Banksy óvart opinberaður í viðtali

Breskur tón­list­ar­maður missti nafn Banksy út úr sér í hlað­varps­við­tali. Og Banksy er...

Þetta er án efa ein þekktasta mynd Banksy. Mótmælandinn kastar blómvendi í valdið.
Þetta er án efa ein þekktasta mynd Banksy. Mót­mæl­and­inn kastar blóm­vendi í valdið. Mynd: EPA

Heims­frægi vegg­lista­mað­ur­inn Banksy er liðs­maður ensku triphop-hljóm­sveit­ar­innar Massive Attack. Enski tón­list­ar­mað­ur­inn Goldie kom óvart upp um Banksy í við­tali við hlað­varps­þátt­inn Distraction Pieces podcast.

Goldie var að tala um það hvernig lista­heim­ur­inn hefur not­fært sér vegg­list og grafití, þrátt fyrir að þetta umdeilda list­form sé enn þá þyrnir í augum fólks.

Banksy er án efa einn þekkt­asti vegg­lista­maður ver­aldar. Verk eftir hann hafa birst víða um heim­inn og bera þau öll sömu ein­kenni upp­reisnar og andúðar á ríkj­andi kerfi. Frægust mynda Banksy er mót­mæl­and­inn sem kastar blóm­vendi í stað Mólotov-kok­teils.

[adspot]

Goldie tók dæmi af vin­sældum Banksy til að rök­styðja mál sitt. „Látið mig fá breið­letur og settu það á stutt­erma­bol og skrif­aðu Banksy á það og við erum kvitt. Við getum selt það þá... Þetta segi ég ekki af van­virð­ingu við Robert, mér finnst hann snjall lista­maður. Ég held að hann hafi snúið lista­heim­inum á hvolf.“

Eftir að hafa sagt nafnið „Robert“ þagn­aði Goldie í stutta stund áður en hann skipti um umræðu­efni.

Í umfjöll­unum um orð Goldie er því slegið föstu að hér sé rætt um Robert Del Naja, sem kallar sig stundum 3D, liðs­mann hljóm­sveit­ar­innar Massive Attack. Del Naja og Goldie eru vinir og þeir unnu sem vegg­lista­menn í sömu kreðsum á seinni hluta níunda ára­tug síð­ustu aldar.

Paradise Circus er án efa eitt besta lagið með Massive Attack

Del Naja hefur áður verið bendl­aður við nafn Banksy. Í fimm mán­aða langri rann­sókn blaða­manns­ins Craig Williams voru nið­ur­stöð­urnar að Del Naja væri eins konar leið­togi hreyf­ingar vegg­lista­manna um víða ver­öld sem gengi undir nafn­inu Banksy.

Sjálfur hefur Del Naja neitað því að vera Banksy. „Það væri góð saga en því miður er hún ekki sönn,“ hefur hann sagt en við­ur­kenndi að Banksy væri vinur sinn sem léti stundum sjá sig á tón­leikum með Massive Attack.

Aðdá­endur telja hins vegar að fát Goldie stað­festi að Del Naja eigi þátt í Banksy. Vegg­lista­verk eftir Banksy hafa ítrekað birst þar sem Massive Attack hafði nýlega spilað. Þá rit­aði Banksy for­mála í bók Del Naja, 3D and the Art of Massive Attack, sem kom út í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár