Tólf einstaklingar greindust smitaðir af COVID-19 innanlands í gær en þar af voru fimm í sóttkví. Ekki er vitað hvert hlutfall bólusettra er í þessari tölu en á síðustu dögum hefur hátt hlutfall þeirra sem greinst hafa með COVID-19 verið bólusett. Á síðustu fimm dögum hafa 36 greinst smituð af COVID-19 innanlands.
Samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum stendur smitrakning enn yfir. „Ekki er enn vitað hvert hlutfall bólusettra er í þessari tölu. Eins og síðustu daga þá stendur smitrakning yfir, eftir daginn í gær eru 340 manns í sóttkví og 97 í einangrun, búast má við að enn fleiri fari í sóttkví eftir daginn í dag.“
Á landamærunum greindust einnig tólf smitaðir af COVID-19.
Breytingar á sóttvörnum væntanlegar
[links]Fram kom í frétt Vísis í gær að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hygðist leggja til breytingar á sóttvörnum á landamærunum vegna þeirrar aukins smits. Hann vildi ekki gefa upp hverjar tillögur hans til ráðherra yrðu en sagði að minnisblað væri í smíðum.
65 manns höfðu greinst með delta-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi þann 13. júlí. Líkt og áður segir stendur raðgreining yfir á smitum síðustu daga svo talan kann að vera hærri. Þórólfur sagði í svari við fyrirspurn Kjarnans að til greina komi að hefja skimanir á bólusettum ferðamönnum fari svo að delta-afbrigðið haldi áfram að greinast í miklum mæli. Hætt var að skima bólusetta ferðamenn við komuna tili landsins þann 1. júlí.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir