Tæplega 500 manns hafa þegar fengið tvær sprautur

Búið er að gefa rúm­lega 40 pró­sent af Íslend­ingum yfir 90 ára aldri a.m.k. einn skammt af bólu­efni og tæp 13 pró­sent þeirra sem eru 80-89 ára. Ný töl­fræði­síða um bólu­setn­ingu hefur verið sett í loftið á vefnum covid.is.

Á nýrri tölfræðisíðu sem sett var í loftið í dag má fylgjast með framgangi bólusetningar gegn COVID-19 hér á landi.
Á nýrri töl­fræði­síðu sem sett var í loftið í dag má fylgj­ast með fram­gangi bólu­setn­ingar gegn COVID-19 hér á landi. Mynd: covid.is

5.725 manns hafa fengið eina sprautu af bólu­efnum Pfizer/BioNTech eða Moderna til þessa á Íslandi og 480 manns hafa fengið tvær sprautur og því lokið bólu­setn­ingu.

Rúmlega 40 pró­sent fólks yfir 90 ára aldri hefur fengið a.m.k. eina sprautu og tæp 13 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 80-89 ára.

Þetta kemur fram vefnum covid.is, en þar er búið að setja upp töl­fræði­síðu um fram­gang bólu­setn­ingar á Íslandi. Vefurinn, sem fór í loftið í dag, er hlið­stæður töl­fræði­vefnum þar sem hægt hefur verið að fylgj­ast með fram­gangi COVID-19 far­ald­urs­ins á Íslandi, smitum, fjölda í sótt­kví og sjúkra­húsinn­lögnum.

Hin ýmsa töl­fræði er tekin saman, meðal ann­ars hversu margir skammtar af bólu­efn­unum hafa verið gefnir á hverjum degi. Á því stöpla­riti má sjá tvær súlur dag­ana 29. des­em­ber og 30. des­em­ber, þegar tæp­lega 5.000 manns voru bólu­sett með bólu­efni Pfizer og BioNTech eftir að fyrsta send­ingin bólu­efn­is­ins kom til lands­ins.

[adspot]

Nú er að hefj­ast seinni bólu­setn­ing þeirra sem fengu bólu­setn­ingu í kjöl­far fyrstu send­ing­ar­innar frá Pfizer og í gær voru 487 skammtar af því bólu­efni gefnir. Þegar næsta send­ing bólu­efna kemur til lands­ins er þó áætlað að útdeila öllum skömmt­unum strax, í stað þess að halda hluta til hliðar.[links]

Samkvæmt því sem kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi á mánu­dag munu 3.500 manns í elstu ald­urs­hópum fá sína fyrstu sprautu af bólu­efn­inu í þess­ari viku, en þeir skammtar komu til lands­ins á mánu­dags­morgun.

Enginn yfir 70 ára aldri fékk Moderna-bóluefnið

Dagana 13., 14. og 15. jan­úar var 1.259 skömmtum af bólu­efni Moderna útdeilt. Samkvæmt því sem fram kemur á bólu­setn­ing­ar­vefnum á covid.is fékk eng­inn yfir 70 ára aldri bólu­efni Moderna.

Hópar sem voru bólu­settir með því bólu­efni voru fram­línu­starfs­menn á borð við lög­reglu­menn, starfs­fólk í far­sótt­ar­húsi og sjúkra­flutn­inga­menn.

Á vefnum má einnig sjá töl­fræði yfir fjölda bólu­settra á hverja 100.000 íbúa eftir heil­brigð­is­um­dæmi. Öll heil­brigð­is­um­dæmin eru þar á svip­uðu róli, með á annað pró­sent íbúa bólu­sett a.m.k. einu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár