Guðni sendi heillaóskir frá íslensku þjóðinni

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands
Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands hefur sent Donald Trump, nýkjörnum for­seta Banda­ríkj­anna, heilla­óskir frá sér og íslensku þjóð­inni. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu.

Í kveðj­unni lagði Guðni áherslu á rót­gróna sam­vinnu og vin­áttu Íslands og Banda­ríkj­anna og sam­eig­in­lega sögu þjóð­anna „sem teygði anga sína allt aftur til þess að sæfar­endur frá Íslandi og Græn­landi tóku land í Norður-Ameríku fyrir meira en þús­und árum.“

Guðni nefndi einnig í heilla­óskum sínum til Trumps að jafn­vel þó stærð­ar­mun­ur­inn á milli Banda­ríkj­anna og Íslands væri mjög mik­ill þá deila þessar þjóðir mörgum mik­il­vægum gildum. „[…] við styðjum ein­huga frelsi til hugs­ana og tján­ingar, jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.“

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra sendi frá sér heilla­óskir fyrr í dag og sagð­ist vera bjart­sýnn á fram­haldið. Hann seg­ist eiga von á því að sam­skipti land­anna verði jafn góð eins og verið hafa og verði það áfram, og hann hefur engar vænt­ingar til ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár