Niðurstaða meirihlutans „barin fram“

Þingmenn þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, m.a. vara­for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar, leggja til að horfið verði frá því að færa fimm virkj­ana­kosti úr vernd­ar­flokki ramma­á­ætl­unar líkt og meiri­hluti nefnd­ar­innar vill.

Þorbjörg Sigríður, Andrés Ingi og Þórunn Sveinbjarnardóttir standa að breytingatillögu við breytingatillögu á rammaáætlun.
Þorbjörg Sigríður, Andrés Ingi og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir standa að breyt­inga­til­lögu við breyt­inga­til­lögu á ramma­á­ætlun. Mynd: Samsett mynd

„Vinna nefnd­ar­innar var góð og ekki fyrr en á loka­metrum að ég upp­lifði að nið­ur­staða meiri­hlut­ans var barin fram,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar og vara­for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar um álit meiri­hluta nefnd­ar­innar á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar. Meiri­hlut­inn vill færa fimm virkj­un­ar­kosti til­lög­unnar úr vernd­ar­flokki í bið­flokk og þrjá úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk. Þá vill hann einnig að einn vind­orku­kostur, Búr­fellslundur, verði færður úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk.

[links]Þorbjörg, Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, standa saman að breyt­inga­til­lögu við breyt­inga­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar. Í henni er lagt til að fjórir virkj­ana­kostir í Skaga­firði verði ekki færðir úr nýt­ing­ar­flokki og í bið­flokk sem og að Kjalöldu­veita verði áfram í bið­flokki eins og verk­efn­is­stjórn þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar lagði til. „Við viljum standa með ramma­á­ætlun sem verk­færi,“ segir Andrés Ingi við Kjarnann. „Verja vernd­ar­flokk­inn fyrir póli­tískum hrossa­kaupum stjórn­ar­flokk­anna og færa Hér­aðs­vötn og Kjalöldu aftur í vernd­ar­flokk. Þá gefst þing­mönnum tæki­færi til að sýna með atkvæði sínu hvort þau standi með nátt­úru­vernd þegar á reynir.“

Breyt­ing­ar­til­laga þre­menn­ing­anna var lögð fram á þingi í dag en önnur umræða um ramma­á­ætlun er á dag­skrá þings­ins í dag.

[adspot]

„Ég geri engar athuga­semdir við að þingið geri breyt­ingar á til­lögum,“ segir Þorbjörg Sigríður. Lög um verndun og nýt­ingu land­svæða, ramma­á­ætlun, séu skýr um að Alþingi taki ákvörðun og Alþingi beri ábyrgð­ina. Um sé að ræða ákvarð­anir byggðar á póli­tísku heild­ar­mati á hags­munum sem veg­ast á. Verk­efnið sé „þetta heil­brigða jafn­vægi milli nýt­ingar og verndar,“ segir hún.

„Það er þess vegna í mínum huga ekki eitt og sér gagn­rýn­is­vert að þingið geri breyt­ingar á fyr­ir­liggj­andi til­lögum. En rökin verða að halda vatni og ljóst á hvað rökum þær byggja. Og svo er bara því miður ekki.“

Illa rökstuddar breytingar

Að mati Þor­bjargar eru breyt­inga­til­lögur meiri­hlut­ans um að að færa virkj­anir í Skaga­firði og Kjalöldu­veitu í efri hluta Þjórsár „alvar­legar og illa rök­studdar. Og þær þjóna sann­ar­lega ekki hags­munum almenn­ings.“

Einnig bendir Þorbjörg á að ekki sé heldur fjallað um hversu mikil raf­orka fær­ist milli flokka með breyt­ing­ar­til­lög­unum, þ.e. hvaða áhrif það hefur á þá raf­orku sem verður í nýt­ing­ar­flokki eftir breyt­ing­ar­til­lögur meiri­hlut­ans. „Af hálfu umhverf­is­ráð­herra hefur verið talað um mikla raf­orku­þörf í þágu orku­skipta, en ekk­ert mat er um hver áhrif þess­ara breyt­inga­til­laga verða,“ segir hún. „Að sama skapi er ekki fjallað um hag­kvæmni virkj­un­ar­kosta sem fær­ast milli flokka eða þjóð­hags­leg áhrif þeirra. Hver verða áhrifin á mark­mið stjórn­valda um orku­skipti? Verða þau dýr­ari eða ódýr­ari við þessar breyt­ingar meiri­hlut­ans?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár