Frá Högum í stól fjármálastjóra hjá Samherja í Hollandi

Fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og við­skipta­þró­unar hjá Högum hefur ráðið sig sem fjár­mála­stjóra á skrif­stofu Samherja í Hollandi.

Stein­grímur H. Pét­urs­son hefur verið ráð­inn fjár­mála­stjóri á skrif­stofu Samherja í Hollandi.

Stein­grímur gegndi stöðu fram­kvæmda­stjóra fjár­mála- og við­skipta­þró­unar hjá Högum en var þar á undan fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Olís í þrjú ár.

Samherji hf., félag utan um hluta af starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, er sjötti stærsti eig­andi Haga með 4,22 pró­sent hlut. Sá hlutur var stærri þar til nýlega, þegar Samherji seldi umtals­vert magn af bréfum í Högum. Samherji kom inn í eig­enda­hóp­inn þegar Hagar og Olís runnu saman, en Samherji hafði verið stærsti eig­andi Olís fyrir þann sam­runa.

Í til­kynn­ingu kemur fram að Stein­grímur hafi einnig gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra hjá Eimskip, Sand­blæstri og Málm­húðun og Fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Sjöfn en hóf starfs­feril sinn að loknu háskóla­námi hjá KPMG End­ur­skoðun á Akureyri þar sem hann vann í fjögur ár.

[adspot]„Stein­grímur er með meistara­gráðu í við­skipta­fræði frá Háskól­anum á Akureyri og B.Sc. gráðu í við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands.“

Hagar til­kynntu til Kaup­hallar á sunnu­dags­kvöld um yfir­vof­andi breyt­ingar á fram­kvæmda­stjórn sinni vegna brott­hvarfs Stein­gríms. Þar kom fram að Stein­grímur hefði sjálfur óskað eftir því að láta af störfum og að hann hefði ráðið sig til starfa erlendis. „Stein­grímur mun hefja störf erlendis á nýju ári, en mun sinna verk­efnum fyrir félagið þangað til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár