Tíu staðreyndir um Davíð Oddsson

Davíð Oddsson býður sig fram til embættis forseta Íslands.
Davíð Oddsson býður sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

1. Davíð Oddsson er fæddur í Reykja­vík þann 17. jan­úar 1948 og er því 68 ára gam­all. Hann er giftur Ástríði Thor­ar­in­sen og eiga þau einn son, Þorstein Dav­íðs­son hér­aðs­dóm­ara á Akureyri. Hann á kött sem heitir Frans.

2. Davíð hefur meðal ann­ars verið borg­ar­full­trúi, borg­ar­stjóri, þing­maður, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Hann var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum 1991 til 2005.

3. Davíð var list­hneigður sem ungur maður og íhug­aði að fara í leik­list­ar­nám. Hann hefur einnig skrifað ljóð, lög og bækur. Hann sá einnig um vin­sælan grín­þátt í útvarp­inu, Matt­hildi, með Þórarni Eldjárn og Hrafni Gunn­laugs­syni, þegar þeir voru saman í MR.

4. Hann er lærður lög­fræð­ingur en sem barn lang­aði hann að verða læknir.

5. Davíð hefur verið að mæl­ast með í kring um 20 pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­unum á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda.

6. Árið 1985 sagði Davíð, þá borg­ar­stjóri, að ef „þær 13 fal­legu stúlkur sem tóku þátt í feg­urð­ar­sam­keppn­inni skip­uðu sæti Kvenna­fram­boðs­ins“ þyrfti hann ekki að bjóða sig fram í næstu kosn­ingum. Kvenna­fram­boðs­konur brugð­ust við með því að mæta í feg­urð­ar­drottn­inga­kjólum með áföstum borðum sem á stóð „Ungfrú Spök“ og „Ungfrú með­færi­leg“. Í dag segir hann að kynja­jafn­rétti sé mik­il­vægt.

7. Ráðhúsið við Tjörnina og Perlan í Öskju­hlíð voru byggð í borg­ar­stjóra­tíð Davíðs.

8. Davíð komst á lista Times Magazine yfir þá 25 ein­stak­linga í heim­inum sem beri mesta ábyrgð á banka­hrun­inu. Hann var einnig val­inn versti Seðla­banka­stjóri Evrópu í sænska dag­blað­inu Dagens Nyheter árið 2009. Hann einka­væddi íslensku bank­ana.

9. Árið 2003 var greint frá því að Íslandi væri á lista yfir þau 30 ríki sem studdu inn­rás Banda­ríkja­manna og Breta inn í Írak og var kall­aður „listi hinna vilj­ugu þjóða.“ Davíð var þá for­sæt­is­ráð­herra og lýsti yfir stuðn­ingi við George W. Bush og hans áætl­anir í Írak.

10. Davíð var einnig orð­aður við for­seta­fram­boð í síð­ustu kosn­ingum árið 2012. Þá sagð­ist hann engan áhuga hafa á emb­ætt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár