk þess sem starfs­­menn eigna­­stýr­ingar Glitnis fyrir hrun gátu nálg­­ast þau.

Opin­ber­an­irnar vöktu mikla athygli og sköp­uðu mikla umræðu um hæfi hæsta­rétt­ar­dóm­ara til að dæma í málum sem tengd­ust þeim bönkum sem þeir hefðu átt hluta­bréf í.

Markús sendi frá sér yfir­­­­lýs­ingu dag­inn eft­ir umfjöll­un­ina þar sem hann sagð­ist hafa til­­­­­kynnt nefnd um dóm­­­­­ara­­­­­störf um sölu á hluta­bréfum í sinni eigu þegar við­­­­­skiptin áttu sér stað, og hann hafi fengið leyfi nefnd­­­­­ar­innar þegar honum áskotn­að­ist þau. Hann hafi hins vegar ekki þurft að til­­­­­kynna um hvernig hann ráð­staf­aði pen­ing­unum eftir söl­una. Skúli Magn­ús­­son, for­­maður Dóm­­ara­­fé­lags Íslands, sagði sagði saman dag að ljóst væri að upp­­lýs­ingum um hluta­bréfa­­eign dóm­­ara hafi verið komið á fram­­færi við fjöl­miðla í þeim til­­­gangi að hafa áhrif á störf dóm­stóla og hugs­an­­lega auka mög­u­­leika á því að mál verði end­­ur­­upp­­­tek­in. Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, sagði blasa við að Markús hefði verið van­hæfur til að dæma í hrun­mál­um.

Þann 9. des­em­ber greindi DV síðan frá því að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Viðar Már Matth­í­as­son og Eiríkur Tóm­as­son hefðu átt hlut í Lands­bank­anum við fall bank­ans. Þeir hefðu báðir verið í fimm manna dómi Hæsta­réttar sem dæmdi ýmsa fyrr­ver­andi stjórn­endur Lands­banka Íslands seka um mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik í Hæsta­rétti í októ­ber 2015 og í febr­úar 2016.

[adspot]End­ur­upp­töku­nefnd féllst í maí á end­ur­upp­töku tveggja hæsta­rétt­ar­mála þar sem Sigurjón Þor­valdur Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, var dæmdur til fang­els­is­refs­ingar fyrir brot í starfi sínu. Ein þeirra ástæðna sem gefin var fyrir þeirri nið­ur­stöðu var að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Viðar Már Matth­í­as­son og Eiríkur Tómasson sem dæmdu í málum þeirra, hefði átt hluti í Lands­bank­anum fyrir hrun og orðið fyrir veru­legu tjóni við fall bank­ans.

Umfjöll­unin leiddi til þess að dóm­arar við Hæsta­rétt voru látnir birta hags­muna­skrán­ingu sína opin­ber­lega, og hefur það þegar verið gert á heima­síðu rétt­ar­ins síðan þá.

Ekki í fyrsta sinn hjá MDE

End­ur­upp­töku­nefnd hefur áður hafnað kröfum sak­born­inga í Al Thani-mál­inu um end­ur­upp­töku þess fyrir íslenskum dóm­stólum, sem byggðu meðal ann­ars á upp­lýs­ingum um fjár­fest­ingar dóm­ara.

Í apríl á þessu ári komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hins vegar að því að efast mætti um hvort Árni Kol­beins­son, einn þeirra fimm dóm­ara sem kváðu upp sak­fell­ing­ar­dóm í Hæsta­rétti í Al Thani-mál­inu og annar þeirra sem nú er undir í mál­inu sem verið er að skoða, hafi verið nægi­lega óhlut­drægur til að dæma í mál­inu. Ástæðan fyrir því er sú að Kolbeinn Árnason, sonur hans, starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs slita­bús Kaup­þings á árunum 2008 til 2013. Hann starf­aði einnig hjá Kaup­þingi áður en skila­nefnd var skipuð yfir bank­ann.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hafn­aði hins vegar öðrum atriðum sem fjór­menn­ing­arnir sem hlutu dóm í Al Thani-mál­inu kærðu til hans með afger­andi hætti. Þau atriði snéru að því að þeir töldu að brotið hefðu verið á rétti þeirra til rétt­látrar máls­með­ferðar með til­liti til aðgangs þeirra að gögnum, hvort þeir hefðu fengið nægan tíma til að und­ir­búa málsvörn sína og að þeir hafi verið hindr­aðir í að leiða fram vitni í mál­inu. Þar var sér­stak­lega átt við Al Thani sjálfan og aðstoð­ar­mann hans, Sheik Sultan Al Thani. Þá töldu fjór­menn­ing­arnir að brotið hefði verið á þeim þegar sím­töl þeirra við lög­menn hefðu verið hlustuð. Í því til­felli taldi Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn að menn­irnir hefðu átt að fara í skaða­bóta­mál fyrir íslenskum dóm­stólum.

Því var nið­ur­staða dóm­stóls­ins að öðru leyti sú að máls­með­ferð íslenskra dóm­stóla í Al Thani-mál­inu hafi að öðru leyti verið eðli­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár