Hugmyndir um kláf upp á Esjuna verða teknar til skoðunar á ný

Félagið Esju­ferja hefur óskað eftir því við borg­ina að fá lóðir leigðar undir far­þega­kláf upp á Esjubrún. Borg­ar­ráð sam­þykkti í dag að leggja mat á raun­hæfni hug­mynd­anna, sem eru ekki nýjar af nál­inni.

Esjan á vetrardegi. Félagið Esjuferja ehf. vill reisa kláf upp á fjallið.
Esjan á vetr­ar­degi. Félagið Esju­ferja ehf. vill reisa kláf upp á fjallið. Mynd: Bára Huld Beck

Borg­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti í dag að vísa hug­myndum félags­ins Esju­ferju ehf., um kláf upp Esju­hlíðar, til frek­ari skoð­unar í borg­ar­kerf­inu. Málið á sér nokkra for­sögu, en sömu aðilar viðr­uðu hug­myndir um svif­ferju upp á Esjuna við borg­ina á fyrri hluta síð­asta ára­tugs, en þær náðu ekki fram að ganga.

Hugmynd félags­ins er enn sú sama og áður, að fólk geti stigið upp í kláf við Mógilsá og tekið hann upp á Esjubrún, en einnig verði milli­stöð á Rauðhóli. For­svars­menn verk­efn­is­ins létu hafa eftir sér að stefnt væri að því að ferja 150 þús­und manns upp á topp árlega, þegar Esju­ferjan var til umfjöll­unar árið 2014.

„Esju­ferjan verður nýr kafli í íslenskri ferða­mennsku, úti­vist­ar­lífi og afþr­ey­ingu sem mun bjóða upp á nýjar leiðir til að njóta Esjunnar, sem er eitt af helstu ein­kennum Reykja­vík­ur­borgar. Kláf­ferjur hafa gert fólki kleift að upp­lifa útsýnis og úti­vistar á óvið­jafn­an­legum stöðum sem ann­ars hefðu ein­göngu verið aðgengi­leg fámennum hópi. Esju­ferjan mun bjóða íslenskum og erlendum gestum heil­næma úti­vist, hreyf­ingu og umhverf­is­væna afþr­ey­ingu. Sér­stak­lega ber að horfa til þess að hópar með tak­mark­aða hreyfi­getu, þar á meðal stækk­andi hópur eldri borg­ara fá með Esju­ferju tæki­færi til að njóta upp­lif­ana sem ann­ars væru ekki í boði,“ segir í erindi sem Esju­ferja sendi borg­inni í byrjun októ­ber.

[adspot]

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri lagði fram til­lögu fyrir fund borg­ar­ráðs um að málið yrði skoðað nánar, og að lagt yrði mat á raun­hæfni hug­mynd­anna. Tekið er fram í til­lögu borg­ar­stjóra að engin vil­yrði liggi fyrir af hálfu Reykja­vík­ur­borgar heldur hafi Esju­ferðir ehf. unnið að fram­gangi máls­ins á eigin kostnað og áhættu. Í erindi félags­ins til borg­ar­innar segir að aðstand­endur félags­ins hafi þegar lagt beint og óbeint fram­lag sem nemur tugum millj­óna króna til verk­efn­is­ins.

Í til­lögu borg­ar­stjóra segir að skoða þurfi hvort ríkið vilji gera nýjan leigu­samn­ing við borg­ina um landið sem Esju­ferðir vilja leigja undir verk­efnið. Einnig er lagt til að umhverfis- og skipu­lags­svið fjalli um skipu­lags­legar for­sendur verk­efn­is­ins upp­setn­ingar og rekst­urs á far­þega­ferju í Esju­hlíðum og veiti umsögn um það og eigi sam­ráð við hlut­að­eig­andi aðila.

„Ljóst er að Reykja­vík­ur­borg ber skylda til að aug­lýsa eftir áhuga­sömum eða eftir atvikum afla til­boða, veiti umhverfis- og skipu­lags­svið jákvæða umsögn og land rík­is­ins reyn­ist til ráð­stöf­unar vegna verk­efn­is­ins. Lagt er til að skrif­stofu borg­ar­stjóra- og borg­ar­rit­ara verði falið að taka til frek­ari skoð­unar hvort til­lagan sé þess eðlis að hún feli í sér útgáfu sér­leyfis í skiln­ingi laga og aðra nauð­syn­lega grein­ingu, þ.m.t. veltu­mat, varð­andi aug­lýs­inga og/eða útboðs­þátt máls­ins verði afgreiðsla umhverfis- og skipu­lags­ráðs jákvæð,“ segir einnig í til­lögu borg­ar­stjóra, en auk þessa er ljóst að fram­kvæma þarf umhverf­is­mat á verk­efn­inu, en Umhverf­is­stofnun komst að nið­ur­stöðu um það árið 2014 þegar verk­efnið var til umræðu.

Stórt álitamál

Sem áður segir var til­lagan um þetta sam­þykkt í borg­ar­ráði í dag, með atkvæðum full­trúa meiri­hluta­flokk­anna fjög­urra. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og Sós­í­alista­flokks sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una.

„Hér er borg­ar­ráð að sam­þykkja að kanna for­sendur verk­efn­is­ins, að umhverfis- og skipu­lags­svið skoði skipu­lags­þátt­inn og eigna­skrif­stofan kanni afstöðu rík­is­ins sem land­eig­anda. Verði nið­ur­staða þeirra athug­ana að halda áfram með verk­efnið verður aug­lýst eftir áhuga­sömum aðilum sem myndu þá ráð­ast í gerð umhverf­is­mats, hönn­unar, fjár­mögn­unar og rekst­urs. Endanleg ákvörðun um það ræðst hins vegar af nið­ur­stöðum skipu­lags­vinnu og þess umsagnar- og sam­ráðs­ferlis sem fram færi sam­hliða,“ sagði í bókun full­trúa meiri­hlut­ans um málið.

Full­trúar flokk­anna í minni­hluta borg­ar­stjórnar bók­uðu einnig um málið. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks sögðu að ef kláf­ur­inn kæmi til fram­kvæmda væri „mik­il­vægt að vandað verði til verka við alla hönnun, þess sé gætt að ferjan falli vel að umhverfi og nátt­úru og þess gætt að nei­kvæð umhverf­is­á­hrif og rask verði sem minnst“.

Fulltrúi Sós­í­alista­flokks­ins í borg­ar­ráði sagði mik­il­vægt að fleiri aðilar en umhverfis- og skipu­lags­ráð fengju að koma með umsögn um málið. „Þar má nefna íbúa­ráð og íbúa almennt. Íbúar á Kjal­ar­nesi hafa áður lýst yfir and­stöðu sinni við þessar fyr­ir­ætl­anir,“ sagði í bókun Trausta Breið­fjörð Magn­ús­sonar.

Líf Magneu­dóttur áheyrn­ar­full­trúi Vinstri grænna í ráð­inu sagði að um stórt álita­mál væri að ræða. „Taka verður afstöðu til margra flók­inna spurn­inga m.a. um aðgengi allra að nátt­úr­unni, um verð­mæti og gildi Esjunnar og hvort rétt sé að fram­kvæmdin, ef skyn­sam­leg þykir, sé unnin af einka­að­ilum. Fram­kvæmd sem þessi hlyti að hafa marg­háttuð áhrif á umferð og nýt­ingu svæð­is­ins og yrði að leggja mat á heild­ar­á­hrifin, s.s. afleið­ingar auk­innar umferðar, áskor­anir varð­andi örygg­is­mál o.fl. Einnig liggur ekki fyrir hvort aðrir staðir í nágrenni Reykja­víkur kunni að vera heppi­legri en Esjan fyrir kláf. Þá ber að athuga að fram­kvæmdin á eftir að hafa var­an­leg sjón­ræn áhrif á ásýnd Esjunnar,“ sagði í bókun Lífar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár