Bill Gates ætlar af lista yfir ríkasta fólk heims

Stofn­andi Microsoft og fyrrum rík­asti maður heims hyggst gefa stærstan hluta eigna sinna á kom­andi árum og áætlar að á end­anum verði hann ekki lengur á lista yfir rík­asta fólk heims.

Bill Gates var ríkasti maður heims á árunum 2010 til 2013.
Bill Gates var rík­asti maður heims á árunum 2010 til 2013. Mynd: EPA

Bill Gates, stofn­andi Microsoft og fjórði rík­asti maður heims, hyggst láta af hendi nán­ast hverja krónu auð­æfa sinna, sem nema um 113 millj­örðum banda­ríkja­dala. Munu þau öll renna til mann­úð­ar­sjóðs í hans nafni.

Gates til­kynnti í vik­unni um 20 millj­arða dala fram­lag í sjóð­inn, sem hann stofn­aði ásamt þáver­andi eig­in­konu sinni, Melindu Gates, árið 2000, og sagði að fram­lög úr sjóðnum myndu hækka úr 6 millj­örðum dala á ári í 9 millj­arða dala á ári árið 2026. Það yrði ekki síst gert vegna vax­andi óstöð­ug­leika í heim­inum vegna heims­far­ald­urs og stríðs í Úkraínu.

Bill Gates varð rík­asti maður heims árið 2010 og til­kynnti það sama ár að hann hyggð­ist gefa öll auð­ævi sín. Gates hélt titl­inum út árið 2013 og er nú fjórði rík­asti maður heims. Síðan hann fékk tit­il­inn hefur eig­infé hans tvö­fald­ast.

Í færslu á Twitter sagð­ist Gates til fram­tíðar ætla að gefa öll auð­ævi sín til sjóðs­ins. Þannig muni hann fær­ast neðar á lista yfir rík­asta fólk heims og á end­anum falla af list­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góðgerðarstarf

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár