Norðurslóðastefna Bandaríkjanna og hvernig hún kemur við Ísland

Banda­ríkja­menn taka um þessar mundir við for­mennsku í Norð­ur­skauts­ráð­inu en leið­toga­fundur ráðs­ins stendur nú yfir í Iqaluit í Kanada. Það er skipað ríkj­unum átta sem liggja að norð­ur­slóðum, Banda­ríkj­unum, Danmörku, Finn­landi, Íslandi, Noregi, Kanada, Rúss­landi og Svíþjóð—en auk þess eiga sam­tök frum­byggja á svæð­inu fasta aðild. Of snemmt er að meta hvort órói vegna fram­ferðis Rússa und­an­farið muni hafa langvar­andi áhrif á sam­starfið á vett­vangi ráðs­ins. Sergei Lavrov utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands mætti ekki til fund­ar­ins nú, sem er við­snún­ingur frá fyrri tíð – auk þess sem Dmitry Rogozin aðstoðar-for­sæt­is­ráð­herra hefur verið með ögrandi yfir­lýs­ingar.

Íslend­ingar eiga mikið undir því að Norð­ur­skauts­ráðið eflist og því er mik­il­vægt að skoða stefnu Banda­ríkja­manna í mál­efnum norð­ur­slóða og afstöðu þeirra til ráðs­ins. Banda­ríkja­menn eiga umtals­verðra beinna hags­muna að gæta á norð­ur­slóðum – þeir eiga meira en 1500 kíló­metra langa strand­lengju sem liggur að norð­ur­skauts­svæð­inu – en talið er að einn þriðji vinn­an­legrar olíu á svæð­inu liggi í jarð­lögum undan ströndum Alaska-fylkis. Banda­ríkja­menn hafa sýnt vilja til að efla Norð­ur­skauts­ráðið sem nær­vera utan­rík­is­ráð­herr­anna, John Kerry og Hillary Clinton, á síð­ustu fundum ráðs­ins sýnir glögg­lega.

[caption id="attachment_26903" align="alignnone" width="745"] John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, stillir sér upp fyrir svo­kall­aða „sel­fie“ ljós­mynd á síð­asta fundi Norð­ur­skauts­ráðs­ins. Mynd: EPA[/caption]

Innan banda­ríska stjórn­kerf­is­ins eru lofts­lags­breyt­ingar og afleið­ingar þeirra að verða við­ur­kennt vanda­mál. Stofn­anir eins og varn­ar­mála­ráðu­neytið eru farnar að setja þjóðar­ör­yggi í sam­hengi við alþjóð­legt öryggi og Obama-stjórnin hefur lagt fram ítar­lega stefnu um norð­ur­skauts­svæðið. Þar vekur athygli að und­ir­strikað er mik­il­vægi Haf­rétt­ar­sátt­mál­ans, að Banda­ríkja­menn muni virða ákvæði hans og vinna að full­gild­ingu. Einhver kynni að spyrja hvers vegna áhersla sé lögð á Haf­rétt­ar­sátt­mál­ann þar sem Banda­ríkja­menn hafi ekki enn full­gilt hann – en hafa verður í huga að nærri algilt er um alþjóða­lög að ríki leit­ast við virða þau hvað sem full­gild­ingu líður.

Snemma árs 2014 var kynnt skýrsla um hvernig hinni nýju stefnu skuli fram­fylgt. Þar eru áréttuð þrjú meg­in­hags­muna­mál Banda­ríkj­anna hvað varðar norð­ur­slóðir; að tekið sé til­lit til þjóðar­ör­yggis; að gætt sé að ábyrgri umgengni og umsjón með svæð­inu; og að stuðlað sé að alþjóð­legri sam­vinnu. Þar er enn­fremur til­greint hvernig koma skuli upp örygg­is­kerfum hvað varðar fjar­skipti og veð­ur­at­hug­anir, og að safnað skuli saman og gerð aðgengi­leg þekk­ing á þróun líf­ríkis og nátt­úru vegna þeirra breyt­inga sem eru að verða—allt í góðri sam­vinnu við inn­fædda á svæð­inu. Þó hefur stefnan verið gagn­rýnd, að það skorti að tekið sé af skarið með raun­veru­lega fram­kvæmd. Banda­ríkja­menn séu um það bil tíu árum á eftir því sem mætti kalla ásætt­an­lega áætlun í norð­ur­slóða­málum hvað varðar upp­bygg­ingu inn­viða sem snúa að sam­göngum, hafn­ar­mann­virkjum og fjar­skiptum.

Þegar lesið er á milli lín­anna í orða­lagi stefn­unnar, sést að þar er talað um þjóðir en ekki ríki, mögu­lega til að skír­skota frekar til inn­fæddra íbúa svæð­is­ins sem hafa átt undir högg að sækja gagn­vart hinum full­valda ríkjum. Einnig eru ríkin átta sem eru burða­rás­inn í Norð­ur­skauts­ráð­inu talin sér­stak­lega upp, því Banda­ríkja­menn hafa lagt áherslu á óskorað vægi ráðs­ins. Skemmst er að minn­ast þess er Hillary Clinton, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, setti ofan í við Kanada­menn fyrir að hafa boðað til fundar og und­an­skilið Íslend­inga, Finna, Svía og inn­fædda íbúa svæð­is­ins – hins svo­kall­aða fimm ríkja-sam­starfs – sem reyndar hefur ekki verið áber­andi eða náð að skyggja á Norð­ur­skauts­ráðið sjálft.

Blikur á lofti?


Svo virð­ist sem Banda­ríkja­menn ein­setji sér að við­halda frið­sam­legu ástandi á norð­ur­slóðum og hafi þar ekki uppi hern­að­ar­legar áætl­anir. Banda­ríski flot­inn gaf nýlega út áætlun um norð­ur­slóðir til árs­ins 2030 og þar er talin lítil hætta á átökum á svæð­inu í fyr­ir­sján­legri fram­tíð. Þó getur brugðið til beggja vona og hugs­an­legt að deilur við Rússa vegna ógn­andi hegð­unar þeirra gætu breytt stöð­unni. Má þar nefna auk­inn hern­arð­ar­legan við­búnað Rússa á norð­ur­skauts­svæð­inu og nýlega atburði á Krím­skaga sem hafa sett sam­starf NATO við Rússa í bið. Mik­il­vægt er þó að hafa í huga að Rússar taka enn virkan þátt í starfi Norð­ur­skauts­ráðs­ins.

Hér er ekki gert lítið úr ógn­andi til­burðum Rússa á alþjóða­vett­vangi und­an­farin miss­eri. Þó er vara­samt að túlka aukna hern­að­ar­lega upp­bygg­ingu þeirra á svæð­inu norður af Rúss­landi sem beina hern­að­ar­lega ógn. Þetta styðja ummæli Roberts J. Papp, fyrrum aðmíráls og sér­staks full­trúa Hvíta húss­ins í mál­efnum norð­ur­slóða, sem telur Rússa ekki vera að hern­að­ar­væða norð­ur­slóðir. Þeir eiga þar þrátt fyrir allt um 17.500 kíló­metra langa strand­lengju og hafa lagt í tals­verðar fjár­fest­ingar í höfnum og annarri nauð­syn­legri þjón­ustu vegna norður-sigl­inga­leið­ar­innar. Í því sam­hengi hefur verið bent á að öll starf­semi sem snýr að leit og björgun verði að miklu leyti á hern­að­ar­legum grunni vegna þess hversu svæðið er víð­femt og aðstæður erf­iðar.

Papp bendir einnig á að hvað sem atburðum í öðrum heims­hlutum líður, meðal ann­ars í Úkraínu, sé mik­il­vægt að kynda ekki undir tor­tryggni og halda tengslum við Rússa. Þannig megi tryggja áfram frið­sam­legt sam­starf um norð­ur­slóðir og þau brýnu mál sem þar bíða úrlausna, eins og umhverf­is­mál. John Kerry utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna tók í sama streng í ræðu sinni á leið­toga­fund­inum í gær. Hann hvað aukin hern­að­ar­um­svif myndu ekki hafa áhrif á starf­semi Norð­ur­skauts­ráðs­ins – þau mál mætti ræða ann­ars­staðar – en lagði áherslu á mik­il­vægi sam­starfs svo bregð­ast mætti við lofts­lags­breyt­ingum og áhrifum þeirra á líf­ríki svæð­is­ins.

[caption id="attachment_24651" align="alignnone" width="841"] Vladimir Pútin - Rússar hafa þótt sýna ógn­andi fram­komu á alþjóða­vett­vangi und­an­farin miss­eri. Mynd: EPA[/caption]

Hvernig snertir stefnan Ísland?


Þegar norð­ur­slóða­stefna Banda­ríkj­anna er skoðuð er ekki að merkja að Ísland komi þar mikið við sögu. Ekki þarf þó að vera að opin­ber stefnu­mótun afhjúpi allar áætl­anir sem á borð­inu eru, en athygli vekur þó að Ísland er aldrei nefnt í skýrslu um stefnu­mótun banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, um fram­tíð­ar­á­form á norð­ur­slóðum. Þar er hins vegar m.a. vísað í sam­starf um björg­unar og her­æf­ingar við Kanada­menn, Græn­lend­inga og Norðmenn.

Því má ekki gleyma að þrátt fyrir að Banda­ríkja­menn hafi lokað Kefla­vík­ur­stöð­inni hafa þeir enn öfl­uga fót­festu í Thule á Græn­landi, sem var og hefur verið mik­il­vægur hlekkur í varn­ar­keðj­unni á norð­ur­slóðum. Hugs­an­leg umskipti á Græn­landi með meiri ítökum Kínverja, og jafn­vel Rússa, gætu sett þrýst­ing á Banda­ríkja­menn um að skerpa á stöðu sinni þar. Ef Græn­lend­ingar settu Banda­ríkja­mönnum stól­inn fyrir dyrnar með auk­inni sam­vinnu við Kína eða Rússa myndi það hugs­an­lega færa áherslur Banda­ríkj­anna að Íslandi. Hafa ber í huga að í gildi er varn­ar­samn­ingur milli ríkj­anna og not­hæf aðstaða á Kefla­vík­ur­flug­velli, svo hægt væri að koma upp starf­semi á Íslandi með til­tölu­lega skömmum fyr­ir­vara.

Reynsla smá­ríkja sýnir að efl­ing alþjóð­legs sam­starfs er þeim í hag. Á það við um form­lega samn­inga og sátt­mála sem meðal ann­ars lúta að auð­linda­nýt­ingu, umhverf­is­vernd og örygg­is­málum. Á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, þar sem fjallað er um auð­linda- og umhverf­is­mál, er áréttað að nýt­ing tæki­færa á norð­ur­slóðum krefj­ist virkrar milli­ríkja­sam­vinnu á grund­velli þjóða­réttar. Sú stefna sem Banda­ríkja­menn hafa boðað, með frek­ari efl­ingu Norð­ur­skauts­ráðs­ins og áherslu á umhverf­is­mál, verður að telj­ast Íslend­ingum til hags­bóta og gefa jafn­framt vonir um áfram­hald­andi frið­sam­legt ástand á norð­ur­slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár