Katrín Jakobsdóttir býður sig ekki fram til forseta

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, mun ekki bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hún birti á Facebook rétt í þessu. Þar segir:

„Kæru vinir!

Fjöl­margir hafa haft sam­band að und­an­förnu og hvatt mig til að bjóða mig fram sem for­seta Íslands. Fólk sem ég þekki vel og fólk sem ég þekki ekk­ert, fólk hvaðanæva af land­inu, fólk af öllum stéttum, konur og karlar, fólk á öllum aldri. Að sama skapi hafa birst kann­anir þar sem ein­hverjir virt­ust telja mig heppi­lega í þetta emb­ætti.

Af þessum sökum fannst mér ekki geta annað en hug­leitt málið alvar­lega í nokkra daga. Ég hef líka tekið eftir gagn­rýni frá ein­staka mönnum sem eru dug­legir að tjá sig, virð­ast ótt­ast fram­boð mitt meira en góðu hófi gegnir og ráða ekki almenni­lega við þá hug­mynd að konur taki eigin ákvarð­anir.

Það sem stendur hins vegar upp úr eru mörg góð orð frá stórum og fjöl­breyttum hópi fólks sem ég ber virð­ingu fyrir og vil þakka hvatn­ing­una.

Óháð þessum jákvæðu við­brögðum en einnig algjör­lega burt­séð frá þeim nei­kvæðu hef ég hins vegar tekið þá ákvörðun að skipta ekki um skoðun. Ég mun ekki bjóða mig fram til emb­ættis for­seta Íslands að þessu sinni. Ég vona að kosn­inga­bar­átta þeirra ein­stak­linga sem gefa kost á sér í þetta emb­ætti verði mál­efna­leg og inni­halds­rík og í þetta emb­ætti velj­ist góður þjónn þjóð­ar­innar sem beiti sér fyrir mann­rétt­indum og lýð­ræð­isum­bótum, vernd nátt­úru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu."

[adspot]

Í síð­ustu viku greindi Stundin frá því að Katrín væri að velta fyrir sér að bjóða sig fram til for­seta Íslands, í kjöl­far þess að hún hefði verið að fá áskor­anir um slíkt. Þar sagði einnig að Katrín hefði mælst með mestan stuðn­ing í emb­ætti for­seta Íslands í nýrri skoð­ana­könnun sem MMR gerði fyrir Stundina. Alls sögð­ust 37,5 pró­sent svar­enda að þeir teldu að Katrín kæmi til greina sem næsta for­seti Íslands og 23 pró­sent sögð­ust lík­legir til að kjósa hana. Katrín sagði í við­tali við Stundina að for­seti ætti að leggja áherslu á umhverf­is­vernd, mann­rétt­indi, menn­ingu og lýð­ræði.

Skoð­ana­könnun Stund­ar­innar sýndi sjö til átta pró­senta stuðn­ing við ýmsa aðra fram­bjóð­endur. Þeir eru Davíð Oddsson, Stefán Jón Hafstein, Salvör Nordal, Ólafur Jóhann Ólafsson, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Andri Snær Magnason. 23 pró­sent stuðn­ings­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja Davíð Oddsson, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, sem næsta for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár