Svona verður myndlistarsýning til

„Ég setti upp níu metra háa geim­skutlu í Kypseli og kallaði verkið Lift off. En verkið tengist sýningunni Destination Mars og er geim­skutlan einnig til sýnis í Ásmundarsal en í nýjum búningi. Til þess að gera vegg­verkið Lift Off almennilega ákvað ég að fresta því að opna Destination Mars.“

Nú stendur yfir einka­sýning Söru Riel í Ásmundarsal við Freyju­götu. Destination Mars kallast sýningin og eins og titillinn gefur til kynna er hún innblásin af geim­ferðum, frá hinum ýmsu sjónar­miðum, til dæmis vísindum og dulspeki. Geim­ferðir, Hillbilly hugsar til ódrepandi forvitni og löngun mannsins til að kanna hið óþekkta, hinn gamla draum að fara til Mars – eða hitta allavega Marsbúa einu sinni, tvisvar, áður en þetta klárast allt saman. Sýningin er líka á umhverfis­verndar­grundvelli, því eins og Sara bendir á þá er þessi æintýraþrá okkar í áranna rás ekki umhverfis­vænt sport. Ljós­myndir sem sýna jörðina frá fyrstu ferð mannsins í geiminn og aðrar myndir eftir því sem geim­ferðum fjölgaði, sýna hvernig geimrusl safnast saman á sporbaugi jarðar.

Verkin eru úti og inni þegar kemur að byggingunni, og fer langt upp í geim og inn í heila áhorfanda. Sara Riel tekur yfir Ásmundarsal með málverkum, teikningum, texta­verkum, grafík, vegg­verkum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár