Flóttamenn frá Venesúela fá vernd í hrönnum eftir úrskurð kærunefndar útlendingamála

Á þeim rúma mán­uði sem er lið­inn frá því að kæru­nefnd útlend­inga­mála felldi úr gildi nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar í máli ein­stak­lings frá Venes­ú­ela hefur um 100 manns frá Venes­ú­ela verið veitt við­bót­ar­vernd. Rúmlega 300 mál bíða enn afgreiðslu.

Útlendingastofnun tilkynnti um breytt verklag varðandi afgreiðslu umsókna einstaklinga frá Venesúela um vernd hér á landi undir lok árs 2021. Þær breytingar virðast hafa verið heldur haldlitlar.
Útlend­inga­stofnun til­kynnti um breytt verk­lag varð­andi afgreiðslu umsókna ein­stak­linga frá Venes­ú­ela um vernd hér á landi undir lok árs 2021. Þær breyt­ingar virð­ast hafa verið heldur hald­litlar. Mynd: Bára Huld Beck

Kæru­nefnd útlend­inga­mála kvað upp úrskurð í máli ein­stak­lings frá Venes­ú­ela þann 18. júlí og felldi með honum úr gildi fyrri ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar, um að synja kær­anda um alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi á Íslandi.

Síðan úrskurð­ur­inn var kveð­inn upp hafa um 100 manns frá Venes­ú­ela fengið við­bót­ar­vernd á Íslandi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur frá Útlend­inga­stofnun. Engri umsókn ein­stak­lings frá Venes­ú­ela hefur á sama tíma verið synjað, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stofn­un­inni.

Rúmlega 300 umsóknir bíða enn

Til við­bótar er Útlend­inga­stofnun nú með til með­ferðar mál rúm­lega 300 ein­stak­linga frá Venes­ú­ela sem sækj­ast eftir vernd hér á landi og lík­legt má telj­ast að í mörgum þeirra verði nið­ur­staðan hin sama og kæru­nefnd útlend­inga­mála komst að í júlí – að ekki séu for­sendur fyrir Útlend­inga­stofnun til þess að kom­ast að annarri nið­ur­stöðu en þeirri að fólk sem flýr frá Venes­ú­ela skuli almennt fá vernd hér á landi.

[adspot]

Útlend­inga­stofnun segir þó sjálf, í skrif­legu svari til Kjarnans, að ómögu­legt sé að segja til um hvernig þessi rúm­lega 300 mál komi til með að fara – hvort umsækj­end­urnir fái vernd hér á landi eða hvort stofn­unin muni synja þeim um vernd. Hvert mál sé metið á ein­stak­lings­grund­velli.

Albert Björn Lúð­vígs­son, lög­maður og tals­maður þess umsækj­anda sem hafði betur fyrir kæru­nefnd­inni, sagði þó við RÚV fyrir tæpum mán­uði síðan að það væri „alveg skýrt“ að þeir Venes­ú­ela­búar sem hefðu sótt um vernd hér­lendis ættu rétt á henni í ljósi nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar.

Kjarninn hefur óskað eftir frek­ari svörum frá Útlend­inga­stofnun um það hvernig stofn­unin túlki nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála og hverjar lík­legar lyktir þeirra rúm­lega 300 mála sem eru til með­ferðar hjá stofn­un­inni verði, en þau svör hafa ekki enn borist.

Ef nið­ur­staðan er sú að úrskurður kæru­nefnd­ar­innar hafi þau áhrif að allir eða nær allir umsækj­end­urnir frá Venes­ú­ela fái alþjóð­lega vernd eða við­bót­ar­vernd er þó ljóst að sér­stakt nýtt verk­lag sem Útlend­inga­stofnun til­kynnti undir lok síð­asta árs að taka ætti gildi varð­andi afgreiðslur umsókna um alþjóð­lega vernd frá rík­is­borg­urum Venes­ú­ela, hefur lítið gildi.

Sögðu að sumir hefðu snúið aftur heim

Útlend­inga­stofnun sjálf sagði, er til­kynnt var um hið breytta verk­lag varð­andi afgreiðslur umsókna þessa hóps flótta­fólks, sem fólst í því að ekki yrði lengur sjálf­krafa veitt alþjóð­leg vernd öllum þeim sem frá Venes­ú­ela kæmu, að yfir­gæf­andi meiri­hluti þeirra sem þaðan kæmu bæru fyrir efna­hags­legar aðstæður og óör­yggi í heima­land­inu.[links]

Einnig sagð­ist Útlend­inga­stofnun hafa fengið upp­lýs­ingar um það að ein­hver fjöldi rík­is­borg­ara frá Venes­ú­ela hefði snúið aftur til heima­lands­ins í lengri eða skemmri tíma, eftir að hafa fengið vernd hér á landi.

„Slíkt getur verið grund­völlur aft­ur­köll­unar á vernd þar sem verndin er veitt á þeirri for­sendu að öryggi flótta­manns sé í hættu í heima­landi. Snúi hann þangað aftur gefur það í skyn að flótta­mað­ur­inn þurfi ekki á alþjóð­legri vernd að halda,“ sagði í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar, um hið breytta verk­lag.

Þetta sagði kæru­nefnd útlend­inga­mála þó vera hald­lítið í úrskurði sínum frá því fyrr í sumar og gerði kæru­nefndin raunar sér­staka athuga­semd við þennan rök­stuðn­ing Útlend­inga­stofn­unar.

„Í rök­stuðn­ingnum er ekki að finna frek­ari upp­lýs­ingar um fjölda þeirra aðila sem hafi snúið til baka eða hvort að litið hafi verið til til­gangs farar þeirra aftur til heima­ríkis. Kæru­nefnd fær ekki séð að það sé for­svar­an­legt að láta aðgerðir ótil­tek­ins fjölda ein­stak­linga án frek­ari rann­sóknar hafa slík áhrif á mat stofn­un­ar­innar hvað varðar aðstæður í Venes­ú­ela og ein­stak­lings­bundnar aðstæður rík­is­borg­ara þess lands sem sækj­ast eftir alþjóð­legri vernd hér á landi,“ sagði í úrskurð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár