Upphafið í fyrsta sinn

Nemendur í Háskól­anum í Reykja­vík standa fyrir nýrri frum­kvöðla­keppni. Öllum er vel­komið að taka þátt.

Upphafið hefst á morgun, föstudaginn 28. apríl og lýkur á sunnudag 30. apríl. Keppnin er opin öllum.
Upphafið hefst á morgun, föstu­dag­inn 28. apríl og lýkur á sunnu­dag 30. apríl. Keppnin er opin öllum. Mynd: Pexels.com

Gengur þú með frá­bæra við­skipta­hug­mynd í mag­anum? Datt þér snjall­ræði í hug um dag­inn en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja? Eða hefur þú ekki neina hug­mynd en langar að spreyta þig í heimi frum­kvöðla og nýsköp­unar?

Stúd­enta­fé­lag Háskól­ans í Reykja­vík stendur fyrir nýsköp­un­ar­helgi í húsa­kynnum HR um helg­ina þar sem öllum er vel­komið að koma og taka þátt. Um er að ræða keppni sem haldin er í fyrsta sinn í ár og hefur hún hlotið nafnið Upphafið, enda er keppn­inni ætlað að verða upp­haf fyr­ir­tækja fram­tíð­ar­innar.

Í kynn­ingu keppn­innar á Facebook segir að mark­mið keppn­innar sé að kynna og hvetja til nýsköp­un­ar­starfs, ásamt því að veita þátt­tak­endum aðstoð við að þróa sína eigin við­skipta­hug­mynd.

Upphafið hefst á morgun, föstu­dag­inn 28. apríl og lýkur á sunnu­dag 30. apríl. Keppnin er opin öllum, hvort sem þátt­tak­endur mæta til leiks með hug­mynd eða ekki. Þeir sem taka þátt án hug­myndar gefst þá kostur á að verða partur af teymi þeirra sem þrá að verða frum­kvöðlar.

Full­trúar nýsköp­un­ar­set­urs­ins Icelandic Startups verða á staðnum til þess að aðstoða og leið­beina þátt­tak­endum við þróun hug­myndar og við val á næstu skrefum. Icelandic Startups stendur fyrir nýsköp­un­ar­keppnum á borð við Startup Reykja­vík og Gul­leggið sem haldnar eru ár hvert.

Upphafið er haldið í tengslum við þriggja vikna áfang­ann „Nýsköpun og stofnun fyr­ir­tækja“ sem nem­endum Háskól­ans í Reykja­vík hefur gef­ist tæki­færi til að sækja. Sérstök áhersla verður lögð á þátt­töku þeirra nem­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár