Mario Draghi fær stjórnarmyndunarumboð

Fyrrum seðla­banka­stjóri Evrópu hefur fengið leyfi til þess að mynda nýja rík­is­stjórn á Ítalíu. Þó er erfitt verk­efni fyrir höndum, þar sem ýmsir stjórn­mála­flokkar þar í landi eru klofnir í afstöðu sinni gagn­vart stjórn með hann í far­ar­broddi.

Mario Draghi, fyrrum seðlabankastjóri Evrópu
Mario Draghi, fyrrum seðla­banka­stjóri Evrópu Mynd: EPA

Mario Draghi, fyrrum seðla­banka­stjóri Evrópu, fékk í dag stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta Ítalíu, Sergio Mattarella. Þetta kemur fram í frétt frá Financial Times fyrr í dag.

Samkvæmt frétt­inni mun hann nú freista þess að setja saman rík­is­stjórn í land­inu svo að ekki þurfi að rjúfa þing og boða til nýrra kosn­inga. Draghi, sem er óflokks­bund­inn, var til­nefndur af Mattarella eftir að stjórn­ar­slit urðu í rík­is­stjórn sem Giuseppe Conte leiddi fyrr í vik­unni.

Ljóst er að Draghi mun þurfa stuðn­ing frá ein­hverjum af stóru popúlista­flokkum lands­ins, Norð­ur­banda­lag­inu, Bræðrum Ítalíu eða Fimm­stjörnu­hreyf­ing­unni, til að rík­is­stjórn hans haldi velli. Norð­ur­banda­lagið og Bræður Ítalíu eru hægripopúlista­flokkar sem er þekktur fyrir andúð sína á inn­flytj­endum, en Fimm­stjörnu­hreyf­ingin er ekki mik­ill stuðn­ings­maður Evr­ópu­sam­bands­ins.

Vito Crimi, sitj­andi leið­togi Fimm­stjörnu­hreyf­ing­ar­innar, til­kynnti í gær að flokk­ur­inn myndi ekki sam­þykkja tækniræð­is­stjórn með Draghi í far­ar­broddi. Nokkur ágrein­ingur virð­ist þó vera um málið innan flokks­ins sam­kvæmt nokkrum þing­mönnum hans og gæti hann mögu­lega klofnað í tvennt vegna þess.

Matteo Salvini, leið­togi Norð­ur­banda­lags­ins, hefur verið jákvæð­ari í garð hugs­an­legrar rík­is­stjórnar Draghi. Samkvæmt ítalska frétta­miðl­inum La Repubblica sagð­ist hann hafa stungið upp á að hlustað væri á hvað Draghi hefði upp á að bjóða. Giorgia Meloni, for­maður Bræðra Ítalíu segir hins vegar hennar flokk aldrei munu styðja hann.

Í ræðu sem Draghi flutti fyrr í dag kall­aði hann eftir sam­stöðu þvert á stjórn­mála­flokka svo að rík­is­stjórnin gæti unnið úr stóru verk­efn­unum sem biðu hennar. „Að sigr­ast á far­aldr­inum, ljúka bólu­setn­ing­ar­her­ferð­inni, að leita borg­ur­unum svör og land­inu við­spyrnu, þetta eru áskor­an­irnar,“ bætti hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár