Útgjöld til rannsókna og þróunar aukist um 67 prósent frá 2013

Forsenda þess að auka fram­leiðni í breyttum og alþjóða­væddum heimi er að rann­saka og þróa nýjar vörur. Íslend­ingar eyddu 48,5 millj­örðum í það í fyrra, eða 67 pró­sent meira en 2013. Og nýlega sam­þykkt lög munu lík­ast til auka þá upp­hæð umtals­vert.

Útgjöld til rann­sókna- og þró­un­ar­starfs á Íslandi voru sam­tals 48,5 millj­arðar króna í fyrra og juk­ust umtals­vert á milli ára. Aukn­ing­una er fyrst og fremst hægt að rekja til þess að fyr­ir­tæki eyði meira fé í rann­sóknir og þróun. Á ein­ungis tveimur árum juk­ust útgjöld íslenskra fyr­ir­tækja sem runnu í rann­sóknir og þróun úr 18,7 millj­örðum króna í 31,4 millj­arða króna, eða um 68 pró­sent.

Það er ekki ein­ungis krónu­talan sem fer í rann­sóknir og þróun sem er að hækka. Hlutfall af lands­fram­leiðslu sem eytt er í að finna nýjar leiðir til að auka fram­leiðni og skapa vöxt hefur einnig auk­ist. Árið 2013 voru útgjöld fyr­ir­tækja og stofn­anna í rann­sóknir og þróun 1,76 pró­sent af lands­fram­leiðslu, árið 2014 2,01 pró­sent og í fyrra 2,19 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman. Í sam­an­tekt­inni voru áður útgefnar tölur fyrir árin 2013 og 2014 end­ur­skoð­aðar útfrá nýaf­stað­inni gagna­söfnun stofn­un­ar­innar.

Lagabreyting í ár stórt framfaraskref

Íslenski tækni- og hug­verka­geir­inn hefur kallað mjög eftir því á und­an­förnum árum að starfs­um­hverfi hug­verka­fyr­ir­tækja með alþjóð­lega starf­semi á Íslandi yrði gert skap­legra. Fyrr á þessu ári voru sam­þykktar breyt­ingar á lögum þess efnis, sem þóttu mikið fram­fara­skref. Í þeim fólst meðal ann­ars að gerð var sú breyt­ing að skattaí­viln­anir til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar voru hækk­aðar veru­lega. Hámark slíks kostn­aðar til almennrar við­mið­unar á frá­drætti fór úr 100 millj­ónum króna í 300 millj­ónir króna og úr 150 í 450 millj­ónir króna þegar um aðkeypta rann­sóknar- og þró­un­ar­þjón­ustu er að ræða frá ótengdu fyr­ir­tæki, háskóla eða rann­sókna­stofnun. Þá fólst einnig í þeim að erlendir sér­fræð­ingar sem ráðnir verða til starfa hér­lendis munu ein­ungis þurfa að greiða skatta af 75 pró­sent af tekjum sínum í þrjú ár.

Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP, sagði í við­tali við Kjarnann um liðna helgi að þessar breyt­ingar hafi verið mjög mik­il­vægar. Fyrir þessu hafi hann, og fleiri í geir­anum, talað í ára­tug. „Við fundum að nú var tím­inn. Það var ekki þessi bar­átta að koma þessu í gegnum stjórn­mála­menn­ina eins og það hefur verið. Fólk var til­búið að hlusta og skilja. Þegar það er komið á þann stað þá eru þetta svo mikil skyn­sem­is­mál. Þau eru ekk­ert umdeild, eða ættu ekk­ert að vera það. Það er ekki verið að útdeila tak­mörk­uðum gæðum eða verið að taka úr einu og setja í annað.

Við fundum það núna að orðum myndi fylgja aðgerðir. Það hefur oft vantað upp á það og verið meira um orða­gjálfur eða 17. júní ræður. Ég vill hrósa Bjarna Bene­dikts­syni og fjár­mála­ráðu­neyt­inu hástert fyrir að hafa komið þessu í gegn.

Ég myndi samt sem áður vilja að þakið á frá­drætt­inum vegna rann­sóknar og þró­unar yrði alveg afnumið. Núna rúm­ast bara lítil fyr­ir­tæki undir því. Það leiðir til óeðli­legrar hegð­unar. Það eru engin vís­indi á bak við þessar tölur sem voru ákveðnar. Þetta er bara ein­hver þæg­ind­ara­mmi sem er ekki studdur neinu sér­stöku.“

Hlutur í landsframleiðslu 9,6 prósent

Hagstofa Íslands hóf nýverið að taka sér­stak­lega saman, og birta, hag­tölur fyrir íslenska tækni- og hug­verka­iðn­að­inn. Við það kom í ljós að hann er sá iðn­aður sem á stærstan hlut í lands­fram­leiðslu á Íslandi. Alls er hlutur iðn­að­ar­ins í lands­fram­leiðsl­unni 9,6 pró­sent. Áður hafði tækni- og hug­verka­iðn­að­ur­inn verið flokk­aður í hinu víða mengi „eitt­hvað annað“.

Í nýlegri úttekt Arion banka á ferða­þjón­ustu á Íslandi sagði að hlut­fall grein­ar­innar í lands­fram­leiðslu sé átta pró­sent. Standist þær tölur er meiri fram­leiðni í tækni- og hug­verka­iðn­aði en í ferða­þjón­ustu sem stendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár