Logi vill vera formaður áfram

Formaður og vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gefa áfram kost á sér til for­ystu á lands­fundi flokks­ins í haust.

Logi Már Einarsson tók sæti á Alþingi í fyrsta sinn síðasta vetur. Hann tók við formennsku af Oddnýju Harðardóttur eftir kosningarnar.
Logi Már Ein­ars­son tók sæti á Alþingi í fyrsta sinn síð­asta vetur. Hann tók við for­mennsku af Oddnýju Harð­ar­dóttur eftir kosn­ing­arnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ætlar að gefa kost á sér sem for­maður flokks­ins á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem hald­inn verður í haust. Logi til­kynnti flokks­fé­lögum þetta í tölvu­pósti í gær.

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, vara­for­maður flokks­ins og borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, stað­festi við Kjarnann í dag að hún ætli einnig að gefa kost á sér sem vara­for­maður áfram.

Lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar verður hald­inn dag­ana 27. og 28. októ­ber næst­kom­andi og þar verður kosið í öll emb­ætti á vegum flokks­ins. Á lands­fund­inum verður einnig skerpt á stefnu flokks­ins í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga næsta vor.

„Ég hef trú á því að Sam­fylk­ingin nái vopnum sínum aftur og styrk­ist nægi­lega til að verða aftur það hreyfi­afl sem er nauð­syn­legt í stjórn­málum dags­ins,“ skrif­aði Logi. Sam­fylk­ingin hlaut afhroð í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum í októ­ber 2016 og fékk aðeins þrjá menn kjörna og 5,7 pró­sent atkvæða á lands­vísu.

Oddný Harð­ar­dóttir sagði af sér for­mennsku í kjöl­far kosn­ing­anna og Logi tók við eftir að hafa verið kjör­inn vara­for­maður á aðal­fundi flokks­ins 2016. Logi er einn þriggja þing­manna Sam­fylk­ing­ar­innar í dag, ásamt Oddnýju og Guðjóni Brjáns­syni. Flokk­ur­inn hefur sem stendur enga þing­menn úr kjör­dæmum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Þegar kött­ur­inn slasar sig, dregur hann sig tíma­bundið í hlé, sleikir sár sín og kemst von bráðar á veiðar aftur. Þá sýnir hann bæði tennur og klær,“ skrifar Logi í tölvu­póst­inum.

Hann bendir á að það muni taka tíma að end­ur­nýja traust kjós­enda til flokks­ins. „[...]end­ur­nýjað traust bygg­ist á því að við verðum staðfsöt í öllum okkar mál­flutn­ingi um leið og við gætum að því að hafa þol­in­mæði og æðru­leysi í fartesk­inu.“

[adspot]

Hugmyndir um að breyta um nafn

Hrun Sam­fylk­ing­ar­innar hefur verið mikið síðan fylgi við flokk­inn náði hámarki í Alþing­is­kosn­ing­unum 2009. Þá leiddi Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir kosn­inga­sigur þar sem Sam­fylk­ingin var stærsta stjórn­mála­aflið á þingi, með 20 þing­menn og 29,8 pró­sent atkvæða. Jóhanna leiddi í kjöl­farið rík­is­stjórn með Vinstri grænum.

Í kosn­ing­unum 2013 var fylgi við flokk­inn hins vegar mun minna undir for­ystu Árna Páls Árna­sonar, og flokk­ur­inn fékk 12,9 pró­sent atkvæða og níu menn kjörna. Síðasta kjör­tíma­bil varð litað inn­an­flokkserjum, þar sem Árni Páll þurfti að berj­ast fyrir for­manns­sæti sínu eftir að Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir gerði til­raun til að verða sjálf for­maður. Árni Páll lét af for­mennsku í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2016.

[links]Und­an­farna daga hafa fjöl­miðlar fjallað um til­lögur áhrifa­manna innan flokks­ins að Sam­fylk­ingin skipti um nafn. Það verði liður í upp­bygg­ing­ar­starfi flokks­ins eftir afhroð síð­ustu Alþing­is­kosn­inga.

Kjarninn greindi frá því á fimmtu­dag að Eva H. Bald­urs­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og lög­maður hjá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu, hafi óskað eftir nýjum til­lögum að nafi á Facebook. Ágúst Ólafur Ólafsson, fyrr­ver­andi vara­for­maður og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, viðr­aði þessar hug­myndir í fjöl­miðlum í aðdrag­anda kosn­inga í fyrra og lagði til nafnið Jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands.

Því nafni ættu stuðn­ings­menn Sam­fylk­ing­ar­innar að vera orðnir vanir, enda er opin­bert heiti flokks­ins „Sam­fylk­ingin – jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands“.

Sam­fylk­ingin var stofnuð árið 2000 úr kosn­inga­banda­lagi vinstri flokk­anna í Alþing­is­kosn­ing­unum 1999. Talað var um sam­ein­ingu vinstri vængs stjórn­mál­anna þegar fjórum flokkum – Alþýðu­banda­lag­inu, Alþýðu­flokknum, Þjóðvaka og Kvenna­lista – var steypt saman í einn. Sam­ein­ingin tókst hins vegar ekki alveg því Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð var stofnuð á sama tíma vegna hug­mynda­á­grein­ings milli fylk­inga í Alþýðu­banda­lag­inu.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur auk­ist lít­il­lega eftir kosn­ing­ar 2016, ef marka má skoð­ana­kann­anir und­an­farna mán­uði. Í síð­asta Þjóð­ar­púlsi Gallup mæld­ist hann í 9,2% og í síð­ustu könnun MMR mæld­ist hann í 10,6%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár