Trump gæti þurft að falla frá innflytjendastefnunni

Dómari í Washington D.C. gefur rík­is­stjórn Trumps 90 daga til að rök­styðja ákvörðun sína um að afnema D.A.C.A. lögin.

Alrík­is­dóm­ari í Washington D.C. dæmdi í gær að ákvörðun for­set­ans, Donald Trump, um að hætta að taka við inn­flytj­endum í gegnum D.A.C.A. lögin væri ólög­mæt og óút­skýrð. Dómarinn, John D. Bates, hefur gefið rík­is­stjórn Trump 90 daga til að færa laga­leg rök fyrir því að afnema D.A.C.A. lögin. Að þeim tíma liðnum verður aftur tekið við nýjum umsóknum um D.A.C.A. náist ekki að færa rök fyrir ákvörð­un­unni.

Bates, er þriðji dóm­ar­inn til að kom­ast að þess­ari nið­ur­stöðu. Dómarar í San Francisco og New York hafa einnig kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það sam­ræm­ist ekki lögum að afnema D.A.C.A. lögin og þar af leið­andi að senda fólk úr landi sem notið hefur verndar undir D.A.C.A. lög­unum.

D.A.C.A. lögin

D.A.C.A. lögin eða Deferred Action for Childhood Arrivals program snú­ast um að veita börnum óskráðra inn­flytj­enda vernd, sem hafa komið ólög­lega til Banda­ríkj­anna með for­eldrum sínum þegar þau voru börn. Þau hafa því alist upp sem Banda­ríkja­menn án þess þó að hafa nokkur rétt­indi frá hinu opin­bera.

Barack Obama setti lögin á sínum tíma sem hafa verið í gildi frá árinu 2012. Lögin gefa fólki undir þrí­tugu tveggja ára land­vistar- og atvinnu­leyfi í Banda­ríkj­unum. Að þessum tveimur árum liðnum hafa þau tæki­færi til fram­lengja leyfin. Þetta hefur verið mikil rétt­ar­bót fyrir rétt­inda­lausa ólög­lega inn­flytj­endur, sem eðli máls­ins sam­kvæmt tóku ekki þá ákvörðun sjálf að koma til lands­ins ólög­lega sem börn. Undir vernd geta þau tekið m.a. bíl­próf, greitt lægri skóla­gjöld, keypt fast­eignir og gengið í háskóla.

D.A.C.A. ná yfir þröngt skil­greindan hóp, vernd lag­anna nær yfir um 690 þús­und manns. Með því að sækja um D.A.C.A. gefa umsækj­endur yfir­völdum leyfi til að kanna bak­grunn þeirra.

Til þess að sækja um D.A.C.A. leyfi þarf umsækj­andi að sýna fram á að hann:

  • hafi verið yngri en 31 árs 15. júní 2012
  • hafi verið yngri en 16 ára þegar hann kom til Banda­ríkj­anna
  • hafi búið sam­fellt í Banda­ríkj­unum frá 15. júní 2007 þangað til hann sækir um umsókn
  • hafi ekki brotið af sér fyrir 15. júní 2012
  • sé í skóla eða hafi útskrif­ast úr skóla
  • ef við­kom­andi er ekki í skóla eða hefur ekki útskrif­ast getur hann sótt um D.A.C.A. ef hann er útskrif­aður úr hernum eða frá land­helg­is­gæsl­unni

Pólitískur leikur Trump

Donald Trump sagði í kosn­inga­bar­áttu sinni að hann myndi vinna að því að afnema lögin frá fyrsta degi, ef hann myndi ná kjöri. Í sept­em­ber síð­ast lið­inn gaf hann út að þingið myndi fá sex mán­uði til að vinna að betri lög­gjöf fyrir þennan hóp. Að þeim tíma liðnum myndi ekki vera tekið við nýjum umsóknum um D.A.C.A. leyfi.

Vera þeirra í Banda­ríkj­unum myndi því ekki lengur telj­ast lög­leg og þeim gert skylt að yfir­gefa landið. Þeir sem njóta vernd­ar­innar geta þó end­ur­nýjað leyfin sín. Ákvörð­unum Trump hefur verið mót­mælt harð­lega, enda stór hópur sem verður sendur úr landi á næstu mán­uðum og árum.

Í upp­hafi árs var mikið tek­ist á um fjár­lögin í banda­ríska þing­inu. Trump vildi fá í gegn heim­ildir í fjár­lög­unum til að byggja vegg á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó. Einnig vildi hann fá heim­ildir til þess að setja ný og strang­ari inn­flytj­enda­lög. Hann rétti fram þá sátta­hönd að ef hann myndi fá heim­ildir til að byggja vegg­inn, myndi hann stað­festa nýja lög­gjöf sem myndi leysa vanda ungra óskráðra inn­flytj­enda. Þingmenn náðu ekki að kom­ast að sam­komu­lagi um lög sem næðu yfir þennan hóp og því fékk Trump ekki fjár­heim­ildir til að byggja vegg­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár