Gætu ferðabandalög smám saman komið Evrópu í eðlilegra horf?

Fyrsta ferða­banda­lagið, eða ferða­búbblan, innan Evrópu er orðin að veru­leika fyrir botni Eystra­salts­ins. Mögulegt er að slík banda­lög ríkja sem náð hafa þol­an­legum tökum á heim­far­aldri kór­ónu­veiru verði fleiri í Evrópu á næstu vikum og mán­uðum.

Eistneskur landamæravörður í Ikla, á landamærunum við Lettland, gat ekki annað en brosað þegar hann fjarlægði í gær stöðvunarmerki á landamærastöðinni. Ferðabandalag er orðið til og þau gætu orðið fleiri.
Eist­neskur landamæra­vörður í Ikla, á landa­mær­unum við Lettland, gat ekki annað en brosað þegar hann fjar­lægði í gær stöðv­un­ar­merki á landamæra­stöð­inni. Ferða­banda­lag er orðið til og þau gætu orðið fleiri. Mynd: EPA

Fyrsta ferða­banda­lagið, eða ferða­búbblan, á milli grann­ríkja í Evrópu sem hafa náð svip­uðum tökum á útbreiðslu kór­ónu­veirunnar varð að veru­leika á föstu­dag. Þá opn­uðu Eystra­salts­ríkin þrjú, Eistland, Litáen og Lettland landa­mæri sín.

Nú geta íbúar þess­ara þriggja litlu ríkja, sem hafa rík við­skipta- og menn­ing­ar­tengsl, ferð­ast frjálsir um innan svæð­is­ins án þess að nokkrar sótt­varna­ráð­staf­anir á borð við veiru­skimanir eða sótt­kvír bíði þeirra handan landamær­anna. Aðrir sem heim­sækja búbbluna þurfa enn að sæta 14 daga sótt­kví.

Ráðamenn Eystra­salts­ríkj­anna þriggja horfa til þess að þessi litla „búbbla“ stækki enn frekar á næst­unni og hafa boðið bæði Finnum og Pól­verjum, sem eiga landa­mæri að ferða­búbblunni úr norðri og suðri, að slást í hóp­inn. Eistar hafar þegar liðkað ögn fyrir nauð­syn­legum ferða­lögum Finna til lands­ins og hið sama hafa Litáar gert gagn­vart Pól­verjum.

Fleiri ferða­banda­lög ríkja sem hafa náð góðum tökum á veirunni hafa verið til umræðu, en Nýja-Sjáland og Ástralía útfæra nú hvernig leyfa megi frjáls ferða­lög á milli ríkj­anna tveggja og til stendur að gera það um leið og öruggt þykir.

Þau eru, rétt eins og Eystra­salts­ríkin, með mikil við­skipta- og menn­ing­ar­tengsl. Ástralir eru fjöl­menn­asti hópur ferða­manna sem sækir Nýja-Sjáland heim á hverju ári og ein­ungis Kín­verjar eru fjöl­menn­ari en Nýsjá­lend­ingar í hópi þeirra sem koma og verja frí­dög­unum sínum í Ástralíu.[links]

Rætt hefur verið um að þessi Eyjaálfu-búbbla muni einnig ná til lít­illa eyríkja álf­unnar, sem hafa verið lítt snortin af veirunni.

Vonast eftir gagnkvæmni frá Færeyingum og Grænlendingum

Ísland hefur þegar liðkað ögn fyrir ferða­lögum á Atl­ant­hafi. Frá og með gær­deg­inum varð þeim sem vilja koma frá Færeyjum og Græn­landi heim­ilt að stíga hér á land án þess að þurfa að fara í sótt­kví við kom­una, þar sem löndin eru ekki lengur skil­greind sem há-áhættu­svæði.

Reyndar er þetta ein­hliða ráð­stöfun gengur þetta ein­ungis í aðra átt­ina og fólk sem kemur frá Íslandi til Græn­lands eða Færeyja þarf enn að sæta sótt­kví við kom­una þangað.

Fram kom í Morg­un­blað­inu í gær að utan­rík­is­ráðu­neytið von­að­ist eftir gagn­kvæmni um þessa ráð­stöfun, en ekk­ert hefði þó verið stað­fest í þeim efnum.

Hvernig verða ferðalög innan Evrópu?

Stóra „ferða­banda­lagið“ sem Ísland er aðili að, Schengen-sam­starf Evr­ópu­ríkja, þar sem fólk getur alla jafna ferð­ast á milli ríkja án þess að taka eftir því að það sé að fara yfir landa­mæri, er enn fullt af far­ar­tálmum vegna ákvarð­ana nær allra ríkja um að loka landa­mærum sínum eða gera kröfu um að fólk fari í sótt­kví til þess að hemja far­ald­ur­inn.

Smám saman er þó að slakna á og mik­ill þrýst­ingur er að mynd­ast um að landamæra­lok­anir og sótt­varna­ráðs­staf­anir gagn­vart ferða­mönnum innan Evrópu heyri sög­unni til, enda eiga ríki Evrópu mikið undir ferða­mennsku.

Ítölsk yfir­völd til­kynntu í dag að þau ætl­uðu að opna landa­mæri sín strax 3. júní fyrir öllum íbúum innan Schengen-sam­starfs­ins, og eng­inn þarf að fara í sótt­kví!

En við blasir flókin staða, enda hafa ríki bæði innan Schengen-sam­starfs­ins og utan fótað sig mjög mis­jafn­lega gagn­vart veirunni. Það er ekki því ekki víst að öll ríki vilji bjóða Ítölum í heim­sókn, eða leyfa eigin íbúum að snúa óhindr­uðum þaðan til baka, þrátt fyrir að Ítalir hafi tekið ákvörðun um að bjóða alla vel­komna.

ESB nú opið fyrir ferðabandalögum

Um vik­una miðja gaf fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins út umfangs­miklar leið­bein­ingar til aðild­ar­ríkja um hvernig megi reisa ferða­þjón­ust­una aftur við. Í leið­bein­ing­unum segir meðal ann­ars að for­senda þess að hægt sé að koma ferða­lögum af stað sé sú að útbreiðsla COVID-19 hafi farið minnk­andi og verið stöðug um nokk­urt skeið og sé metin, með far­alds­fræði­legum rökum, lík­leg til þess að hald­ast stöðug áfram þrátt fyrir að ferða­mönnum fjölgi.

Einnig segir fram­kvæmda­stjórnin að tryggja þurfi að ríki sem aflétta tak­mörk­unum hafi nægi­legar bjargir í heil­brigð­is­kerf­inu til þess að takast á við veik­indi á meðal ferða­manna, auk bol­magns til þess að bæði skima fyrir veirunni og rekja smit, komi þau upp.

Fram­kvæmda­stjórnin gefur líka í skyn að þau lönd sem náð hafa góðum tökum á útbreiðsl­unni geti byrjað á að opna fyrir þeim sem hafa einnig náð góðum tökum á útbreiðslu veirunnar, rétt eins og Eystra­salts­ríkin hafa þegar gert.

Áður hafði fram­kvæmda­stjórnin lýst sig mót­fallna því að ríki gerðu slíka tví- eða marg­hliða samn­inga sín á milli um opn­anir, en virð­ist nú sætta sig við það. Þó er lögð þung áhersla á að slík ferða­banda­lög verði algjör­lega „án mis­mun­unar“.

„Þegar aðild­ar­ríki ákveður að leyfa ferða­lög inn fyrir landa­mæri sín [...] ættu þau að gera það án mis­mun­unar – leyfa ferða­lög frá öllum svæðum, hér­uðum og löndum innan Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem staðan á far­aldr­inum er svipuð,“ segir í frétta­til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar.

Í umfjöllun Guardian í vik­unni var farið yfir þessar leið­bein­ingar fram­kvæmda­stjórn­ar­innar um þær „ferða­búbblur“ sem nú eru til umræðu.

Aust­ur­ríki ætlar að leyfa ferða­mönnum frá Þýska­landi og Tékk­landi að ferð­ast til sín fljót­lega og þá hafa stjórn­völd í Grikk­landi, sem á gríð­ar­lega mikið undir ferða­manna­geir­anum, hafið tvíl­hliða við­ræður við stjórn­völd á Kýpur, Þýska­landi, Aust­ur­ríki og einnig Ísrael um frjálsa för fólks á milli ríkj­anna.

Óvíst hve lengi pólitísk samstaða um lokun Schengen varir

Hvernig sem útfærslan verður á þessu öllu saman í Evrópu á næstu vikum er ljóst að íslensk stjórn­völd fylgj­ast grannt með, enda munu ákvarð­an­irnar sem teknar eru á meg­in­landi Evrópu eflaust hafa mikil áhrif á ferða­vilja Evr­ópu­manna á næstu mán­uðum og þær ákvarð­anir sem íslensk stjórn­völd þurfa að taka varð­andi opnun landamæra.

Á það var til dæmis bent, í skýrslu stýri­hóps um afnám ferða­tak­mark­ana (bls. 10), að ákveðnar áskor­anir tengdar Schengen-sam­starf­inu væru varð­andi þá leið að opna Ísland fyrir ferða­mönnum með því skil­yrði að þeir und­ir­gang­ist skimun fyrir veirunni, eins og nú er stefnt að.

Pólitísk sam­staða hefur verið um að hafa ytri landa­mæri Schengen lokuð og sagði starfs­hóp­ur­inn að lík­legt væri að „göt mynd­ist í þess­ari sam­stöðu fyrr en síðar í sumar.“

Þrátt fyrir það taldi starf­hóp­ur­inn að það væri mik­il­vægt að tryggja að Ísland yrði ekki fyrsta Schengen-ríkið sem opn­aði fyrir ytri umferð, því þá væri hætta á að sam­staða myndi mynd­ast á meðal hinna Schengen-ríkj­anna um að loka á flug frá Íslandi, sem væri að sjálf­sögðu baga­legt.

„Rétt er að und­ir­strika að erfitt er að spá fyrir um það hver við­brögð verða við mögu­legu útspili Íslands í þessu máli á næstu vikum. Það ræðst mjög af þróun far­ald­urs­ins í Evrópu og hversu lengi ESB-ríkin, sér­stak­lega þau stærri, vilja una við lokun Schengen-svæð­is­ins fyrir ytri umferð,“ segir í skýrslu starfs­hóps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár