Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: London

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Gunni og Þrábi voru aðeins að fá sér þegar ég lagði mig rétt fyrir ferju­ferð. Þetta var í fyrra­dag, því við áttum frí­dag í gær. Þeir sváfu líka í ferj­unni, ekki mjög tign­ar­lega, með höf­uð­tól báðir og hang­andi fram á bring­una á sjálfum sér. Baldur svaf heila tvo tíma í sófa, mun tign­ar­legri, en þó alls ekki. Ég borð­aði Full English Break­fast þarna um borð og kláraði. Óskilj­an­legt með öllu auð­vitað klukkan fimm að nóttu. Ég skreið svo í koju þegar við höfðum stigið á hina hvítu en myrkv­uðu Dover-kletta.

[caption id="attachment_11945" align="alignleft" width="162"] Ísinn.[/caption]

Ég held að Robert hafi stoppað einu sinni á leið sinni til London og sofið. Ég rumskaði í það minnsta þegar rútan var sett í gang aftur en svo ekki fyrr en sím­inn minn hringdi við eyrað á mér í koj­unni. Ég svar­aði þessu mjög svo fram­andi núm­eri en heyrði ekki nema eitt­hvað ógreini­legt og sund­ur­slitið muldur. Ég skellti auð­vitað bara á og setti sím­ann á sælent. Senni­lega ekki mjög ábyrgð­ar­fullt fyrir mann sem á von á barni í öðru landi. Svo hélt ég áfram að sofa. Böbbi og Flexi voru ekki par ánægðir með það.

Ég vissi ekk­ert fyrr en ég vakn­aði á áfanga­stað, í ein­hverju úthverf­inu hvar við eyddum nótt­inn eftir, í kyrr­stöðu. Um leið og ég reis úr koju stigu þeir svil­arnir inn í rút­una, bæði kaldir og pirraðir. Þannig hafði það gerst að þeir tve­menn­ingar höfðu vaknað tals­vert löngu á undan mér til þess eins að finna Robert í flá­gellu. Hann hafði ætlað að troða rút­unni eftir götu­slóða sem hafði verið skipt tíma­bundið með þartil­gerðu skamm­tíma­hliði. Robert bað þá að stökkva út til að rífa til hliðið sem þeir og gerðu. Að því loknu reif umferðin í Robert og hann neydd­ist til að keyra á undan þeim. Mér skilst að í svip­inn hafi þetta ekki virst sem stór­kost­legt vanda­mál, en veskis-, síma- og yfir­hafna­lausir svil­arnir, tveimur tímum seinna, voru ekki alveg á sama máli. Símtalið sem ég fékk þarna um morg­un­inn var sum sé úr ein­hverjum síma­klef­anum sem engu skil­aði, en eftir alls­konar streð náðu þeir loks á inter­net­kaffi sem skaff­aði þeim sam­band við Veru, kær­ustu Baldurs, sem síðan hringdi í hann. Hann gat gefið upp götu­heiti sem þeir síðan römbuðu á. Sá er ritar vill minna á nýtil­komin klaufa­bárða­húð­flúr þeirra svil­anna. Robert er frá Tékk­landi líkt og þeir bræður. Kald­hæðnin á holdið teiknað.

Gunni átti afmæli í gær og hann réð því ferð­inni. Hér í Lund­úna­borg bjó hann fyrir nokkru síðan, eyddi tveimur og hálfu ári og var mikið í mun að sýna okkur hvar hann hafði alið mann­inn. Það var væg­ast sagt gaman. Þeir sem ekki hafa notið þess að hlusta á bíspertan Mývetn­ing lýsa því sem skiptir máli eiga afskap­lega mikið eftir. Þannig gekk hann um götur, benti á hús og sagði frá, með brjóst­kass­ann út í loftið og skimandi eftir því hvort við værum ekki örugg­lega allir að hlusta. Sem við vorum. Þetta var frá­bært. Hápunkt­ur­inn var senni­lega hinn amer­íski dæner sem afmæl­is­barnið hafði eytt mýmörgum pundum á, og grætt önnur. Við borð­uðum ein­hver ósköp, og ég senni­lega mest. Ham­borg­ari á fjórum hæðum er eitt­hvað sem ég álít nú sem sigr­aða þraut, þraut sem þarf ekki að þreyta aftur.

Síðar hittum við Helgu systur okkar Baldurs, og Sam Pegg (Helga Pegg!) sem eru búsett hér í borg, og til við­bótar gamlan kenn­ara Gunna sem var algert glæsi­menni. Eftir pöbb­arölt og almenna skemmtun end­uðum við með því að borða meira. Það er eig­in­lega óskilj­an­legt. Síðan tókum við lest­ina í rút­una og sváfum.

[caption id="attachment_11946" align="align­right" width="233"] Jón Geir, sultu­slakur.[/caption]

Ég svaf lengst. Ég held að allir hinir hafi farið í bæj­ar­ferð, utan Böbba sem gisti hjá Valla bróður sínum, og Marellu hans. Ég svaf og las á víxl þar til klukkan var að verða þrjú. Þá var Robert búinn að færa rút­una niður á tón­leika­stað­inn og var að ríf­ast við heima­menn. Þetta er reynslan, tón­leikar í Bret­landi eru mjög oft ves­en­is­mál. Eftir tals­vert karp náðum við að losa bíl­inn af græjum og þá um leið lét Robert sig hverfa. Strák­arnir komu beint niður á venjú með smekk­fulla poka af vín­yl­plötum og öðru góð­gæti. Eftir það tók við bið sem teygði sig óþægi­lega langt. Rúss­arnir voru óþarf­lega lengi að græja sín mál en það hafði svo sem engin úrslita­á­hrif. Í fyrsta skipti á túrnum lentum við á hús­mönnum sem höfðu ekki hug­mynd um hvernig lífið virkar. Þannig vorum við alls ekki til­búnir þegar húsið opn­aði 7 mín­útum of seint og þá eins og 23 mín­útur í gigg. Hafi það hafi ekki verið nógu knappt hafði plötu­út­gáfan okkar hér úti skipu­lagt 4 við­töl sem við þurftum að taka fyrir gigg. Við skiptum okkur í fjóra hópa og rusl­uðum þessu af með­fram því sem við klæddum okkur í tón­leikagall­ann. Ég hlakka svo­lítið til að sjá útkomu við­tal­anna. Aumingja svart­hærði stelpu­garm­ur­inn sem horfði á mig fara í svita­stork­inn svart­klæðn­að­inn átti þetta alls ekki skilið.

En svo tók við það sem við höfum svo oft séð. Þegar blæs á móti er Skálmöldin best. Við hófum leika fyrir kannski hálfan sal af fólki og drógum svo fólkið til okkar. Þegar upp var staðið var kom­inn mik­ill hiti í hóp­inn, pytt­ur­inn orð­inn grjót­harður og allt eins og við viljum hafa það. Þetta var móralskur sigur, senni­lega sá erf­ið­asti á túrnum hingað til og þess vegna sér­lega gef­andi. Fokkjá!

Helga, Pegg, Valli og Marella sóttu tón­leik­ana, sem og Christina og Guð­brandur (jú, það eðal­fólk sem gaf okkur kaffi­kvörn­ina, sjá fyrri færslur þessa bloggs), og ein­hverjir fleiri. Þetta var allt saman sér­lega ágætt og kvöldið end­aði á ein­hverjum pöbbnum þarna nálægt. Núna er klukkan 1.16 og við erum búnir að vera á ferð­inni í sirka hálf­tíma. Við sitjum allir í betri stof­unni, Robert er að keyra og Cat horfin til baka í Rússar­út­una. Við spilum í Manchester-borg á morgun og þangað er 321 km. keyrsla að því að Böbbi segir mér. Hér er glatt á hjalla. Þrási fann sló­venska pressu af Dynasty-plöt­unni með Kiss á flakki sínu í dag. Pressu sem hann á ekki. Nördarnir í búð­inni höfðu víst verð­lagt þennan fjár­sjóð sem venju­lega, amer­íska pressu. Amatörar. Amatörar og vín­yl­kauðar. Ég er nýst­urt­aður og í þokka­lega hreinum fötum. Þetta er allt saman svo ágætt.

Meist­ara­legt dags­ins: Helga, Pegg, Valli og Marella.

Sköll dags­ins: Tímahrak af völdum þeirra sem vinna ekki vinn­una sína

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár